Unga Ísland - 01.11.1955, Side 38
Billi
09 flugvélin
XA-1
Vinir hans Billa gerðu gys að vélflugumó-
delinu hans .... unz dómarinn birti úr-
skurð sinn.
Billi Stevens þaut niður kjallaratröpp-
urnar og Frank Fisher flýtti sér engu
minna á eftir honum. Augu Billa Ijómuðu
af hrifningu, er hann tók XA-1 varlega upp
og sýndi Frank.
„Hérna sérðu hana,“ sagði hann og brosti
út undir eyru. „Hún er tilbúin í keppnina
á morgun.“
Frank rak upp stór augu og gapti af
undrun. „Sú er skrítin,“ varð honum loks-
ins að orði.
„Hvað er svona skrítið við hana?“ hváði
Billi og brosið hvarf af andlitinu.
„Oddmjóir vængir,“ sagði Frank og hló.
„Og hver hefur nokurn tíma séð flugvélar-
stél, sem er eins og V í laginu?“ og hann
hélt áfram að hlægja. „Heldurðu að hún
geti flogið?" sagði hann á milli hláturhvið-
anna.
Það þyngdist brúnin á Billa. Hann Frank
virðist ekki bera mikið skyn á flugvélar.
Og það gildir einu, þótt hann sé í skrán-
ingarnefnd Flugmódelafélags borgarinn-
ar, honum skal ekki líðast að hlæja að
flugvélinni minni.
„Auðvitað getur hún flogið,“ sagði hann
upp úr þessum hugsunum. „Ég reyndi hana
sjálfur. XA—1 mun vinna fyrstu verð-
laun á módelkeppninni á morgun, sann-
aðu til.“
„Hún fær kannske fyrstu verðlaun fyr-
ir að vera kjánalegust að útliti, það mætti
segja mér,“ sagði Frank um leið og hann
tók að ganga upp úr kjallaranum.
„Við skulum sjá hvað setur á morgun,"
sagði Bill og var fastmæltur. Frank hætti
að hlægja.
„Segjum svo,“ hrópaði Frank ofan af
stigapallinum. „En mundu það, að þú verð-
ur að vera mættur þar ekki seinna en á mín-
útunni tvö.“
„Ég mun ekki láta standa á mér,“ sagði
Billi um leið og Frank fór.
Hann leyfði sér víst bara að hlægja af því
að ég er yngsti meðlimurinn í félaginú,
hugsaði Billi með sér.
Hann setti flugvélina aftur á smíðaborð-
ið. „Við skulum, svei mér, sýna honum það,
að ég geti unnið verðlaun, enda þótt þetta
sé bara fyrsta flugvélin, sem ég set í
keppni,“ sagði hann við sjálfan sig.
Reyndar tók Bili nú óðum að efast um
það með sjálfum sér, að flugvélin myndi
íljúga nógu vei iil þess að fá verðlaun.
Að vísu hafði hún flogið í gær, en nú væri
enginn tími til þess að reyna hana til fulln-
ustu fyrir keppnina. í þeirri andránni kall-
aði móðir hans á hann í kvöldverðinn.
36
UNGA ISLAND