Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Side 48
30
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
við gamla árið, sízt þessa síðustu
viku. Leiðinlegustu jól og gamlárs-
kveld, sem ég hafði lifað — Good
bye —
Nýársdagur, 1881.... Við B.
Bjarnason og Loftur gengum að
Gröf að vitja um hrossið, svo að
Glæsivöllum. Bjarni og ég spiluðum
þar um kveldið.“
Allan janúar hefir Páll enga
vinnu. Hann er þarna hjá ísl., en
fer af og til til Minneota. Veður er
hið versta allan mánuðinn. Einn
daginn stakk hann sig á nagla. „Ég
lá upp í rúmi í allan dag með ólund
og verkjum.“ Síðustu dagarnir af
jan., eru slæmir. „Alla dagana hríð
og djöfulgangur svo allt ætlar að
fenna í kaf. Margir í vondu skapi á
þeim dögum.
Febrúar. Frá 1.-7., hríð á hverjum
degi, ekki frostmikið, en fjarska
snjókoma, kominn snjór að 20. fet-
um. Menn eru að verða bjargar-
eldviðar- og heylausir. Ljótar kring-
umstæður í sjálfri Ameríku! „Góð-
ar stundir!“
Allan febr., er hann hjá vinum
sínum því ekkert er hægt að gera
fyrir snjó. Ef eitthvað er farið bæja
á milli þá er farið á skíðum.
„27. febr.... Ég fór til Óla Arn-
grímssonar.... Þar dansaði ég, og
átti þó bágt með, því ég var slæmur
í fætinum. En nú dugði engin afsök-
un því kvenþjóðin var svo fjörug
... Ég borgaði næturgreiðann hjá
Óla með eldspýtum!!! ... Far vel
febrúar! Ég hef aldrei séð annan
eins mánuð á ævi minni, sama
vonzkan, snjókoma og hvassviðri.
Ómögulegt að komast um jörðina
nema á skíðum. Almenn kvörtun
um eldiviðar-, hey- og matarleysi.
Engin járnbrautarlest, flestu ekið á
skíðasleða.“
Marz er allur eins, ófært veður
flesta daga. í þeim mánuði vann
Páll aðeins einn dag. Apríl er svip-
aður...... Öllum farið að ofbjóða
veðráttan! Atvinna fæst þó við
snjómokstur en marga daga er ekki
hægt að vinna fyrir bleytuhríð og
vonzkuveðri. „ ... Lítil vinna nema
halda tímann“. Á páskadag
skemmta þeir sér við að skjóta úr
skammbyssum „ ... Ég gjörði það
bezt.“
„19. apríl. Rigndi... Yellow Medi-
cine river braut sig upp um kveldið
með framúrskarandi aðgangi, allt í
uppnámi. —
20. apríl. — Þoka, logn og þíða.
Þá kom snjóplógurinn með alla sína
púka. Mikið um dýrðir því allar
leiðir voru ófærar.
Sumardagurinn fyrsti.... Vinna
er létt, rétt að renna fram og aftur
eftir brautinni. Járnbrautarlestin
kom hér fyrst í dag eftir fjögra
mánaða útivist og voru allir stór-
fegnir sem nærri má geta. 22. apríl.
Hláka, öll vötn orðin vitlaus og
brýrnar að fljóta burt af járnbraut-
inni, engin lest kom. Vinna sú
sama.“
Páll hættir að vinna á járnbraut-
inni 5. maí og byrjar að vinna hja
T. Hanson. „ ... Ég er ráðinn til árs
fyrir $15.00 á mánuði. Var að
hreinsa hesthús og í kring um húsið
— allan daginn í skítverkum ...“
Hanson hefir búð og vínsölu og
eftir þetta er hann ýmist í búðinni
eða við vínsöluna og virðist ekki
mjög ánægður með stöðuna. „ ... Ég
er óttalega leiður á vinnunni,
selja vín fyrir þræl, það tekur blóð