Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Blaðsíða 119
Tækniarmáll 1999/2000 117
í heild bötnuðu viðskiptakjör vöruvið-
skipta á árinu 1999 um 0,2%, sem er töluvert
hagstæðari niðurstaða en gert var ráð fyrir í
fyrri spá.
Hækkun raungengis hefur verið töluverð á
síðustu árum, þótt það sé enn lægra en á
árunum 1992-1993. Raungengi mælir hversu
hátt verðlag er hér á landi miðað við verðlag í
helstu viðskiptalöndum okkar og er því mikil-
vægur mælikvarði á umhverfi utanríkis-
viðskipta. Raungengi var stöðugt á árunum
1995 og 1996, en tók að hækka á árinu 1997.
Raungengi er mælt á tvo mælikvarða. Annars
vegar er það miðað við neysluverð og hins
vegar við launakostnað á framleidda einingu.
Þar sem laun hafa hækkað meira en verðlag
hér á landi síðustu ár hefur raungengi á kvarða
launakostnaðar hækkað um nálægt 7,8% frá
1996 til 1999 samanborið við 4,6% hækkun á kvarða verðlags. Vegna aukinnar verðbólgu
hækkaði raungengi miðað við verðlag um 2% milli áranna 1998 og 1999 á meðan raungengi
miðað við launakostnað hækkaði um 1,2%.
Hækkun raungengis hefur verið töluverð á síðustu árum, þótt það sé enn lægra en á
ámnum 1992-1993. Raungengi mælir hversu hátt verðlag er hér á landi miðað við verðlag
í helstu viðskiptalöndum okkar og er því mikilvægur mælikvarði á umhverfi utanríkis-
viðskipta. Raungengi var stöðugt á árunum 1995 og 1996, en tók að hækka á árinu 1997.
Raungengi er mælt á tvo mælikvarða. Annars vegar er það miðað við neysluverð og hins
vegar við launakostnað á framleidda einingu. Þar sem laun hafa hækkað meira en verðlag
hér á landi síðustu ár hefur raungengi á kvarða launakostnaðar hækkað um nálægt 7,8% frá
1996 til 1999 samanborið við 4,6% hækkun á kvarða verðlags. Vegna aukinnar verðbólgu
hækkaði raungengi miðað við verðlag um 2% milli áranna 1998 og 1999 á meðan raungengi
miðað við launakostnað hækkaði um 1,2%.
Vöruútflutningur: Vömútflutningur jókst töluvert á árinu 1999 og nam 145 milljörðum
króna sem er aukning um 7,4% að raunvirði frá fyrra ári. Þar af nam útflutningsframleiðsla
138,9 milljörðum króna og jókst um 5,3% frá fyrra ári. Mismunurinn, 6,1 milljarður, liggur
í útflutningi skipa og flugvéla en hann var óvenjumikill á árinu 1999. Til samanburðar nam
hann 2,3 milljörðum króna á árinu 1998.
Hlutur sjávarafurða i vöruútflutningi minnkaði umtalsvert frá 1998 til 1999, eða úr 73%
í 67%. Raunar hefúr hlutur sjávarafurða ekki verið svo lítill á heilu ári fyrr.
Utflutningur sjávarafurða dróst saman um 1,1% milli áranna 1998 og 1999, en útflutn-
ingur áls og kísiljárns jókst um 22,8%. Árið 1999 var fyrsta heila ár Norðuráls í framleiðslu
og á síðasta ársfjórðungi var þriðji ofn Járnblendiverksmiðjunnar tekinn í notkun. Útflutn-
ingur á öðrum iðnaðarvörum jókst einnig töluvert, eða um 19%. Af einstökum liðum má
nefna útflutning á rafeindavogum að verðmæti 1,6 milljarðar króna sem er 65% raunaukn-
ing frá fyrra ári. Þá er 56% aukning í útflutningi á lækningatækjum og er útflutningur þeirra
110
105
100
95
90
1990 1992 1994 1996 1998
Raungengi krónunnar miðað við hlulfalls-
legt neysluverð og launakostnað. Vísitölur
990=100. Heimild: Þjóðhagsstofnun.