Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Blaðsíða 101
ÁRSÞING
81
Jon J. Húnfjörð flutti munnlega
skýrslu fyrir deildina Island í Brown.
Lýsti hann hag deildarinnar þolanlegan
°g bar kveðju til þingsins.
Ásmundur P. Jóhannsson gerði tillögu
og Sig. Vilhjálmsson studdi, að skýrslur
deildanna væru viðteknar, og var það
samþykt.
Þá bar Ásmundur P. Jóhannsson fram
tillögu um það, samkvæmt tilmælum
fjármálaritara og féhirðis, að þeim væri
leyft að innheimta aftur fjárhagsskýrslu
sína áður en hún færi til væntanlegrar
fjármálanefndar, og gera við hana ýms-
ar nauðsynlegar leiðréttingar, með því
að bersýnilegt væri að ýmsar prentvill-
ur væru í skýrslunni. Taldi hann þetta
mundi verða til fyrirgreiðslu störfum
Þingsins. Séra Jóh. P. Sólmundsson tók
i sama streng. Tillagan var studd af
Halldóri Gíslasyni frá Leslie, Sask., og
samþykt í einu hljóði.
Þá kom fram tillaga frá Rögnvaldi
Péturssyni, studd af séra Benjamín
Kristjánssyni, að forseta sé falið að
skipa dagskrárnefnd og fjármálanefnd
Þrjá menn í hvora. Samþykt.
Skipaði þá forseti í dagskrárnefnd:
Dr. Rögnvald Pétursson,
Árna Eggertsson og
Hjálmar Gíslason.
I f jármálanefnd:
Ásmund P. Jóhannsson,
Bergþór E. Johnson og
Bjarna Dalman.
Með þvi að liðið var fast að hádegi.
kom fram tillaga frá dr. Rögnvaldi Pét-
urssyni, studd af séra Benjamín Kristj
ánssyni, að hafa fundarhlé til kl. 2 e. h
Samþykt.
Fundur hófst að nýju kl. 2 e. h. Fund-
krgerð síðasta fundar lesin og samþykt.
Þá hafði kjörbréfanefnd lokið störfum
sínum, og lagði fram svohljóðandi álit:
Kjörbréfanefndin hefir yfirfarið heim-
ildarbréf fulltrúa og telur þessa kosna:
Pyrir deildina “Fjallkonan” i Wyn
ýard, Sask., Ásgeir I. Blöndal 16 atkv.
Kyrir deildina “Iðunn” í Leslie, Sask.,
Halldór Gislason 7 atkv.
Krá deildinni “Brúin” í Selkirk, Man.,
eru mættir þrír fulltrúar, með heimild til
að fara með 19 atkvæði hver, þau
----------------------------------—-----1
Bjarni Skagfjörð,
Mrs. Sigurbjörg Johnson og
Th. S. Thorsteinsson
24. febr. 1932.
Ásgeir I. Blöndahl,
Ragnar Stefánsson
Guðm. Jónsson.
Eftir að nefndin lauk starfi, bættust
við til þingsetu frá deildum:
Séra Guðm. Árnason, Oak Point,
Jón Einarsson, Lundar,
Hjálmur Þorsteinsson, Gimli.
Mrs. Halldóra Gíslason, Wynyard.
Dr. Rögnvaldur Pétursson gerði tillögu
um að álit kjörbréfanefndar væri sam-
þykt, og var tillagan samþykt.
Þá hafði dagskrárnefnd lokið störfum
og lagði fram eftirfylgjandi dagskrá:
1. Þingsetning.
2. Skýrslur embættismanna.
3. Kosning kjörbréfanefndar.
4. Kosning dagskrárnefndar.
5. Kosning fjármálanefndar þingsins.
6. Skýrslur frá standandi nefndum.
7. tJtbreiðslumál.
8. Fræðslumál.
9. Sjóðstofnanir. j
10. Tímaritið.
i
11. Bókasafn.
12. Ný mál.
13. Kosning embættismanna.
14. ölokin störf.
Jón J. Húnfjörð lagði til, og Friðrik
Sveinsson studdi ,að þessi dagskrá væri
viðtekin, og var það samþykt.
Með því að fimm fyrstu liðir dag-
skrárinnar voru þegar afgreiddar, var
næst tekið fyrir:
trtbreiðslumál. — Dr. Rögnvaldur Pét-
ursson gat þess ,að síðasta þing hefði
falið stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins,
að semja fyrir þetta þing tillögur um
upptöku lestrarfélaga og annara þjóð-
legra íslenzkra félaga hér í álfu, í
Þjóðræknisfélagið. Hafði stjórnarnefndin
falið ritara að semja álit þetta og las
hann upp eftirfarandi tillögu:
Stjórnarnefndar tillaga
Um upptöku íslenzkra lestrarfélaga og
annara þjóðlegra félagsstofnana í Þjóð-
ræknisf élagið:
Með því að Þjóðræknisfélag Islendinga.
i Vesturheimi er sá félagsskapur, er