Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Síða 40
38 Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000
Borist hafa 134 viðskiptaáætlanir, þar af eru 24 hugmyndir 3P Fjárhúss. Fjárfest hefur
verið í 9 fyrirtækjum, 12 verkefni eru í vinnslu, 103 hefur verið hafnað og 10 eru í bið.
Samtals hefur verið fjárfest fyrir 690 milljónir hingað til.
Aðspurður um hvaða forskot 3P Fjárhús hefði á markaði svaraði Páll að allir aðstandendur
fyrirtækisins heföu 15 ára reynslu í stjómun fyrirtækja og auk þess væri hin persónulega
nálægð mikilvæg, þar sem þeir em að fjárfesta fyrir eigin peninga. Spurt var um útgönguleið
ef arðsemiskrafa stenst ekki. Páll sagði eitt slíkt mál í skoðun.
K1 16.45 var tekið kafFihlé til kl 17.00 en þá hófust eiginleg aðalfundarstörf. Fundarstjóri
kynnti dagskrá aðalfundar.
Skýrslur um störf félagsins á liðnu starfsári
Hákon Olafsson formaður kynnti skýrslu stjórnar. Hann sagði félagsstarfíð hafa verið blóm-
legt og skemmtilegt á síðasta starfsári. Ovenju margar ráðstefnur voru haldnar, eða fjórar.
VFI keypti hlut Lífverks í Engjateigi 9 og á félagið nú allt húsið. Unnið var að nýtingu
lóðarinnar að Engjateigi 7 skv. samþykkt síðasta aðalfundar. Fjármagn sem fæst frá
Engjateigi 7 á að nota til að efla félagsstarfið. Menntunarkrafa til að fá leyfí til að kalla sig
verkfræðing var skerpt og þarf nú 150 einingar í stað 120 áður í þessum tilgangi. Nýlega var
stofnað hagsmunafélag með þátttöku VFÍ, TFÍ, HÍ, HA og SI til eflingar verkfræði- og
tæknifræðimenntunar. Verktækni var breytt og betrumbætt og kemur nú til reynslu út
mánaðarlega í stað hálfsmánaðarlega. Félagsgjöldin fara enn lækkandi og hafa lækkað um
50% frá 1990. VFI getur í dag státað af lágu félagsgjaldi, 19.000 á ári, og stjómin leggur til
óbreytt félagsgjald. Enn skortir þó á að fá yngri verkfræðinga til þátttöku í félaginu. Stjómin
hefur verið með átak í gangi til að auka þátttöku verkfræðinga í félaginu og er það farið að
skila árangri. Reglur varðandi inngöngu í félagið voru teknar til endurskoðunar og fyrir
liggur tillaga um inngöngu fólks með BS-próf í verkfræði í félagið. Samningur við
Endurmenntunarstofnun var bættur og fá félagsmenn 20% afslátt á mörg námskeið þar.
Hákon rakti helstu deildar- og nefndarstörf. Má þar helst nefna að stofnuð var kvennanefnd
í félaginu með það markmið að auka ásókn kvenna í verkfræði og tæknigreinar.
Fundarstjóri benti á skýrslur fastanefnda sem lágu frammi á fundinum.
Reikningsskil
Logi Kristjánsson, framkvæmdastjóri, kynnti reikninga félagsins. Engar athugasemdir voru
gerðar.
Vífill Oddsson, félagslegur skoðunarmaður, fór nokkrum orðum um reikninga félagsins
og félagsstarfið. Sagði hann innheimtu mjög góða og starfsemi skrifstofu ganga vel.
Hússjóður stendur vel og munu lcigutekjur standa undir lánum sem tekin voru fyrir kaupum
á hlut Lífverks í húsinu. Vífíll taldi samning VFÍ við ÍSTAK um nýtingu á lóðinni Engjateigi
7 hagstæðan fyrir félagið. Lagði hann áherslu á að fá unga fólkið í félagið. Um sé að ræða
töluverða ljölgun í stéttinni sem hafi ekki skilað sér.
Lagabreytingar
Stjórnin bar fram tvær breytingartillögur á lögum. Þær voru báðar samþykktar
mótatkvæðalaust, svo og lögin í heild sinni.
Inntökurcglur í VFI
Steindór Guðmundsson tók til máls og gerði grein fyrir tillögu um nýjar inntökureglur, en
breytingin felst í að menn með BS-próf í verkfræði, þ.e. 90 einingar, fái inngöngu í félagið.