Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Side 87
Félagsmál VFÍ/TFÍ 85
1.4.4 Lífeyrissjóður verkfræðinga
Ársskýrsla stjórnar LVFÍ 1999
Stjórnartímabilið 31. maí 1999 til 22. maí 2000
Afkoma sjóðsins árið 1999
Arið 1999 er það langbesta í rekstri sjóðsins frá upphafi. Afkoma sjóðsins var afar góð.
Fjárfestingatekjur voru 2.246 milljónir króna og höfðu hækkað um 1.427 milljónir króna
eða um 174% á milli ára.
Ávöxtun var afar góð á erlendum mörkuðum, þó að verulega miklar sveiflur væni á
mörkuðunum síðari hluta ársins. Fjárfesting í verðbréfum hjá Morgan Stanley bar uppi
ávöxtun ársins, en hlutabréfin skiluðu 46% hækkun í dollurum frá upphafi til loka árs á móti
32,8% árið áður, sem er 52% ávöxtun í íslenskum krónum eða 44% raunávöxtun.
Convertibles-skuldabréfin skiluðu 14% hækkun í dollurum á móti 34% árið áður, sem svarar
til 19% ávöxtunar í íslenskum krónum eða 12,7% raunávöxtunar. Hlutabréfasjóðurinn hjá
Gartmore skilaði 32% hækkun í dollurum, sem svarar til 38% ávöxtunar í íslenskum krónum
eða 31% raunávöxtun. Við höfum nú fengið tvö afbragðsgóð ár í röð í erlendri ljárfestingu
og erum mjög ánægð með það. Við skulum samt vera minnug þess að slök ár geta líka
komið.
íslensku hlutabréfin skiluðu mjög góðri afkomu á árinu 31% ávöxtun eða 24,5%
raunávöxtun.
Raunávöxtun lífeyrissjóðsins miðað við neysluverðsvísitölu er 22,16% árið 1999, sem er
um tvöföldun frá fyrra ári, en hún var þá 11,12%.
Iðgjöld til sjóðsins hækkuðu um 92,7 milljónir króna á milli ára og voru 711 milljónir
króna, sem er 15% hækkun á milli ára. Hrein eign til greiðslu lífeyris hækkaði á árinu um
2.826 milljónir króna eða um 37,9%, og var í árslok 10.277 milljónir króna.
Rekstrarkostnaður hækkar á milli ára um 3,6 milljónir króna, úr 17,7 milljónum króna í
21,3 milljónir króna eða um 20,2%.
Rekstrarkostnaður sem hlutfall af meðaleign lækkar úr 0,26% í 0,24% af meðaleign
sjóðsins.
Laun og launatengd gjöld hækkuðu um 1.719 þúsund krónur eða um 10,2% en nýir
starfssamningar voru gerðir við starfsfólk sjóðsins. Annar kostnaður hækkaði um 4.468
þúsund krónur eða 32,3%. Þar af var kostnaður vegna flutnings og standsetningar nýs hús-
næðis 3.212 þúsund krónur og hækkun kostnaðar við lögfræðilega aðstoð 1.018 þúsund
krónur. Málskostnaður var 500 þúsund krónur og greiðsla til Fjármálaeftirlits 445 þúsund
krónur og koslnaður við aðkeypta sérfræðiþjónustu 808 þúsund krónur. Unnið var að
umskrift forrita úr DOS yfir í Windows-umhverfi. Reynt er að gæta aðhalds í kostnaðarút-
gjöldum svo sem kostur er.