Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Blaðsíða 107
ÁRSÞING
87
—t
6. All players, to be eligible, must
conform to the regulat'.ons governing
players of the Canaciian Amateur
Hockey Association.
7. The Trophy shall be presented
annually to the winning team or club bv
the President of the Icelandis Nationa’
League or by someone appointed by him
8. Such winning team or club shal!
be responsible for the safe keeping oí
the Trophpy, and shall deliver same back
to the Trustees thereof in the first week
°f March in each year.
9- The terms and regulations con-
tained herein may be revised or altered
trom time to time, as deemed desirable
hy the executive of the Icelandic
National League.
Bjarni Finnsson gerði tillögu og Guð
Jón S. Friðriksson studdi að reglugerð
'n verði samþykt óbreytt í heilu lagi
Sampykt.
Með þvi að engin frekari ný má!
t^gu fyrir þinginu i bili og nefndarálil
v°ru ókomin og liðið fast að hádegi
lagði Dr. Rögnvaldur Pétursson til og
®v. Gislason studdi að fundarhlé yrði til
kh 2 e. h. Samþykt.
Bundur hófst að nýju fimtudaginn 25,
tebrúar kl. 2. e. h. Forseti skýrði frá
Því um leið og hann setti fundinn að
Hergthor K. Johnson hefði leyft sér að
geta þess ,að hann ætti all gott safn
íslenzkum bókum, sem hann ætlaði
sér að erfa Þjóðræknisfélagið að. Þakk
aði forseti þessa höfðinglegu gjöf og
Arni Eggertsson gerði tillögu og Guðjón
Hriðriksson studdi, að þingið greiddi
^r- Johnson þakklætis atkvæði. Reis
Þingheimur upp úr sætum sínum og
Þakkaði með lófataki. Var þá fundar-
Serð síðasta fundar lesin upp og sam-
Þýkt.
Nefndarálit fjármálanefndar lá fyrir
Þibginu og var lesið upp af formanni
befndarinnar Asm. P. Jóhannssyni. Urðu
Uttl það talsvert miklar umræður og
fcötti mörgum nefndarálitið ómaklega
karðort í garð stjórnarnefndar og ósk-
uðu að það yrði ekki birt í því formi
Auk þess upplýstust við umræðurnar
yms þau atriði, sem fjármálanefndin
Serði athugasemdir við Kom þá fram
tiliaga frá séra Guðmundi Árnasyni
studd af Sveinbirni Gíslasyni, að vísa
álitinu aftur til fjármálanefndar, til
þess að hún leitaði sér nánari upplýs •
inga um þau atriði er hún teldi athuga-
verð og gæti borið athugasemdir sínar
fram í þvi formi er þingheimur teldi
viðunanlegt. T'úagan var samþykt með
29 atkv. gegr. 15.
Þá var tekið fyrir álit Samvinnumála,-
nefndar við ísland og lesin upp af dr.
Rögnv. Péturssyni svohljóðandi tillaga:
Samvinna við Island.
Tillaga nefndar þessarar, að þessu
sinni er að mestu leyti endurtekning á
tillögu hinnar sömu nefndar er borin var
upp og samþykt á síðasta þingi.
Nefndin leggur til:
1. Að þingið feli væntanlegri stjórn-
arnefnd framhaldandi framkvæmdir i
þvi að komist geti í beinar skipaferðir
að sumrinu, á milli álfu þessarar og
Islands.
2. Að þingið feli stjórnarnefndinni á
þessu næstkomandi ári að fylgja þvi
eftir við Ríkisstjórnina í Canada að
stofnaður verði námssjóður sá til minn-
ingar um þáttöku fylkja sambandsins
Canadiska í þúsund ára afmælishátíS
alþingis er óbein loforð hafa fengist
fyrir og upphaflega var farið fram á af
Heimferðarnefnd Þjóðræknisfélagsins.
3. Að þingið feli stjórnarnefndinni aði
halda áfram að vinna að því við Ríkis-
stjórnina í Canada að komist geti á
hagkvæmt og beint viðsgifta samband
milli Canada og Islands, og í því sam-
bandi skipi Ríkisstjórnin verzlunar um-
boðsmann héðan er mælt getur á is-
lenzka tungu, og búsetu hafi í Reykja-
vík.
Á Þjóðræknisþingi 25. febr. 1932.
Rögnv. Pétursson
Jónas Jónasson
Bergþ. E. Johnson.
Bjarni Finnsson lagoi til og Sig.
Vilhjálmsson studdi að nefndarálitið yrði
viðtekið í heild. Samþykt.
Álit bókasafnsnefndar lágu þá fyrir.
Nefndin hafði klofnað og las Friðrik
Sveinsson upp álit meiri hlutans og gerði
grein fyrir því, en ólafur S. Thorgeir3-