Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Page 30
28 Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000
Viðfangsefni Orðanefndar er að koma upp íðorðasafni fyrir
hverja grein byggingarverkfræðinnar samkvæmt verkreglum
íðorðafræðinnar, svo sem Islensk málstöð ráðlagði nefndinni í
upphafí og tíðkast m.a. í íðorðastofnunum í Svíþjóð og Finnlandi
og á vegum UNESCO og ISO.
Mengi faglegra hugtaka er uppistaðan í hverri fræðigrein.
Iðorð er heiti á faglegu hugtakf. Merkingu íðorðs er lýst í skil-
greiningu hugtaksins. Iðorðafræði íjallar um hugtök, vensl hugtaka
innbyrðis og hvernig hentugt er að skilgreina hugtök á einhlítan
hátt með inntaki og umtaki. Ef íðorð vantar er mikilvægt að skil-
greina hugtakið áður en íðorð er búið til því þannig verður orð-
smíðin markvissari og nýtt íðorð auðskildara. Meiri áhersla er
lögð á það í íslensku en öðrum kunnum tungum að íðorð sé
auðskilið - og er það vel.
Árið 1999 störfuðu tólf verkfræðingar í nefndinni, en þeir
voru: Benedikt Halldórsson verkfræðingur, Verkfræðistofnun
Háskóla íslands, Bjami Bessason, dósent, Háskóla Islands, Bragi
Þorsteinsson ráðgjafarverkfræðingur, Einar B. Pálsson prófessor
emeritus, Eymundur Runólfsson yfírverkfræðingur, Vegagerðinni,
Gísli Valdimarsson verkfræðingur, VSB Verkfræðistofu,
Guttormur Þormar, fyrrv. yfírverkfræðingur, Ólafur Jensson, fyrrv.
bæjarverkfræðingur, Páll Flygenring, fyrrv. ráðuneytisstjóri,
Ragnar Sigbjömsson prófessor, Háskóla Islands, Sigmundur Freysteinsson yfírverkfræðingur,
Landsvirkjun og Sigurður Erlingsson prófessor, Háskóla íslands.
Formaður nefndarinnar er Einar B. Páisson. Hann hefur jafnframt frá upphafí verið rit-
stjóri íðorðasafna sem nefndin vinnur að og undirbýr efni sem hún ijallar um á fundum.
Hann hefur vinnuaðstöðu í húsi Verkfræðideildar og Raunvísindadeildar Háskólans, þar
sem bókasafn deildanna er. Frá ársbyrjun 1993 hefúr Ólafúr Jensson unnið samfellt með
Einari að íðorðasafninu og m.a. lagt tölvu sína til verksins. Aðrir nefndarmenn hafa fyrst og
fremst starfað á vikulegum fúndum nefndarinnar.
Islensk málnefnd hefur lagt orðanefndinni til málfræðing til ráðuneytis, dr. Halldór
Halldórsson, prófessor. Hann lést 5. apríl 2000 en starfaði samfellt með nefndinni frá 16.
febrúar 1982. Hans er minnst með virðingu og þökk fyrir ómetanlegt framlag í þágu málvönd-
unar í íslenskri verkfræði.
Ýmsir aðrir sérfræðingar komu á fúndi nefndarinnar eða lögðu henni lið. Skulu hér
einkum nefndir lyíjafræðingamir Axel Sigurðsson og Finnbogi R. Hálfdanarson á sviði
efnafræði.
Orðanefnd byggingarverkfræðinga starfar í tveimur vinnuhópum, A og B.
Vinnuhópur A: I honum voru á árinu 1999 Bragi Þorsteinsson, Einar B. Pálsson, Eymundur
Runólfsson, Gísli Valdimarsson, Guttormur Þormar, Ólafúr Jensson, Páll Flygenring og
Sigmundur Freysteinsson.
Fundir voru reglulega einu sinni í viku, síðdegis á þriðjudögum, nema um hásumarið.
Þeir voru haldnir í húsakynnum Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68. Enn sem íyrr á
Orðanefnd Landsvirkjun þökk að gjalda fyrir gestrisnina og Vegagerðinni íýrir fyrirgreiðslu
vegna fundahaldanna.
Vinnuhópurinn hélt 30 fundi árið 1999 og hafði í árslok alls haldið 638 fúndi frá 1980.
Einkum var unnið að því að búa íðorðasafnið uin fráveitur, úrgangsumsýslu, umhverfismál
Halldór Halldórsson
prófessor lést 5. apríl
2000. Árið 1994 sœmdi
VFI Halldór gullmerki
félagsins fyrir störf
hans að iðorðasmíð á
sviði verkfræði. (Ljósm.
Jim Smart)