Bændablaðið - 09.12.1997, Síða 8
8
Bændablaðið
Þriðjudagur 9. desember 1997
- Rætt við Steinþór Skúlason, forstjóra Sláturfélags Suðurlands
um söluátak á íslensku lambakjöti í dönskum stórverslunum
Nýlega birtist hér í blaðinu viðtal við Danann Claus
Pedersen en hann er yfirmaður kjöt- og fiskviðskipta hjá
stórfyrirtækinu FDB sem rekur meðal annars stórar
verslunarkeðjur í Danmörku. í viðtalinu reifaði Pedersen
reynslu sína og Dana af íslensku lambakjöti en þar í landi
hefur að undanfömu staðið yfir sölu- og kynningarátak
fyrir lambakjöt ffá íslandi. Á honum var að heyra að sú
tilraun sem þar er gerð lofaði góðu. Bændablaðinu lék því
forvitni á því að vita hvemig hin íslenska hlið á þessu
átaki liti út og hvort þess væri að vænta að útflutningur á
lambakjöti til Danmerkur myndi bæta hag íslenskra
sauðfjárbænda svo um munaði. Steinþór Slcúlason
forstjóri Sláturfélags Suðurlands varð fyrir svömm en SS
hefur á undanfömum ámm verið að þreifa fyrir sér á
erlendum mörkuðum. Hvernig skyldi þetta
Danmerkurævintýri hafa komið til?
„Við fengum útflutningsleyfi
frá Evrópusambandinu á sláturhús
okkar á Selfossi haustið 1996.
Reyndar dróst það mjög að leyfið
yrði gefið út, það var ekki fyrr en
komið var langt fram í nóvember
sem við fengum leyfið þótt húsið
hefði verið skoðað í lok ágúst.
Þessi dráttur varð til þess að öll
vinna við sölu í síðustu sláturtíð
fór að heita má í vaskinn. Við gát-
um ekki gert neina bindandi
samninga um afhendingu kjöts.
Það gerðist hins vegar þetta
sama haust að forseti íslands fór í
opinbera heimsókn til Danmerkur.
Það hafði verið haft samband við
okkur áður og við beðnir að leggja
til kjöt í íslandskynningu í
tengslum við för forseta. Að þeirri
kynningu stóð fjöldi íslenskra
fyrirtækja en vörur þeirra voru á
boðstólum í 12 stórmörkuðum
Super Brugsen keðjunnar. Við
höfðum því eytt töluverðum tíma í
að þróa pakkningar, bæklinga og
annað slíkt. Kynningin fór svo
fram í síðari hluta nóvember í fyrra
og tókst nokkuð vel.“
Smátt skorió kjöt
„í framhaldi af þessari
kynningu unnum við með móður-
fyrirtæki þessarar keðju sem heitir
FDB að því að þróa áfram
pakkningar og vinnslu á þessum
vörum. Áður höfðum við ákveðið
að gera Danmörku að okkar for-
gangsmarkaði. Við höfðum kann-
að aðstæður á helstu mörkuðum og
vegna þess að við höfum ágæt
sambönd í Danmörku töldum við
rétt að einbeita okkur að þeim
markaði.
Það sem kom í ljós í þessari
vörukynningu var að þessar hefð-
bundnu pakkningar og skurður á
kjötinu í stór stykki - hrygg, læri
o.þ.h. - sem hvert fyrir sig er matur
fyrir 4-5 manns og jafnvel af-
gangur til næsta dags, þetta hentar
ekki Dönunum. Þeir vilja kaupa
minna í einu sem svarar einni hóf-
legri máltíð. Við eyddum því
nokkrum mánuðum í að þróa mis-
munandi skurð og sundurhlutun á
skrokknum í samvinnu við FDB.
Við sendum þeim sýnishom og
þeir svöruðu aftur og þar kom að
þeir vom ánægðir með ákveðna úr-
beiningu og sundurhlutun. Sala á
því fór í gang síðasta vor og
þannig seldum við hátt í 1.500
skrokka.“
Náum
Færeyjaverði
„Það sem við höfum svo lagt
mesta áherslu á núna í haust er að
selja ferskt kjöt meðan á sláturtíð-
inni stendur. Staðreyndin er sú að í
Evrópu er markaður fyrir ferskar
vöm allt annar og betri en fyrir
fryst kjöt. Við emm því búnir að
finna vélbúnað og þróa fram-
leiðsluferli og pakkningar sem
gerir okkur kleift að bjóða upp á
ferskt kjöt í Danmörku. Það er
gætt ýtrasta hreinlætis við vinnsl-
una, kjötið er kælt með ákveðnum
hætti og því pakkað í loftskiptar
umbúðir sem tryggja átján daga
geymsluþol. Með því að flytja það
út með flugi getum við selt fersk-
vöm.
Söluverðið á þessu kjöti er
mjög hátt, 330-350 kr./kg, en á
móti kemur að kostnaður er mikill.
Flugfragt er dýr og við höfum
orðið að fjárfesta í umbúðum og
vélbúnaði sem er einnig mjög dýr.
En okkur telst til að þetta sé að
skila okkur nokkum veginn Fær-
eyjaverði, þe. FOB-verði á bilinu
240-250 kr./kg.
Magnið sem hefur farið út í
haust og fyrirsjáanlegt er að fari
fram til jóla er í sjálfu sér ekki
mikið, þetta verða kannski 1.000-
1.500 skrokkar eða 12-14 tonn.
Hins vegar er reynslan mjög góð
og á næsta ári getur magnið stór-
aukist. Þess vegna er mikilvægt að
geta boðið þetta frá ágústbyrjun
fram til jóla. Nú þegar er mikil
eftirspum eftir fersku kjöti fyrir
páska og fyrirséð að við munum
ekki geta útvegað kjöt upp í allar
pantanir."
Þarf að dreifa
innlegginu betur
- Þú nefndir að þið gœtuð
boðið Dönunum ferskt lambakjöt
frá því í ágúst fram að jólum, er
það alveg víst?
„Já, en þó má segja að fram-
boðið sé ekki nægt fyrrihluta ágúst
og eftir miðjan nóvember. Við
höfum lagt áherslu á að nota ferskt
kjöt í innanlandssölunni og þar er
að verða stórbreyting. Áður fyrr
var framboðið á fersku kjöti fyrir
og eftir hefðbundna sláturtíð svo
stopult að það var ekki hægt að
byggja eðlilega framleiðslu á því.
Nú er þetta komið í það gott lag að
við tökum vikulega ferska skrokka
sem við skemm niður í álegg og
þess háttar og líka það sem við
seljum í stykkjum, læri og hryggi.
Þetta hefur það í för með sér að
varan er miklu fallegri og hefur
meira geymsluþol en uppþítt kjöt
þannig að þetta stuðlar að aukinni
sölu.
En okkur vantar enn betri
dreifingu á innlegginu, einkum í
byrjun ágúst og eftir miðjan
nóvember. Þetta er þó að færast í
betra horf og það borgar sig tví-
mælalaust fyrir bændur að sinna
þessu ef þeir hafa til þess að-
stæður."
- En Pedersen vill fá kjöt allt
árið, jafnvel þó það sé misstórt.
Eru einhverjir möguleikar á að
verða við þeirri ósk hans?
„Eins og er sé ég ekki að það
Steinþór Skúlason forstjóri Slátur-
félags Suðurlands.
geti orðið. Það sem ég held að sé
raunhæft á allra næstu ámm er að
hafa gott framboð frá byrjun ágúst
fram að áramótum og svo þokka-
legt framboð rétt fyrir páska. En
það verður langsótt að lengja
tímann meira."
- Er ekki líka hœtta á að ef
farið verður að lengja slátur-
tímann þá verði það á kostnað
þessara lífrœnu gœða, það þyrfti
að gefafénu meira tilbúið fóður?
„Jú, jú, en ég held samt að þó
það breyti bragðinu eitthvað þá
vegi það þyngra að geta boðið
ferskt kjöt í stað þess frysta."
Fótbrot og frelsi
- Pedersen minnist á áhyggjur
danskra neytenda af vellíðan
lambanna og nefnir dœmi um ótta
þeirra við að þau gangi sjálfala á
heiðum uppi þar sem þau geta
orðið fyrir slysum og lent í klóm
hrafna og varga. Hafið þið velt
þessu fyrir ykkur?
„Nei, það höfum við nú ekki
gert, en almennt má segja að neyt-
endur tengi afurðimar við hrein-
leika og að einhverju leyti frelsi
búfjárins. Þessi ræktun sem felst í
því að loka dýr inni í búmm hefur
mjög neikvæða ímynd þannig að
ég held að hugsun einstakra neyt-
enda um hugsanleg fótbrot vegi nú
minna en þeir þættir.“
- Hann nefnir einnig uppruna-
merkingar, hvað er átt við með
þeim ? Merkir það að ég geti vitað
að kjötið sem ég er að borða sé af
lambi sem ólst upp hjá honum Jóni
áHóli?
„Já, við erum komnir með slík-
ar merkingar. Öll slátmn á Selfossi
og Klaustri er uppmnamerkt.
Skrokkurinn er merktur með
strikamerki sem hægt er að lesa úr
frá hvaða framleiðanda kjötið
kemur. I vistrænni ræktun á bónd-
inn auk þess að halda heilsu-
farsbók þar sem hægt er að sjá
hvort viðkomandi gripur hefur
fengið lyf eða orðið veikur. Þetta
er liður í vistrænni ræktun.“
Samkeppni um
sláturfé
- Verðið sem þú nefndir, 240-
250 kr. FOB, hvað þýðir það í
skilaverði til bœnda ?
„Það hefur ekki verið ákveðið.
í sambandi við bændaverðið verð-
ur að hafa í huga að við fengum á
okkur útflutningskvöð á bilinu
100-120 tonn. Einhver hluti fer til
Færeyja og sem ferskt kjöt til Dan-
merkur og fyrir það fæst þetta verð
sem ég nefndi, en svo er einhver
hluti sem verður að selja á lægra
verði. Verðið til bænda ræðst því
ekki af hæsta verði sem fæst held-
ur af meðalverði. Það er margra
ára þróun að koma sem stærstum
hluta vömnnar í það söluform sem
skilar hæstu verði.
Síðasta haust skiluðum við
bændum 175 kr./kg af DIA, auk
greiðslu fyrir gæm og innmat. Það
er alveg ljóst að í því verði fólst
nokkur yfirborgun, við vomm í
raun að borga meira til bændanna
en söluverðið gaf tilefni til með
eðlilegum hætti. Við höfum verið
að reikna okkur um 80 kr./kg fyrir
slátmn á þessu fé til útflutnings.
Verðið sem við greiðum eftir þetta
haust hefur ekki verið ákveðið og
það mun ráðast af því hversu
mikið við emm reiðubúnir að yfir-
borga kjötið.
Þetta tengist þeirri samkeppni
sem á sér stað um innleggið. Við
höfum orðið að kaupa um 300 tonn
af kjöti af öðmm en okkar eigin
framleiðendum á sama tíma og
framboð á nautakjöti og svínakjöti
hjá okkur hefur verið nægt. Það er
miklu hagstæðara fyrir okkur að
geta aukið eigin sauðfjárslátmn í
stað þess að kaupa hundrnð tonna
af öðmm og láta aðra
innleggjendur nauta og svína bíða
eftir slátrnn hjá okkur. Það er alltaf
ákveðin hætta á að slík staða komi
niður á sölu lambakjötsins."
- Er niðurskurðurinn farinn að
leiða til samkeppni um slátur-
gripina?
„Það er mikil samkeppni um
þá, sérstaklega sauðfé, sem hefur
leitt til alls konar yfirborgana á
dilkakjöt, einkum í formi álags
fyrir og eftir slátmn. Menn em að
bjóða staðgreiðslu og við höfum
boðið álag á vistrænt kjöt og kjöt
af líflambasvæðunum. Þessi sam-
keppni mun halda áfram að
aukast."
Vantar kvóta fyrir
unnar kjötvörur
- Þú minntist á leyfi frá ESB,
hversu mikið er leyft aðflytja út af
lambakjöti til Evrópusambands-
landa?
„Það em fjögur sláturhús með
útflutningsleyfi til ESB-landanna.
Kvótinn er um 1.200 tonn svo það
hefur ekki reynt á að það þurfi að
skipta honum. Við höfum ekki
fullnýtt kvótann.
Við emm hins vegar að undir-
búa stækkun vinnslustöðvarinnar á
Hvolsvelli og eitt af markmiðun-
um með þeirri stækkun er að fá
fulla útflutningsheimild á allar
unnar kjötvömr. Við teljum að við
eigum mikla markaðsmöguleika
erlendis með hangikjöt, pylsur,
álegg og tilbúna rétti. Þessar vömr
Lime-marinerede lammekoteletter med gronsager
CTil ca, 4 personer)
8 lammhotcletter Drys koteletterne med pcber og læg dem i eri
reven shal ajlM limcfrugt plasticpose. Kom limesaft og -skal ved: lad
safi af 112 limefrugt posen stá i kaleskab i ca. 2 timer og vend
peberfra kvcern kotelctterne af og lil. Marinaden kasseres
100 g grgrme bttnner umiddelbart efter endt marinering. Bonneme
100 gforárshg koges sprode ct par minutter, keles i koldt
2 spsh otie vand og skærest skrát i „spidser".
i dlpískeflode Forárslðget skæres i tykke, skrá strimler.
1 tsh hclc Madagascar pebcrkom Varm ovnen til 160°. Brun koteletteme i
i spsli jintshárel ingefcer olien pá en pande 11/2 min. pá hver síde.
Læg dem i et ovnfast fad, drys med lidt salt
ogsæt fadet iovnen 10-15 min. Kom..
Madagascarpeber, piskeflyde og ingefær i
j®) panden og lad det koge nogle min. Tdsæt gronsageme og smag sovsen til. Varm sovsei godt igennem og servér den sammen mcd kodeli Som tiibehor kan f.eks. serveres 200 g frisk brod og 1 kg.bagte kartofler.
Eftir útgáfu bœklingsins œttu Danir ekki að velkjast í vafa um hvernig matreiða á íslenskt lambakjöt.