Unga Ísland - 01.11.1955, Síða 30
jóstnyndir
frá lesendum U
Einkennilegar myndir.
Fyrir nokkru var rætt um samsettar Ijós-
myndir, í tómstundaþætti bama og ungl-
inga. Þá sendi einn lesandi U. í„ Valdimar
á Bíldudal, nokkrar slíkar myndir, er hann
I. og frásagnir.
hefur tekið og unnið við sjálfur að öllu leyti.
„Að vísu eru þetta ekki úrvals myndir,“
segir Valdimar, „en sýna þó, hvað hægt er
að gera sérkennilegar og skemmtilegar
myndir, með því að kopíera tvær myndir
saman.“
,JIeltu út
úr einum kút — — “
Gulliver
í Putalandi.
Um mynd nr. 1 segir hann: „Þetta er
nokkuð stór maður, finnst ykkur það ekki?
Þetta eru tvær samsettar myndir, önnur er
frá Siglufirði, en hin af mér. Mynd nr. 2
er hugmynd og á að sýna mann úti í kirkju-
garði, um há-nótt. Myndina kalla ég:
„Helltu út úr einum kút--------“. Myndin
er búin til — og klippt — úr tveim glær-
um filmum.“ — (Beztu þakkir fyrir mynd-
irnar, Valdimar).
28
UNGA ÍSLAND