Unga Ísland - 01.11.1955, Qupperneq 47
CLARA BARTON
Framhald af bls. 17.
gögn við hendina og réði það oft úrslitum
um björgun lífs og lima hermannanna, að
þeir fengu hjúkrun af hennar hendi mun
fljótar, en annars hefði orðið. Hermennim-
ir nefndu hana „Engil orustuval!anna“.
Clara vann þrotlaust að þessum líknar-
störfum á meðan á þessari styrjöld stóð. Er
henni lauk, tók hún sér fyrir hendur, að
grafast fyrir um afdrif stírðsfanga, sem
ekki komu í leitimar í stríðslok og hjálpa
þeim, sem fundust, og greiða götu þeirra
heim til ættingja og vina. Þá ferðaðist hún
einnig um Bandaríkin og flutti fyrirlestra
um reynslu sína í þessu stríði.
Um þetta leyti hrakaði heilsu 'hennar svo
mjög, að læknar ráðlögðu henni að fara til
Svisslands og leita sér þar hressingar og al-
gerrar hvíldar.
í Svisslandi komst hún í kynni við hreyf-
ingu Rauða krossins, sem Henri Dunant
hafði vakið í Evrópu. Sjálfur vakti hann
áhuga hennar fyrir starfi þessa félagsskap-
ar. Þá skall á stríð milli Frakklands og
Prússlands og tók Clara Barton þá hönd-
um saman við erkihertogaynjuna af Baden
um líknarstörf í Evrópu og vann þar sleitu-
laust að þeim störfum í fjögur ár.
Er heim kom, gaf hún sig óskipta að því
að skipuleggja Rauða krossinn í Bandaríkj-
unum. í 23 ár samfleytt var hún forseti
þess félagsskapar. Fyrir hennar tilstilli var
safnað geysiháum fjámpphæðum til styrkt-
ar og líknar fólki, sem varð fyrir tjóni og
meinum af völdum eldsvoða, flóða, felli-
bylja og hvirfilvinda, stríða, sjúkdómsfar-
aldra og hvers kyns ófara. Ásamt starfs-
fúsum og fylgisömum liðsmönnum sínum,
var hún ætíð nærtæk og reiðubúin til hjálp-
ar þeim, sem áttu við þjáningar og böl að
stríða.
Clara Barton andaðist árið 1912 að heim-
ili sínu, Glen Echo, skammt frá Washing-
ton. Hún var ein af mestu konum Banda-
ríkjanna, enda er nafn hennar virt og dáð
um allan heim.
^mfledileg \fóll
arsælt nýárl
Samband
*
Islenzkra
Samvinnufélaga
Gleöileg jól! Farsælt nýór!
BókábúÖ Braga Brynjólfssonar
Hafnarstræti 22
Gleðileg jóll Forsæll nýárl
BókabúÖ Lárusar Blöndáls
Skólavörðustíg 2
Gleðileg jól! Farsælt nýár!
Verzl. Hlööufell og Matvœlageymslan
Langholtsvegi 89
Gleðileg jól! Farsælt nýár!
S. Árnason & Co.
Hafnarstræti 5
Gleðileg jól! Farsælt nýár!
Verzluin Gimli h.f.
Laugavegi 1
UNGA ÍSLAND
45