Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Blaðsíða 89
Félagsmál VFÍ/TFÍ 87
1999 1998 1997
4,1% (6,1%) (11,2%) í verðtryggðum lánum fjárfestingalánasjóða
24,8% (30,9%) (34,8%) í verðtryggðum lánum til sjóðfélaga
43,9% (39,5%) (26,6%) í erlendum verðbréfum
3,3% ( 5,4%) ( 7,6%) í verðtryggðum lánum bæjar- og sveitarfélaga
1,6% ( 1,3%) (0,9%) í verðtryggðum lánum banka og sparisjóða
1,8% (2,4%) (4,1%) í öðruni verðtryggðum lánum
0,0% (0,5%) (0,6%) í Verkfræðingahúsi
0,8% ( 0,7%) (0,8%) í skammtímakröfum
9,2% (9,8%) (10,0%) í innlendum hlutabréfum
10,5% ( 3,4%) ( 3,1%) í lausafé
100,0%
Allnokkur breyting er á samsetningu verðbréfaeignar sjóðsins þar sem hlutfall sjóðfélaga-
lána lækkar frá ári til árs, nú um 6,1% eignar. Hlutfall erlendra verðbréfa af heildareign
hækkar úr 39,5% í 43,9%. Ráðstöfunarfé var 1.181 milljón króna 1999 eða 96 milljónum
króna minna en árið áður. Með þessari ijárfestingastefnu var stefnt að því að auka ávöxtun
sjóðsins. Niðurstaða ársreikningsins sýnir að það hefur gengið eftir.
Ekki er hægt að skilja svo við umfjöllunina um fjárfestingastefnuna að ekki sé getið þess
ramma urn fjárfestingaheimildir, sem settar voru í lög um starfsemi lífeyrissjóða nr.
129/1997. Lögin takmörkuðu fjárfestingu í erlendum myntum við 40% af eign til greiðslu
lífeyris. Einnig takmörkuðu þau eign í hlutabréfum innlendra og erlendra samanlagt við
35% af hreinni eign til greiðslu lífeyris.
Það er flestum ljóst að takmarkanimar á íjárfestingum í 36. grein lífeyrissjóðalaganna
hafa verið alltof strangar og hamlað lífeyrissjóðunum að ná bestum árangri í fjárfestingu og
arðsemi. Þetta hefur bitnað livað mest á okkar sjóði.
Lífeyrir
Lífeyrisgreiðslur hækkuðu um 76,6 % á milli ára. Að stóram þætti er það vegna niðurstöðu
Hæstaréttar í tveirn dómsmálum. Lífeyrisþegum fjölgaði um átta á árinu. Sjö þeirra fóru á
ellilífeyri og einn á makalífeyri. Tveir sjóðfélagar létust á árinu og taka makar þeirra nú
lífeyri.
Lífeyrisgreiðslur skiptust þannig:
1999 1998 1997 1996 1995
Ellilífeyrir kr. 73.124.399 81% (79) (78) (76) (74)
Örorkulífeyrir kr. 2.798.366 3% (6) (6) (8) (6)
Makalífeyrir kr. 13.739.164 15% (14) (15) (15) (18)
Bamalífeyrir kr. 583.081 1% ( 1 ) ( 1 ) ( 1 ) (2)
Greiddur var lífeyrir til 74 ellilífeyrisþega, 24 makalífeyrisþega, fimm örorkulífeyris-
þega og fjögurra bama.