Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Blaðsíða 61

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Blaðsíða 61
LEIFUR HEPPNI 41 sýningar árið 1893. Þetta þótti mörgum Leifsmönnum hart lög- mál, og vildu gera eitthvað til þess að Leifi yrði ekki gleymt við það tækifæri. Og til þess varð líka Norðmaður austan um haf. Það var Magnus Andersen, sem sigldi víkingaskipinu “Viking” vestur um haf. Það var smíðað í Noregi eftir Grokstad skipinu. Lenti hann og félagar hans í New London, Con- necticut, 13. júní 1893 eftir 44 daga siglingu, og þótti það vel gert og víkingslega. Síðan sigldi hann skip- inu gegnum St. Lawrencefljótið og yfir vötnin og kom loksins til Chi- cago 12. júlí. Það segja þeir, sem þar voru, að við það tækifæri hafi Leifur borið Columbus ofurliði á sýningunni. Auðvitað hafði verið gerð nákvæm eftirmynd af þrem- ■ur skipum Columbusar; voru þau ðregin vestur um haf af gufu- skipi, og var sagt að koma þeirra á sýninguna hefði vakið heldur iitla eftirtekt. Öðru máli var að gegna með “Viking”. Hér komu þraustir, veðurbitnir norskir sjó- íftenn, sem siglt höfðu á víkinga ^isu yfir Atlantshafið, barist við sjó og veður, og loks komist með heilu og höldnu að takmarkinu. Var skipið síðan á sýningunni, en að henni lokinni gáfu Norðmenn það Ameríkumönnum. Hefir það verið síðan í Chicago, en lengi var ^kki vel um það hirt, og tók það mjög að hrörna. Loks tóku norsk- ameríkönsk félög sig til og söfn- «ðu fé til viðgerðar á því. Var það alt bætt og skinnað upp, og stend- nú í góðu standi í Lincoln Park í Chicago til minningar um Leif °g norska sjómensku. En norðmenn hér vestra hafa ekki látlð þar við lenda. Meðal þeirra er félagsskapur, sem heitir “The Leif Ericson Memorial As- sociation of America”, og hefir hann barist fyrir því að hugmynd Rasmus Andersons um “Leifs Ei- ríkssonar-dag” yrði komið í fram- kvæmd, og sá dagur lögleiddur sem frídagur, eins og Columbus-dagur (12. okt.) er í mörgum ríkjum. Þetta hefir þó ekki tekist ennþá nema í Wisconsinríki. Það mun hafa nýlega verið gert að lögum þar, að 9. október skyldi viður- kendur sem “Leif Ericson Day” (sbr. New York Times, 13. okt. 1932). Það er ljóst af þessu stutta yfir- liti, hvað mikið Norðmenn hafa gert til að halda minningu Leifs á lopti. Og þá er síðast en ekki sízt að telja, að það er einmitt þeim að þakka, að Ameríkumenn sýndu íslandi þann sæmdar- og við- urkenningarvott að gefa þeim lík- neskjuna af Leifi. Það var norski Ameríkumaðurinn Mr. Olger B. Burtness, kongressmaður frá North Dakota, sem lagði frumvarp fyrir kongressinn um þetta og gekst fyr- ir því, að það yrði samþykt. Við íslendingar þykjumst einatt mikið af Leifi og fornhetjum okk- ar, en hvað höfum við gert til þess að halda minningu þeirra á lopti? Það heyrast stundum kvartanir frá löndum okkar um það, að Norð- menn vilji taka Leif frá okkur og eigna sér hann, og þykir þeim það ilt og óréttlátt. En Norðmenn gætu spurt okkur: “Meðan við höfum verið að vinna að því að halda uppi minningu Leifs, hvar hafið þið ís-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.