Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1963, Side 138

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1963, Side 138
120 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA halds útgáfu þessa gagnmerka rits, sem bæði á sér mikið og varanlegt ætt- fræðilegt og menningarsögulegt gildi, og er um leið sterk stoð undir brú ætt- ernis og erfða yfir hafið. Gömlu máli ráðiS til lykia Eins og mörgum af ykkur mun reka minni til, samþykkti þjóðræknisþingið 1957 tillögu frá þáverandi stjórnarnefnd félagsins þess efnis, að væntanlegri stjórnarnefnd væri heimilað að afhenda The Mariners’ Museum í Newport News, Virginia, í Bandaríkjunum, Leifs Ei- ríkssonar styttuna, sem nú hefir verið geymd þar í meir en 20 ár. En stytta þessi er eirsteypa af hinni miklu styttu Leifs, sem Bandaríkin sæmdu fsland að gjöf Alþingishátíðarárið 1930. Gekkst Þjóðræknisfélagið á sínum tíma fyrir því, að fjársöfnun fór fram meðal ís- lendinga vestan hafs til þess að greiða kostnaðinn við að láta gera umrædda eirsteypu, og stóð hún upprunalega fyrir framan skála íslands á Heims- sýningunni í New York borg 1939. Af ýmsum ástæðum hefir orðið drátt- ur á því, að styttan væri afhent safn- inu, en í sumar vakti forseti máls á því á stjórnarnefndarfundi, að tími væri kominn til þess að ráða þessu máli til lykta í samræmi við fyrrgreinda sam- þykkt þjóðræknisþings, en endurtekin var á þinginu 1961. Fól stjórnin þeim forseta og féhirði félagsins, Gretti L. Johannson ræðismanni, að annast um afgreiðslu málsins. Eftir að hafa ráð- fært okkur við heiðursfélaga og velunn- ara félags vors, Ambassador Thor Thors í Washington, og notið góðra bendinga hans, og einnig haft samband við annan heiðursfélaga vorn og hollvin, Guðmund Grímsson, fyrrum dómstjóra hæstarétt- ar, í Bismarck, N.Dakota, sem frá byrj- un hefir verið í nefnd þeirri, er fjallaði um þetta mál, tilkynntum við, í umboði stjórnarnefndar og nafni félagsins, með bréfi til forstjóra The Mariners’ Museum, Rear Admiral George J. Dufek, IJSN (Ret.), dags. 28. janúar s.l., að Leifs- styttan væri þar með formlega afhent safninu til varðveizlu um óákveðinn tíma. Var sending umrædds bréfs áður samþykkt með einróma atkvæðum stjórnarnefndarinnar. Teljum vér, að málinu sé með þessari ráðstöfun far- sællega til lykta ráðið, því að á þessu mikla og fjölskrúðuga safni, sem helgað er sæfarendum og sjóferðum að fornu og nýju, á stytta Leifs Eiríkssonar á- gætlega heima. Stendur hún á mjög áberandi stað við safnið og þar skoða hana tugþúsundir manna árlega. En á málmskildi framan á styttunni er skýru letri skráð, að hún sé af íslendingnum Leifi Eiríkssyni, er fyrstur Norðurálfu- manna steig á strönd Norður-Ameríku. Er styttan því hin ágætasta lands- og þjóðarkynning fyrir oss fslendinga. úigáfumál Tímarit félagsins kemur í ár, eins og nokkur síðustu árin, út undir sameig- legri ritstjórn þeirra Gísla skálds Jóns- sonar og Haraldar prófessors Bessason- ar. Þökkum vér þeim prýðilegt starf þeirra. Vegna hækkandi prentunarkostn- aðar, og af öðrum ástæðum, gerist út- gáfa ritsins stöðugt meiri erfiðleikum háð fjárhagslega. Hefir stjórnarnefndin rætt það mál, og sérstök nefnd af henn- ar hálfu, skipuð þeim Guðmanni Levy fjármálaritara, Gretti L. Johannson fé- hirði og Haraldi Bessasyni ritara félags- ins, mun koma fram með tillögu um út- gáfu ritsins. En margoft hefi ég og aðr- ir lagt áherzlu á það, hve mikilvægur þáttur og varanlegur útgáfa Tímariisins er í starfsemi félagsins. Eins og að undanförnu hefir Þjóð- ræknisfélagið aftur á liðnu ári stutt útgáfu hins íslenzka vikublaðs vors með $500.00 fjárframlagi, og munu allir sam- mála um, að það sé hin ágætasta þjóð- rækni. Eins og þið vitið öll, átti Lög- berg nýlega 75 ára afmæli. Vil ég nú úr forsetastóli endurtaka þakkir þær og kveðjur, sem ég af félags vors hálfu, birti í afmælisblaðinu, sem út var gefið af fyrrnefndu tilefni, en þær veit ég bergmála hug þingheims og félagsfólks vors. Skýrslu embættismanna, nefnda og deilda Skýrslum féhirðis, fjármálaritara og skjalavarðar verður venju samkvæmt útbýtt á þinginu. Ennfremur verða lagðar fram skýrslur milliþinganefnda í skógræktar- og minjasöfnunarmálinu. Nefndina í hinu fyrrnefnda máli skipa frú Mrja Björnsson, Ólafur Hallson vara- fjármálaritari og Jakob F. Kristjánsson skjalavörður, en í hinni síðartöldu nefnd eiga sæti Jakob Kristjánsson, frú Hólm- fríður Danielson varaféhirðir, og frú Kristín Johnson. Samkvæmt fyrirmæl- um, síðasta þjóðræknisþings, tók stjóm- arnefndin til ítarlegrar athugunar, hvort unnt væri að láta gera og koma fyrir í þinghúsi Manitobafylkis minnis- merki um íslenzka landnámsmenn í fylkinu og fyrsta leiðtoga þeirra Sig- trygg Jónasson. Sérstök nefnd fjallaði um þetta mál af hálfu stjórnarnefndar, en í henni voru: Walter J. Lindal, Grett- ir L. Johannson og frú Hólmfríður Dan- ielson. Komst nefndin að þeirri niður- stöðu, að heppilegast væri, undir nú- verandi kringumstæðum, að fresta
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.