Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Side 100
80
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
að samkepni var höfð fyrir börn og ung-
linga í íslenzkulestri og framsögn. Fór
samkepni sú fram á samkomu, er haldin
var á sumardaginn fyrsta síðastliðið vor.
Tóku 16 börn þátt í samkepninni, og
var þeim skipt í fjórar deildir, frá 5 til
17 ára, með þriggja ára aldursbili. Verð-
laun voru veitt þeim börnum, er bezt
gerðu, $15.00 alls. Má fullyrða að öll
börnin leystu starf sitt sæmilega af
hendi og sum ágætlega, og hefir deildin
því fullan áhuga á að halda þessari sam-
kepni áfram, ef möguleikar leyfa.
Markverðasta sporið, er stigið hefir
verið á árinu er það, að byrjað var að
segja börnum til í íslenzku. Var það
starf byrjað með nóvembermánuði, og
er einni klukkustund á hverjum laugar-
degi varið til þess. Sýndi skólastjórn
bæjarins þá velvild ,að lána tvö her-
bergi í skólahúsi bæjarins til kenslunn-
ar endurgjaldslaust. Aðsókn að skólan-
um er nokkuð misjöfn, og mun fara
nokkuð eftir því, hvað er um að vera
í bænum um það leyti, sem skólinn
stendur yfir. Flest munu börnin hafa
verið í einu um 80, en fæst um 20. —
Steinþór Gunnlaugsson er var mörg ár
taarnakennari heima á gamla landinu,
hefir yfirumsjón með starfinu, og er
það drjúgur starfsauki að leggja á sig
fyrir ekkert. Naumast er að búast við
miklum sjáanlegum árangri af þessu
starfi eftir fáeinar vikur. En ef hægt
væri að halda því áfram í tvö eða þrjú
ár, myndi hér verða mikið af ungu
fólki, er væri reglulegir hestar í Is-
lenzku.
Bókasafn hefir deildin allstórt, en lít-
ið hefir verið fengið af nýjum bókum
á árinu. Aftur á móti hefir nokkru fé
verið varið til bókbands, og á þann hátt
ýmsar góðar bækur varðveittar frá
glötun.
Ekki man eg eftir fleiru að sinni, er
sérstaklega snertir deildina hér.
Sendir svo deildin þinginu sinar kær-
ustu kveðjur, með von um friðsama og
heillavænlega starfsemi.
Jón Jóhannsson.
Skýrsla fjármálaritara “Fróns”.
5. febr. 1932
Meðlimatala 1. febr. 1931 ........... 239
Nýir meðlimir ........................ 5
244
Sagt sig úr deildinni .............7
Dánir á árinu .................... 3
Skuldað sig úr deildinni ......... 7
— 17
Meðlimatala 5. febr. 1932 .......... 227
Hagskýrsla yfir meðlimagjöld.
Fyrir árið 1932 hafa borgað ......... 18
Fyrir árið 1932 skulda ............. 109
Fyrir árin 1931—1932 skulda ......... 40
Fyrir árin 1930-1931-1932 skulda .... 49
Fyrir árin 1929-1930-1931-1932
skulda ........................... 11
Félagatal ..... 227
Innheimt fé og skilað féhirði
frá 3. febrúar 1931 til 5. febrúar 1932:
Meðlimagjöld ..................$142.60
Kennaralaun frá foreldrum ...... 43.50
Ágóði af Islendingamótinu ..... 110.71
Barnasamkoma .................... 4.80
Meðtekið frá Þjóðræknisfélaginu 200.00
Samtals ............$501.61
Jón Asgeirsson.
Skýrsla
umferðakennara þeirra er þjóðræknis-
deildin “Frón” í Winnipeg réði til far-
kenslu barna og unglinga hér í borg á.
þessum yfirstandandi vetri, var þá lesin.
Skýrsla delldarinnar “Brúin”, Selkirk,
fyrir árið 1931.
Deild þessi telur nú 73 meðlimi. Af
þeim eru 68 fullorðnir, 3 unglingar og
2 börn.
8 starfsfundir og 5 skemtifundir hafa
verið haldnir á árinu.
80 unglingum hefir verið kend ls-
lenzka undir stjórn frú Rakelar Maxon,
Hafa þessar kenslustundir verið dável
sóttar og árangur góður.
Nú í vetur hefir deildin aftur ráðið
Mrs. Maxon. Hefir hún álíka marga nem-
endur og í fyrra.
Samkvæmt skýrslu féhirðis deildarinn-
ar voru : inntektir $257.58, en útgjöld
$199.25.
Th. S. Thorsteinsson,
skrifari.