Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Blaðsíða 49
DAGBÓKARBROT
31
Ur heilu holdi. Þessi mánuður sá
íeiðinlegasti, sem ég hef lifað. ...
■Mér líkar alltaf ver og ver við hús-
bóndann, skammaði hann næstum
a hverjum degi. Ég skildi við hann
a laugardaginn og fór til Jóhannes-
ar Frost.... Við höfðum messu í
Minneota á sunnudagskveldið.“
Allan júní vinnur hann dagvinnu
fyrir hina og þessa, mest við að
hlaða í járnbrautarvagna, hveiti,
borð eða eldivið. Hitinn er ákaflega
mikill og vinnan óstöðug. „ ... Yfir-
taks hiti, lítið um vinnu. Ég vann
mer bara inn 25c ... Engin vinna.
% fór til Marshall í kveld með
hest og smávagn og hafði ljómandi
fallega jómfrú með mér þar ofaní
auPið. Ég var samt náttúrlega ótta-
e§a skikkanlegur. Ég var hjá Han-
Son um nóttina, lítið um dýrðir.“
} júlí er sama og engin vinna, en
ail vinnur við hvað sem hægt er
fá, hleður hveiti í járnbrautar
Vagna, gerir við stræti, slær illgresi,
§refur kjallara með Frost og „ég
Þv°ði bugey fyrir Coats.“ Ekkert
Verk er svo lítilfj örlegt, að hann
ak' það ekki heldur en að vera
viunulaus.
byrjaði að plægja hjá G.
með hjólaplóg og gekk
lvaði mikið og var reiður
" það rigndi um kveldið.“
, Hann vinnur þarna meðan plæg-
mg endist og fer svo að aka heyi
á landi í tvo daga og þá byrjar
veitisláttur. Tíðin er óhagstæð og
Vluna fæst bara dag og dag.
”13. ág.... Mikill kuldi í morg-
n ég skalf þegar ég kom á fætur.
. 16. ág. — Rigndi mikið um nótt-
ha. Engin vinna. Ég fór til Minne-
a uiestur hiti á sumrinu 108 gr.,
•. .. Ég
Jaeobson
iila.
í skugga ... Rigndi alla nóttina og
allan daginn ... Ég fór til Minneota
og var við messu hjá séra H. Briem
... Ég fór til Eagle Lake (150 míl-
ur,) var að semja um viðarkaup,
gekk allvel.“
September byrjar með sólskini og
hita, en það er of blautt til að vinna
og Páll fer norður til Lofts. „ ...
Rigning og kuldi svo mönnum lá
við að skjálfa. Engin vinna ... Óllif-
andi fyrir kulda.... Snjóaði í kveld
milli kl. 10-11. Ég flutti prestinn,
veikan, til Minneota í smá vagni.
„19. sept. — Forseti Bandaríkj-
anna dó kl. 10:35 e. h. í dag. 20. sept.
— Sólskin, ég að stakka hey fyrir
G. Jacobson. Mikill sorgardagur um
öll Bandaríkin. Sorgarflagg á hverju
húsi í bænum.“
Frá því í október og fram í marz
1882 gengur allt sinn vana gang.
Veður vont og lítið um vinnu. Páll
selur við af og til og vinnur við
smásnatt hjá hinum og þessum.
Engin tilbreyting virðist vera nema
„ ... Danssamkoma hjá Óla Arngr.
þar sem ísl. frá Marshall og Minne-
ota hópuðu sig saman og ég fór
með.... Tombóla og ball á þrett-
ánda.“ Páll heldur að miklu leyti
til hjá J. Frost. „... Ég gerði upp
við Frost, borgaði honum borðið
mitt til 12. jan. $58.00. ... Við
Stefán gengum upp til Gunnlaugs
á „Himnahæð“ á fund ísl. í Lincoln
City., til að ræða um prest mál
eftirleiðis. Ég hélt þar allharða
ræðu, og brýndi fyrir mönnum að
halda prest áfram og láta sér far-
ast vel við hann. Ég var heldur
berorður, en kom ár minni vel fyr-
ir borð.. Fundurinn var fjörugur
og „endalykt“ góð.“ ...