Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Síða 114
94
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
urssyni, Walter Jóhannssyni og Davíð
Björnssyni.
Kosinn var Walter Jóhannsson með
52 atkvæðum. Þorvaldur Pétursson fékk
32 og Davíð Björnsson 15.
Þá var bókasafnsmálið tekið fyrir. —
Friðrik Sveinsson las upp svohljóðandi
nefndarálit:
Til forseta og þings Þjóðræknisfélagsins.
Vér sem settir vorum í nefnd í bóka-
safnsmálinu, lítum svo á að mjög æski-
legt væri að bókakostur Þjóðræknisfé-
lagsins sé sem allra fyrst gerður arð-
herandi fyrir félagsmenn og íslenzkan
almenning, ekki sízt hér í Winnipeg,
þar sem ekkert viðunanlegt bókasafn
er til, sem almenningur hefir aðgang
að.
Leggjum vér því til, að hinni nýju
stjórnarnefnd félagsins sé falið af þessu
þingi, að opna útláns-bókasafn í Winm-
peg, til afnota fyrir félagsmenn og ut-
anfélagsmenn, gegn hæfilegu gjaldi.
Að nefndin starfræki bókasafnið, eða
að öðrum kosti, ef henni lízt það hent-
ara, leiti samkomulags við deildina
Frón, um að deildin taki við bókunum
til umráða og starfræki safnið með
þeirri reglugerð er báðir aðilar kæmu
sér saman um.
Friðrik Sveinsson.
John Asgeirsson.
Ragnheiður Davidson.
H. Gíslason.
rt. S. Thorgeirsson.
Um málið urðu talsverðar umræður.
Jón Ásgeirsson skýrði frá hugmyndum
þeirra, er sent hefðu bréf inn á þingið
um lestrarfélagsstofnun, og kvað að þeir
mundu sáttir á að Frón tæki bóka-
safnsmálið í sínar hendur.
Guðmundur Jónsson frá Vogar lagði
til og Th. S. Thorsteinsson studdi, að
nefndarálitið yrði viðtekið óbreytt. —
Halldór Gíslason taldi nauðsynlegt að
kjósa aðra nefnd í málið, með því að .
stjórnarnefndir undanfarandi ára hefði
verið aðgerðalitlar í málinu. Fyrirspurn-
ir komu fram um það, hvort ætlast væri
til að bækur þær, sem félagið ætti nú
von á að heiman, ættu einungis að
leggjast til deildarinnar Frón í Winni-
peg, eða skiftast milli deilda út um land-
ið. Friðrik Sveinsson skýrði frá því,
að sá bókakostur, sem félagið hefði átt
til þessa, hafi verið svo fáskrúðugur,
að naumast hafi verið gerlegt að opna
bókasafn. Nú sé von á allmyndarlegri
bókasendingu af nýjum bókum, og sé
þá kominn visir að bókasafni, sem sjálf-
sagt sé að starfrækja, eins fljótt og
bækurnar séu bundnar eða komnar í
það horf, að þær séu hæfar til útlána.
Eins og nefndarálitið beri með sér
sé það ekki tilætlun bókasafnsnefndar-
innar að Þjóðræknisfélagið afhendi deild-
inni Frón bækur sínar til eignar, heldur
aðeins til umsjónar og afnota, og telji
nefndin það sanngjarnt að deildir út
um land njóti sömu réttinda og geti
einnig fengið bækur til láns, eftir því
sem þær óska og hægt sé að uppfylla.
Halldór Gíslason gerði þá viðaukatillögu
og Þorleifur Hansson studdi, að kosin sé
þriggja manna nefnd af þingheimi, til
að starfa í málinu. Tillagan var feld
með 24 atkvæðum gegn 15.
Var þá tillaga Guðmundar Jónssonar
og Th. S. Thorsteinssonar borin upp og
samþyltt.
Þá lá fyrir endurskoðað og aukið
nefndaiálit útbreiðslunefndar og var
lesið upp af séra Guðm. Árnasyni:
Nefndarálit útbreiðslunefndar.
Nefnd sú, sem sett var í útbreiðslu-
málinu, leyfir sér að leggja fyrir þingið
eftirfylgjandi skýrslu.
I.
Með þvi að íþróttafélagið “Falcons"
hefir farið þess á leit að komast í sam-
band við Þjóðræknisfélagið, leggur
nefndin til að það sé veitt með eftir-
fylgjandi skilyrðum: Þeir af meðlimum
“Falcons”, sem kjörgengir eru í Þjóð-
ræknisfélagið samkvæmt 15. grein, b-
lið, grundvallarlaga þess, gerast félagar
í því og eru venjulegir félagar i íþrótta-
félaginu; aðrir félagar íþróttafélagsins
verða aukafélagar (associate members'
í því, og hafa að sjálfsögðu hvorki at-
kvæðisrétt né kjörgengi í Þjóðræknis-
félaginu.
Nefndin er þeirrar skoðunar, að Þjóð-
ræknisfélagið og stjórnarnefnd þess ættu
að hlynna að iþróttafélaginu eftir föng-
um og hvetja það i starfi þess.