Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Page 348
346 Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000
lækka rakastig í steini í mannvirkjum, þ. e. með því að hamla gegn háræðaísogi en hindra
ekki útgufun. Ennfremur er að sjá að húðir málningar, eins og í flokki LP, sem er sérstak-
lega samsett til þess að hafa lítið viðnám gegn gufustreymi út úr steyptum veggjum, hafí í
för með sér jafnhátt rakahlutfall og mælist í sýnatökuveggjum með vatnsfælu einvörðungu
eða án nokkurra yfírborðsefna að utan.
A hinn bóginn virðist Sc að jafnaði hafa umtalsvert lægra gildi í steypu veggja, sem
hefur húð í flokki LA eða VG, en báðar þessar megingerðir eru þekktar fyrir að vera allgufu-
þéttar. Málningarflokkur VP leiðir samt sem áður til lægstu meðalgilda Sc, a. m. k. ef
tilvikið VPsi er ekki tekið með. Húðir þessarar gerðar á sýnatökuveggjunum reyndust yfír-
leitt talsvert þykkar og stafar það af endurmálun nokkrum sinnum á löngu tímabili. Engu að
síður er málning af VP-gerð, rétt eins og af LP-gerð, sérstaklega markaðssett til nota á stein-
veggi húsa að utan, vegna þess að mælingar hafa verið taldar sýna að viðnám húða þeirra
gegn gufustreymi væri það sem álitið hefúr verið nægjanlega lítið.
Auk niðurstaðnanna í töflu 1 var u og uc mælt og Sc reiknað síðar fyrir ystu 2 cm sneiðar
kjarnanna, sbr. mynd 1. Þar eð bora þurfti kjamana út í þurrviðri, og þar sem veður var mis-
þurrt dagana fyrir sýnatöku úr hinum ýmsu veggjum, var því ekki að treysta að þessar
sneiðar gæfu rétta mynd af ástandinu. Því hafði fyrirfram verið ákveðið að taka þær ekki
með, enda kom á daginn að hlutfall Sc miðað við hinar sneiðarnar þrjár var afar mismunandi
eftir sýnatökuveggjum. Að meðaltali fýrir alla húðuðu veggina, sem og þá vatnsfælubornu,
var Sc-gildið um 25% lægra, en nokkru innan við 10% lægra fyrir veggina án yfírborðs-
efna. [10]
Mælingar á viðnámi gegn gufustreymi
Hér á landi sem annars staðar í norðvestur Evrópu hafa hönnuðir og ráðgjafar yfírleitt virst
miða við að húðir til nota á steypta veggi utanhúss hefðu ekki meira viðnám gegn vatnsgufu-
streymi, //, en 2 til 3 GPa-s-m2/kg fyrir 100 til 200 fim þykka húð. Tilgreind gildi fyrir VP-
gerðina eru yfirleitt um eða undir þessum mörkum og af svipaðri stærð og fyrir LP-gerðina.
Gufuflæðisviðnám málningarhúða er venjulega mælt á lausum húðum, gjaman með
svonefndri bolla- eða skálaraðferð, eins og lýst er t. d. í staðli ASTM D 1653. Það er
dæmigert að viðnámsgildi eins og þau sem hér hafa verið tilgreind fyrir húðir í flokkum VP
og LP fáist með slíkri mæliaðferð [6; 7].
Arið 1995 var viðnám nokkurra yfírborðsefna gegn streymi vatnsgufu mælt hjá Rb.
Notuð var skálaraðferð í samræmi við ASTM C 355 og undirlag úr steinsteypu eins og lýst
er með teikningu á mynd 2. Megingerðir allra yfírborðsefnanna sem mæld vom, þ. e. máln-
ingarhúða og vatnsfælna, voru meðal þeirra sem komu fyrir á sýnatökuveggjum framan-
greindra rakamælinga. Mælingarsýnin vom öll söguð í 2,5 cm þykkt úr yfirborði steypu-
steina með yfírborðsefnum, sem gerðar höfðu verið tilraunir á samfcllt í rúmt ár í
áðurnefndum sérhönnuðum búnaði, þar sem líkt var eftir regni og vindþurrkun [5]. Steypan
hafði v/s-tölu um 0,5 og svo vildi til að háræðarýmd hennar, mæld sem uc-gildi, reyndist
vera um 8%, sem er nánast sama og meðaltalsgildi uc allra veggjanna í töflu 1. Þessi stað-
reynd ætti á vissan hátt að styrkja samanburð á niðurstöðum viðnámsmælinganna við raka-
mælingarnar.