Unga Ísland - 01.11.1955, Síða 37
/
Strákur á sleða.
Hann er gleiður og kátur, strákurinn
hérna. Hann á líka sinn eigin sleða.
Teiknaðu hann á þykkan pappír (2. m.),
klipptu svo út það, sem merkt er með
krossi, og brjóta hann eftir punktalínun-
um (sjá 3. mynd). Þegar þú hefur svo
teiknað strákinn á pappírinn og litað hann,
brýturðu hann eins og örin sýnir á 3. mynd
og límir hann á sleðann.--
Stétt undir myndir
Kátur er spaugsamur karl, sem við
þekkjum úr kvikmyndasögu Disneys um
hana Mjallhvít. Héma er hann til þess að
sýna ykkur, að það er auðvelt að láta út-
klipptar myndir standa sjálfstætt, ef þið
skerið sneið af stórum korktappa eða skífu
úr krossviði og látið myndina standa f
rauf, sem þið gerið þvert yfir skífuna.
iólagetraun.
um jólakveðjurnar
Um leið og Unga ísland minnir á hina
mörgu kaupsýslu- og athafnamenn, er
senda lesendum jóla- og nýárskveðjur og
þakkar þeim, efnir Unga ísland til get-
raunar um kveðjurnar.
Öll nöfn eru prentuð með samskonar
letri, skáletri. En í fjórum firmanöfnum er
einn stafur úr annarri leturtegund, saman-
ber nafnið Hrólfur hér fyrir neðan:
Hröliur
Þar er einn stafur úr öðru letri.
Spurningin er: Hvaða nöfn eru prentuð
með breyttum staf?
Svörin verða að berast til Unga íslands,
Reykjavík, fyrir 30. janúar 1956.
. .1. verðlaun: Stimpill með fullu nafni.
2. verðlaun: Biró-penni.
3. verðlaun: Vönduð lausblaðabók (vasa-
bók).
Ath.: Á annarri kápusíðu er ein kveðja
með röngum staf.
UNGA ÍSLAND
35