Bændablaðið - 09.12.1997, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 9. desember 1997
Bændablaðið
7
Starfssamningurinn undirritaður. F.v. Hörður Harðarson, stjórnarmaður,
Haukur Halldórsson, formaður stjórnar, Hrönn Greipsdóttir og Sigurgeir
Þorgeirsson.
IUVR HMMKVÆMDASTJÖRl HÓTE
SflGU 06 HdfTEL ÍSLAND
Tvær reið-
leiOir 0 Kili
Myndvarpar
Myndvarparnir varpa upp Ijós-
myndum, teikningum, myndum úr
blöðum og bókum í fullum lit. Tilvalin
jólagjöf fyrir myndlistarmenn á öllum
aldri. Margar gerðir.
EOpið á lauaardöaum frá
póstkröfu um land allt.
jstþjónustan
Hverfisgötu 105, sími 561 2866
15%
afsláttur
til jóla
„Tvær reiðleiðir á Kili, leiðar-
lýsing og uppdráttur" er einblöðung-
ur í A3 stærð sem Landgræðslufélag
Biskupstungna hefur gefið út. Mikið
er um hestaferðir um Kjöl og geta
hestamenn nú vahð um tvær leiðir
milli Hveravalla og Árbúða. Vestari
reiðleiðin er með Fúlukvísl og er
mjög fjölfarin af hestamönnum. Til
að dreifa álaginu á landið merkti
Landgræðslufélag Biskupstungna
helstu kennileiti á fomri leið með
Svartá um Gránunes. Reiðvegurinn
er dágóður, eftir gömlum götum og
farið er um marga sögufræga staði
s.s. Beinhól þar sem Reynisstaða-
bræður urðu úti árið 1780. Kortið er
í mælikvarðanum 1:150 000 og á
bakhlið þess em gagnlegar upp-
lýsingar um skála á Biskupstungna-
afrétti og leiðarlýsing er Amór
Karlsson samdi. Unnt er að nálgast
kortið hjá Ferðamálafulltrúa upp-
sveita Amessýslu í Aratungu og í
sæluhúsum við Kjalveg.
100 Ijðð og lausavísur
Út er komin bókin „Hundrað
ljóð og lausavísur" eftir Jón Sig-
urðsson frá Skíðsholtum, Hraun-
hreppi í Mýrasýslu. Bókin er gefin
út í tilefni þess að eitt hundrað ár
eru liðin frá fæðingardegi Jóns en
hann lést árið 1992. Ljóðin valdi
Sesselja Davíðsdóttir. Útgefandi
og styrktarmaður útgáfunnar er
Hjörleifur Sigurðsson, bróðir
höfundar. Bókin fæst hjá út-
gefanda, sími: 553 4892 - enn-
fremur í bókabúð Kaupfélags
Borgfirðinga í Borgamesi og í
verslun Máls og menningar í
Reykjavík.
Hrönn Greipsdóttir hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri Hótel
Sögu og Hótel íslands frá og
með 1. mars nk. og tekur við
af Konráð Guðmundssyni sem
lætur af starfi framkvæmda-
stjóra frá sama tíma. Starfs-
samningur við Hrönn var
undirritaður fyrir skömmu.
Hrönn Greipsdóttir er ahn upp
að Geysi í Haukadal og byijaði ung
að starfa við ferðaþjónustu; bæði í
söluskálanum og á Hótel Geysi.
Hrönn er dóttir hjónanna Greips
heitins Sigurðssonar, landgræðslu-
varðar frá Geysi í Haukadal og
Kristínar Sigurðardóttur frá Úthlíð í
Biskupstungum. Eftir stúdentspróf
hóf Hrönn störf hjá Ferðaskrif-
stofunni Útsýn og vann þar sam-
hhða háskólanámi. í ársbyrjun 1992
tók hún við nýrri stöðu sölustjóra
ráðstefna og hvataferða í innan-
landsdeild Úrvals-Útsýnar og var
jaftiffamt staðgengill deildarstjóra.
Árið 1993 tók Hrönn svo við stöðu
deildarstjóra innanlandsdeildar.
Sama ár flutti hún til London þar
sem hún vann að ýmsum sérverk-
efnum á sviði markaðsmála fyrir
Úrval-Útsýn.
Hrönn er viðskiptafræðingur ffá
Háskóla íslands. Síðasthðið ár hefur
hún stundað framhaldsnám í City
University Business School í
London og lauk nú í haust meistara-
gráðu í viðskiptafræðum (MBA)
með fjármál sem sérsvið. Lokarit-
gerð hennar fjallaði um notkun
margmiðlunar við markaðssetningu
á fjármálaþjónustu.
Eiginmaður Hrannar er Sig-
urður Skagfjörð Sigurðsson,
svæðisstjóri Flugleiða í London.
Þau eiga tvær dætur, Júlíu Skag-
fjörð 11 ára og Kristínu Þöll Skag-
fjörð, þriggja ára.
Notaðar dráttarvélar
biIjöfur
Case 895,80 hö,
árg'92,2x4, notuð 670
klst. m/Trima
ámoksturstækjum, mjög
gott ástand og útlit. Verö:
1.550.000 kr.
Fendt LSA 307,70 hö,
árg.' 86, 4x4, notuð
4.600 klst. Verð:
1.200.000 kr.
Ford 6610, 70 hö,
árg.' 84,4x4, notuð
4.900 klst. Gullfalleg vél.
Verð: 900.000 kr.
Case 785, 80 hö,
árg.'90,4x4, notuð
2.000 klst. m/Veto F15
FX ámoksturstækjum.
Verð: 1.500.000 kr.
Steyr 8090, árg. 86.
Með tækjum og
frambúnaði. Verð
1.400.000 kr.
Zetor 9540, árg. 92.
Verð 1.500.000 kr.
Case 4240, 93 hö,
árg. '96, 4x4, notuð
1.700 klst. m/Veto F16
ámoksturstækjum. Verð:
2.700.000 kr.
Fendt LSA 309, 86 hö,
árg. 86,4x4. Keyrð
7000 klst. með tækjum,
frambúnaði og snjótönn.
Verð 1.700.000 kr.
Welger heyhleðsluvagn,
24m3. Verð: 70.000 kr.
Zetor 7745,4x4, árg.
'91. Keyrð 1.400 klst.
Verð kr. 800.000.
MF 690, 4x4, árg. 86,
með Trima festingum.
Verð kr. 750.000.
Zetor 7745,4x4, árg.
91, með Alö 640. Keyrð
1600 klst. Verð:
1.100.000.
Ford 3910,2x4, árg. 88
Verð kr. 650.000.
Case 585 XL, 2x4, árg.
86. Verð kr. 650.000.
Öll verð án VSK
Deutz 4006, árg.'67,
m/Baas
ámoksturstækjum. Verð:
175.000 kr.
Deutzárg. 62. Verð kr.
100.000
Fleiri vélar
væntanlegar
buIjofur
Krókhálsi 10,110 Reykjavík,
sími 567 5200, fax 567 5218,
farsími 854 1632
Gunnar á Hjarðarfelli
Ahugaverð bók
fyrir alla sem
láta sig
íslenskan
landbúnað
varða
Endurminningaþættir Gunnars Guðbjartssonar
Ahrifarík saga jarðar og fólks á síðustu
öld og framan af þessari
Fróðleg og glögg lýsing á búskaparháttum og
búnaðarframförum og félagsstörfum á fyrrihluta aldarinnar
í minningu góðs granna
Frásögn Erlendar Halldórssonar í Dal af
félagsmálamanninum og bóndanum Gunnári á Hjarðarfelli
Stéttarsamband bænda og störf Gunnars Guðbjartssonar
Stofnsaga og starfssaga Stéttarsambandins er rekin ítarlegar
en áður hefur verið gert
Rakin eru óvenju fjölbreytt og umfangsmikil trúnaðarstörf
Gunnars Guðbjartssonar í þágu íslenskra bænda
Jólagjöftil allra
íslenskra bœndaf
Útgefandi: Bændasamtök íslands, Bændahöll við Hagatorg. Bókin er fáanleg í póstkröfu hjá BÍ
og kostar kr. 4.100.oo (Póstkröfukostnaður innifalinn). Pöntunarsími 563 0300.