Bændablaðið - 09.12.1997, Qupperneq 10
10
Bændablaðið
Þriðjudagur 9. desember 1997
KORNBÆNDUR
NÝJUNG FRÁ TP FÓÐRI
Höfum hafið framleiðslu á nýrri
' próteinblöndu til nota með byggi. Blandan
inniheldur vítamín og steinefni fyrir kýr.
BYGGBÆTIR
FYRIR KÝR
Eftir íblöndun er fóðurgildi pr. kg.:
FE 1,03 Hráprótein 20,3%
Eigum örfáa
kornvalsara til á lager.
ÍTP FÖÐUR
Skrifstofa: Lynghálsi 9 sími 587 9191 fax 587 9195
Fóðurafgreiðsla: Köllunarklettsvegi 4 sími 588 9191
Umboðsmaður:
Ólafur Eggertsson, Þorvaldseyri
Bœndur!
Verðandi bœndur!
s
co
'ks
m
%
%NVÍ^
Starfsfólk í sveit!
Verðandi kennarar,
leiðbeinendur og vísindamenn!
Búfræðinám á Hvanneyri er nú samkvæmt nýrri námsskrá. Þar
hafa verið gerðar athyglisverðar breytingar sem miða að því að
auka vægi sérgreina landbúnaðarins og auka möguleika á að nýta
búfræðipróf sem hluta til stúdentsprófs við aðra skóla.
Hagkaup
óskar íslenskum bœndum
gleðilegra jóla og farsœls
komandi árs. Þökk fyrir
viðskiptin á árinu sem er
að líða.
Hagkaup
Skógræktarferð til Skotlands
Margl er líkt í skoskri
og íslenskri skógrækl
í lok september gekkst Skógræktarfélag íslands fyrir hóp-
ferð til Skotlands, tilgangur ferðarinnar var að kynnast
skógræktarstarfi þar í landi. Alls voru 56 þátttakendur í
ferðinni frá ýmsum stöðum á landinu, með fjölbreytta
reynslu af skógrækt. Skipulagning ferðarinnar var í
höndum Royal Scottish Forestry Society og Skóg-
ræktarfélags íslands.
Hallgrímur Indriðason,
framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Eyfjrðlnga.
Aðstæður skógræktarmanna í
Skotlandi og íslandi eru um margt
líkar. Fyrr á öldum var Skotland
skógi vaxið frá fjöm til fjalls en
eins og á íslandi hefur búseta
krafist fóma. Nú er svo komið að
aðeins um 1% af náttúrulegum
skógi er eftir. Þegar ferðast er um
skosku hálöndin er landslagið stór-
brotið og ekki ólíkt því sem við
eigum að venjast, fjöll og dalir.
Fjallendið er víða blásið og bert en
Hulda Valtýsdóttir formaður Skóg-
rœktarfélags íslands plantar hér
vináttutré í landareign Konunglega
skoska skógrcektarfélagsins í lok
ferðarinnar um Skotland.
dalir gróskumiklir með skógrækt
upp í miðjar hlíðar.
Helsta orsök skógareyðingar í
Skotlandi er, auk alda langrar of-
beitar, styijaldir og iðnbyltingin á
síðustu öld, sem krafðist óhemju
mikils eldiviðar fyrir gufuvélamar.
Ullariðnaðurin var stóriðja þess
tíma og krafðist mikils af skosku
skógunum. Þegar kom fram á
þessa öld var hafist handa við
endurræktarstarfið af fullum krafti.
Feróalagió
Hér verður ur ekki rakin ferða-
saga okkar skógræktarmanna frá
degi til dags, en minnst á nokkra
athyglisverða staði frá sjónarmiði
skógræktarinnar. Ferðalagið var
skipulagt sem hringferð um mið
Skotland og hluta af hálöndunum.
í Dunkeld var skoðað fyrsta
sifjalerki sem vitað er um. Sú ein-
stæða tilviljun að þar blandaðist
saman Evrópulerki og lerki frá
Japan varð upphaf lerkiskógræktar
í Skotlandi. Þessi tegund (larix
evrolepis) hefur erft jákvæða
eiginleika beggja foreldra og er
vöxtulegt og magnað tré, sem
hefur aðlagast aðstæðum í Skot-
landi mjög vel. Sifjalerki er til á
Hallormsstað en þykir ekki væn-
legt til skógræktar hér á landi.
Skógrækt í Skotlandi og á
Islandi á nokkuð sameiginlegt, á
báðum stöðum er verið að vinna
með innfluttar trjátegundir. Veður-
farslegar aðstæður eru ekki ólíkar,
þótt sumarhiti sé nokkuð hærri. í
báðum löndunum þarf að friða öll
nýskógræktarsvæði fyrir beit ef
viðunandi árangur á að nást.
Ymsum ræktunar vandamálum
fengum við að kynnast er við
heimsóttum óðalsbóndann James
Williamson á Alive búgarðinum.
James er skógarbóndi sem stundar
auk skógræktarinnar ýmsar stoð-
greinar eins og gijótnám, ferða-
þjónustu, fiskirækt og veiðiskap.
Hópurinn heimsótti skógrækt-
arsvæði þar sem nýlega var búið
að fella skóg á um 10 ha. svæði.
Til þess að eiga einhverja von um
árangur við endurgræðslu varð
skógarbóndinn að friða svæðið
með 2 m hárri girðingu og neðsta
hluta girðingarinnar varð að girða
með hænsnaneti til að halda úti
kanínum, sem annars valda
miklum skaða.
Annað sem eykur amstur skóg-
ræktarmanna í Skotlandi er að nær
vonlaust virðist að planta í nýtt
skógræktarland án undangenginn-
ar jarðvinnslu. Algengasta aðferð-
in er að fara yfir landið á jarðýtu
með herfi sem skilur eftir upp-
rótaða flekki eða jarðvegshauga.
Síðan er plantað í hauginn og
gróðursetta plantan nýtur forskots
á annan gróður og vex úr grasi.
Þessi aðferð er bæði kostnaðarsöm
og ekki sérlega umhverfisvæn, en
virðist algjör forsenda fyrir því að
nýræktin heppnist.
Skotar leggja mikla áherslu á
að friða og viðhalda þeim náttúru-
lega skógi sem enn finnst í land-
inu. Skoska skógarfuran þakti áður
mikinn hluta landsins en er nú að-
eins eftir á fáum stöðum.
Blackwood of Rannoch er
dæmi um náttúrulegan furuskóg. I
margar aldir var skógræktarsvæðið
í eigu sömu fjölskyldunnar. Ibúar-
nir í sveitinni fengu að nýta sér
skóginn til byggingarviðar og
kolagerðar og í fyrri heimstyijöld-
inni var reynt að friða skóginn
fyrir skógarhöggi. Skógurinn er
einstök náttúruperla. Hann er líka
vinsælt rannsóknarefni fyrir nema
í vistfræði.
Sœmundur Þorvaldsson, frá Lœk í
Dýrafirði virðir hér fyrir sér
girðingarframkvœmdir hjá James
Williamson á Alive búgarðinum.
Girðingarnar þurfa að vera 2 m á
hceð og neðst er girt með hcensna-
neti til þess að halda kanínum frá
nýgróðursetningum.
Eitt sem vakti sérstaka athygli
okkar skógræktarmanna á ferð um
hálöndin var fjölskyldufyrirtæki
JohnRussels, Russwood Limited.
Þar er lögð sérstök áhersla á full-
vinnslu ýmiss konar afurða skóg-
arins. Þama er sögunarmilla, eldi-
viðarvinnsla, unnið er skógarkurl
til brennslu og stígagerðar, fram-
leiðsla á girðingarstaurum, svo
nokkuð sé nefnt.
í tengslum við sögunarmilluna
er starfrækt trésmíðaverkstæði sem
framleiðir ýmsar gerðið af skjól-
grindum og garðhúsgögnum.
Þama sáu íslenskir skógræktar-
menn hvemig í skógrækt á íslandi
getur þróast yfir í það að verða
vistrænn skógariðnaður.
Alls staðar þar sem eitthvað
staldrað var við og rætt um skóg-
rækt kom í ljós að dýraveiðar em
órjúfanlegur þáttur skógræktar-
innar. Hjartardýrin í skosku skóg-
unum em eftirsótt veiðidýr bæði af
innfæddun og erlendum veiði-
mönnum. Nákvæmlega er fylgst
með stofnstærð veiðidýranna.
Talið er að hæfilegt sé að á
einum ferkílómeter skóglendis séu
um 5 dýr. Hjartardýrin em ágangs-
hörð og valda miklu tjóni á ung-
skóginum. Ur þessu er reynt að
bæta með girðingum.
Þessi fyrsta skógræktarferð til
Skotlands var bæði lærdómsrík og
skemmtileg. Stofnað var til kynna
við hóp fólks sem á þá hugsjón að
sjá Skotland klætt skógi að nýju.
Konunglega skoska skógræktarfél-
agið hefur ákveðið að bjóða fé-
lögum sínum upp á kynnisferð til
íslands næsta sumar og er nú
unnið að undirbúningi þeirrar
ferðar í samvinnu við Skóg-
ræktarfélag íslands.
Áður en plantað er í gróið land, verða skoskir skógrœktarmenn að herfa
landið. Stórvirkar jarðýtur eru notaðar við jarðvinnsluna. Jarðvinnslan er
kostnaðarsöm og skilur landið eftir í sárum.