Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Side 113
ÁRSÞING
93;
—(
skýrslurnar séu viðteknar með téðum
athugasemdum.
Winnipeg 26. febr. 1932.
Á. P. Jóhannsson.
B. E. Johnson.
Th. S. Thorsteinsson.
Ásgeir I. Blöndahl lagði til og Hall-
dór Gíslason studdi, að nefndarálitið yrði
tekið fyrir lið fyrir lið. Samþykt.
I. liður var samþyktur umræðulaust.
II. liður. — Séra Ragnar E. Kvaran
lagði til og Ásgeir I. Blöndahl studdi, að
þessi liður væri feldur. Tillagan var
samþykt með 28. atkvæðum gegn 24.
III. liður. — Halldór Gíslason lagði til
og R. E. Kvaran studdi, að þessi liður
væri borinn upp í tveimur greinum. -
Samþykt.
Fyrri málsgrein þessa liðs var sam-
þykt af þinginu, samkvæmt tillögu Jóns
J. Húnfjörð og Halldórs Gíslasonar; en
siðari málsgreinin feld .samkvæmt til-
lögu Halldórs Gíslasonar og Mrs. Byron.
IV. liður, málsgrein a. — Árni Egg-
ertsson mótmælti þessari málsgrein, og
taldi að það mundi bæði hafa verið
skilningur þingsins í fyrra og stjórnar-
nefndar, að fjármálaritari tæki að sér
starf sitt og skjalavörzlu fyrir $300 árs-
laun, enda hefði hann lýst því yfir i
þinginu, áður en til kosninga var geng-
ið að hann tæki ekki starfið að sér
fyrir minni laun. Urðu um þetta mál
allmiklar umræður. Ásmundur P. Jó-
hansson taldi að heimild hefði hvorlci
legið fyrir frá þingi eða stjórnarnefnd
að greiða þetta fé, og væri þetta því
bending um að láta slíkt ekki koma fyr-
ir oftar. Ragnar E. Kvaran taldi að
þingið í fyrra mundi ekki, að fenginni
yfirlýsingu frá ó. S. Thorgeirssyni, hafa
kosið hann í einu hljóði fyrir fjármála-
ritara, nema í því fælist sá skilningur,
að það væri ánægt með þau skilyrði er
hann setti. Sami hefði áreiðanlega ver-
ið skilningur stjórnarnefndarinnar. Væri
þingið beinlínis að svíkja af fjármála
ritara eftirstandandi laun hans 25 doll-
ara, ef það samþykti þessa málsgrein
nefndarálitsins. Séra Guðm. Árnason og
Friðrik Sveinsson tóku i sama streng.
Gerði þá séra Ragnar E. Kvaran tillögu
og Friðrik Sveinsson studdi, að þessi
málsgrein nefndarálitsins væri feld. Til-
lagan var samþykt með miklum meiri-
hluta.
Málsgrein b. — Séra Guðm. Árnasofr
taldi varhugavert að samþykkja þessa
málsgrein, með þvi að óvíst sé að fá-
anlegur verði nokkur maður til að
gegna starfanum fyrir $100 þóknun, og:
lendi þá stjórnarnefnd í vandræðum. Ás-
mundur P. Jóhannsson taldi að það-
mundi ekki vera neinum vandkvæðum.
bundið, og að jafnvel ætti að vera hægt
að fá þessi störf unnin fyrir ekki neitt.
Taldi væntanlegri framkvæmdarnefnd
vorkunnarlaust að ráða þessu máli til
lykta. Jón J. Húnfjörð mæltist til að'
væntanlegri stjórnarnefnd yrði falið að
greiða fram úr þessu máli. Gerði þá séra
Guðm. Árnason þá breytingartillögu við
þessa málsgrein, og séra Jóh. P. Sól-
mundsson studdi, að í staðinn fyrir $100'
kæmi: að væntanlegri stjórnarnefnd
verði falið að semja um þóknun fyrir
þenna starfa. Tillagan var samþykt.
Síðan var liðurinn samþyktur með þess •
um breytingum og nefndarálitið i heild:
samþykt með á orðnum breytingum.
Því næst var gengið til kosningar em-
bættismanna. Forseti Jón J. Bíldfell’
baðst undan endurkosningu, og sömu-
leiðis ritari dr. Rögnv. Pétursson. Áður
hafði og Árni Eggertsson neitað að gefa
kost á sér, -— en skorað var á þá í einu.
hljóði að taka endurkosningu. Voru síð-
an kosnir í einu hljóði:
Forseti: Jón J. Bíldfell.
Vara-forseti: séra Ragnar E. Kvaran.
Skrifari: Rögnv. Pétursson.
Varaskrifari: Benjamín Kristjánsson.
Fjármálaritari: ólafur S. Thorgeirsson
Varafjármálaritari: Bjarni Dalman.
Féhirðir: Árni Eggertsson.
Varaféhirðir: Ásmundur P. Jóhanns-
son.
Fyrir skjalavörð var stungið upp á
tveimur mönnum, Guðjóni S. Friðriks-
syni og Ásgeiri I. Blöndahl. Var þá
gengið til atkvæða og var Guðjón Frið-
riksson kosinn með 86 atkvæðum. Ás-
geir I. Blöndahl hlaut 64.
Einn yfirskoðunarmann þurfti að'
kjósa. Var stungið upp á Þorvaldi Pét-