Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Blaðsíða 147
Tækniannáll 1999/2000 145
samvinnu við Slovgeoterm sem er að hluta í eigu Virkis. Virkir hefur unnið í samstarfi við
CFG frá Frakklandi að hagkvæmniathugun og er því verki lokið. Unnið er að fjármögnun
hitaveitunnar og þrátt fyrir að dönsk fyrirtæki hafi komið inn í verkefnið er líklegt að Virkir
eigi möguleika á að fá hluta þess. Það er þó háð því hvemig ijármögnun þess leysist.
SOGEO á Azoreyjum réði Virki til að hanna nýtingu á skiljuvatni frá Pico Vermehlo
stöðinni fyrir ostagerð. Þessu verki lauk á árinu 1999.
CFG í Frakklandi réð Virki einnig til þess að hanna tengingar á nýjum borholum á
Bouillante-jarðhitasvæðinu á Guadeloupe í Karabíska hafínu. Verkefnið fór í bið og var
endurskipulagt og er búist við að hönnunin hefjist fljótlega á árinu 2000.
Ormat Inc. í ísrael réð Virki til ráðgjafar á jarðhitasvæðinu Momotombo í Nicaragua og
hófst það verkefni i árslok 1999.
Virkir hélt áfram vinnu að öflun verkefna á fjölmörgum öðram stöðum svo sem í Kenýa,
Tyrklandi, Rússlandi og víðar. I þessu skyni voru unnin nokkur tilboð án þess að það skilaði
beinum árangri í verkefnum.
Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna
Jarðhitaskólinn var settur í tuttugasta og fyrsta sinn 30. Apríl 1999. Nemendur voru fnnmtán
og komu frá E1 Salvador (1), Eþíópíu (2), Filippseyjum (1), íran (2), Jórdaníu (2), Kenýa
(1), Kína (2), Kostaríka (1), Póllandi (1) og Túnis (2). Meðal nemenda voru þrjár konur, frá
E1 Salvador, Filippseyjum og Kína. Fjórtán nemendur luku námi, í forðafræði (4), verkfræði
(4), efnafræði (2), umhverfisfræði (2), borverkfræði (19 og jarðeðlisfræði (1). Allir nemendur
vora kostaðir af HSþ og íslenskum stjómvöldum. Að þessu starfsári loknu hafa 227 verk-
fræðingar og raunvísindamenn frá 35 löndum lokið sex mánaða sérhæfðu námi við skólann.
Þar hafa verið 30 konur (13%). Nemendurnir hafa komið frá Afríku (26%), Asíu (45%),
Mið- og Austur-Evrópu (14%) og Rómönsku Ameríku (15%).
Kennslan árið 1999 var einkum í höndum sérfræðinga Rannsóknarsviðs Orkustofnunar,
en einnig komu þar að sérfræðingar ffá Háskóla Islands, Veðurstofu Islands, Garðyrkjuskóla
ríkisins, verkfræðistofunum Vatnaskilum og Rafhönnun, Hollustuvernd ríkisins,
Landgræðslu ríkisins, Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, öðrum verkfræðistofum og
hitaveitum.
Árbók Jarðhitaskólans 1988 með rannsóknarskýrslum nemenda (499 bls.) var gefin út á
árinu 1999, auk bókar með erindum fluttum á tuttugu ára affnælisráðstefnu Jarðhitaskólans
1998 (185 bls.).
Árlegur gestafyrirlesari var Michael Wright, prófessor og varaforstöðumaður Orku- og
jarðvísindastofnunar Utah-háskóla í Bandaríkjunum. Hann er forseti Alþjóða jarðhitasam-
bandsins. Hann flutti röð fýrirlestra um jarðhita í Bandaríkjunum og um stöðu jarðhitamála
í heiminum. Voru þeir fjölsóttir. Aðrir erlendir fyrirlesarar komu frá Bandaríkjunum,
Bretlandi, Italíu, Nýja-Sjálandi, Rússlandi og Tékklandi, en þeir komu til landsins á
alþjóðlega ráðstefnu. Meðal erlendra gesta sem jarðhitaskólinn greiddi götu á árinu var
sendinefnd á vegum borgarstjórnar Tianjin í Kína. Undirritaður var samningur milli Tianjin-
borgar og Orkustofnunar um samstarf við þjálfun jarðhitasérfræðinga frá Tianjin svo og
aðstoð við rannsóknir og nýtingu jarðhita í Tianjin. Að vanda heimsóttu skólann sendi-
herrar nokkurra erlendra ríkja.