Bændablaðið - 09.12.1997, Page 11
Þriðjudagur 9. desember 1997
Bœndablaðið
11
KÍNA
Kína er í senn bæði aðlaðandi
og fráhrindandi land. Þar ganga
hlutimir gjaman allt öðruvísi fyrir
sig en hér á Vesturlöndum.
í Kína em u.þ.b. 60 millj. íbúa
sem hafa fjárhagslega afkomu sem
er svipuð og í Evrópu. Að auki er
síðan reiknað með að það séu
a.m.k. 10 millj. sem em mun ríkari
en gengur og gerist með Evrópu-
búa. Þessir Kínverjar fylgjast náið
með því hvemig fólk lifir í Evrópu
og reyna að skapa sér svipaðar að-
stæður. Hinir velhafandi velja því
að nota peninga sína til kaupa á
innfluttum húsgögnum frá Norður-
löndunum, pelsum, Rolex úrum og
ef þeir komast upp með það - á
innfluttum bflum.
Minkaskinnanotkun hefur
vemlega unnið á á undanfömum
árum á kostnað annarra skinna.
Einkum eru minkakápur vinsælar
en einnig casmirjakkar með
minkabryddingum. Fyrir einu og
hálfu ári var blárefur vinsælasta
grávaran í Kína en nú hefur
minkurinn tekið yfir, sem dæmi
má nefna að í einum bæ hafa verið
opnaðar 10 pelsabúðir á sl. ári, þær
selja einungis vörur unnar úr
minkaskinnum.
Pelsar em ekki einungis
ætlaðir fyrir konur austur þama,
það er einnig gert ráð fyrir að
karlmenn noti þá. Kínverjar líta
þannig til að minkapelsar séu einn
besti kosturinn til að sýna ríki-
dæmi sitt og það þurfa minka-
framleiðendur að notfæra sér.
KOREA
Á síðasta ári varð sú neikvæða
breyting á að kaupendur skinna frá
Kóreu höfðu ekki lengur efni á að
kaupa með sama hætti og verið
hafði árin þar á undan. Þetta var
mikil breyting þar sem þeir höfðu
lengi verið í hópi sterkustu kaup-
enda á grávöru. Ástæða þessa er
ekki sú að pelsar séu ekki lengur í
tísku í Kóreu- þeir hafa einfaldlega
ekki efni á að kaupa þá eins og
stendur. Utflutningsframleiðendur
lentu á síðasta ári í erfiðleikum.
Rfldsstjómin hækkaði skattana
og setti aukatolla á lúxusvömr s.s.
pelsa. Af opinberum aðilum hefur
verið reynt að trufla starfsemi inn-
flytjenda lúxusvara. Sala á
pelsum er í ár einungis helmingur
þess sem verið hefur undanfarin ár.
Þrátt fyrir að teikn hafi verið á lofti
síðari hluta sumar um jákvæðar
breytingar er vart á það að treysta
þar sem óróinn á gjaldeyris-
mörkuðum Asíu hefur farið mjög
illa með gjaldmiðil landsins.
JAPAN
Á sama hátt og Kórea hefur
Japan verið í efnahagslegri lægð á
síðustu ámm. Þrátt fyrir þetta hef-
ur áhugi á pelsum farið vaxandi í
Japan á undanförnum ámm, þökk
sé SAGA. Tekist hefur að fá með-
limi vinsælustu popphljómsveitar í
Japan til að bera pelsa á hljóm-
leikum sínum. Pelsar em mjög í
tísku og þykja af hinum ungu vera
„smart“. I sannleika sagt er of
heitt til að klæðast pels í stómm
hluta Japans. Þess vegna eru
klipptir eða rakaðir pelsar ríkjandi,
gjaman litaðir. Stærstur hluti
pelsanna er fluttur inn frá Hong
Kong og pelsar eru óvenjulega
dýrir samanborið við annars staðar
í heiminum.
RÚSSLAND
Á undangengnum árum hafa
verið miklir efnahagsörðugleikar í
Rússlandi, verðbólgan á sl. ári var
131%. Nú lítur hins vegar út fyrir
að skriður sé að komast á hlutina
og stöðugleiki í vændum. Því
miður virðist sem einungis ein leið
sé fær til að verða ríkur í Rúss-
landi, taka þátt í neðanjarðarhag-
kerfinu. Samkvæmt rússneskum
dagblöðum er um helmingur hag-
kerfisins neðanjarðar. Þetta er að
sjálfsögðu hættulegt fyrir fjárhag
landsins. Allir reyna að svíkja
undan skatti, einnig pelsafram-
leiðendur og seljendur.
Moskva er þriðja dýrasta borg
heimsins og þangað flykkjast hinir
nýriku Rússar til að eyða ný-
skjótfengnum peningum sínum.
Talið er að 15-17 millj. manna í
Rússlandi séu ríkir og þeir eyða
peningunum. Fyrir þá skiptir verð-
ið ekki miklu máli. Vegna þessa
geta skinnaframleiðendur og bfla-
salar verið þakklátir. Á síðustu 3-4
árum hefur Rússland þróast úr því
að vera eitt af hinum nýju
markaðssvæðum í að verða eitt
aðal markaðssvæði DPA. Skinn
eru seld með margvíslegum hætti
til Rússlands. Það er því erfitt að
meta innfluttning á skinnum
þangað nákvæmlega.
Ein af ástæðunum fyrir því að
svo frábærlega gengur að selja
pelsa í Rússlandi og raun ber vitni
er hve mikil minnkun hefur orðið á
skinnaframleiðslu í landinu. Skv.
þarlendu loðdýrablaði hefur fram-
leiðslan minnkað úr 11 millj.
skinna 1990 í um 3,7 millj 1997.
Stöðug vandræði með fóður og
skortur á kynbótastarfi endur-
speglast í stærð og gæðum skinn-
anna. Skandinavísk og amerísk
skinn eru nú ríkjandi í landinu.
Skinn af stórum dökkbrúnum
högnum (skinn=hattur) eru ennþá
mest keypt. Heldur minni áhugi er
fyrir bláu litunum ( Safír og Blue
Iris) en verið hefur vegna hins
gífurlega háa verðs á þeim. Læðu-
skinn eru farin að seljast í meira
mæli en áður var. Hinir rússnesku
kaupendur eru orðnir betur með-
vitaðir um gæði. Neytendumir em
einnig famir að vilja gæðavöru.
Vegna þess að ekki er margt fólk
sem telst til milliklassa í landinu er
auðveldara að selja dýrar minka-
kápur, kápur sem kosta um eða
yfir 400 þús. en millidýrar kápur
200-300 þús. Ódýrar skinnavörur
em seldar á opnum markaði.
Hið háa verð á minkaskinnum í
september kom Rússunum ekki á
óvart. Þeir vildu gjaman halda
verðinu stöðugu og miðuðu þar við
verðið 1995/96. Það er að sjálf-
sögðu erfitt að spá um hvemig þeir
muni haga kaupum sínum í vetur
en leiða má að því líkum að stór-
kaupendumir muni kaupa inn í
smáum skömmtum allt sölutíma-
bilið.
LITHÁEN
Löng hefð er fyrir verslun með
grávöm í Litháen, þaðan kemur
raunar um helmingur rússnesku
kaupendanna. Frá Litháen em flutt
út um 99% keyptra skinna til Rúss-
lands. Raunar er staðan þama afar
viðkvæm m.a. sökum þess að auð-
velt og ódýrt er að smygla pelsum
yfir landamæri Rússlands og Kína
en vegna áhuga Litháa á inngöngu
í Evrópusambandið hefur öll
landamæravarsla verið hert.
Afleiðingin er sú að erfitt er að
flytja skinn til Rússlands sem
handfarangur frá Litháen. Eins og
stendur gengur verslun með grá-
vöm mjög vel í landinu. Sölutíma-
bilið byrjaði óvenju snemma og
gengur mun betur en síðastliðið ár.
Verð skinnanna sl. vetur var með
þeim hætti að gróði er af við-
skiptunum. Mjög lítið er af
skinnum á lager vegna lítilla kaupa
á sl. sölutímabili. Líkur em á að
allt verði uppselt um áramót og þá
verður vonandi keypt jafnt og þétt
allt næsta sölutímabil. Eingöngu er
verslað með sútuð skinn í Litháen
og eftirsóttastir eru dökkbrúnir
högnar í stærðarflokkana 1,0,00.
Lang flest skinn í Litháen koma frá
uppboðshúsunum í Skandinavíu
og eru þau alla jafna góð.
1 landinu eru framleidd um
200.000 skinn sem vegna lélegra
gæða og mikils framleiðslukost-
naðar em engan veginn samkepp-
nishæf við skinn frá Norður-
löndunum.
ÍTALÍA
Italía er á margan hátt í erfiðri
stöðu vegna östöðugleika í pólitík-
inni og allra erfiðleikanna við að
uppfylla skilyrði Maastricht sam-
ningsins.
ítalir em ráðandi í heiminum
hvað varðar tískuna í tilbúnum
flíkum (ready-to-wear). Það er því
afar mikilvægt að hinir stóru fram-
leiðendur kvenfata eru nánast allir
með bryddingar eða tilbúnar
kápur. Þetta er mjög mikilvægt þar
sem um er að ræða föt í milli
verðflokki og að þessir framleið-
endur halda skinnavöru stöðugt að
sínum viðskiptavinum m.a. með
því að hafa þær í sýningargluggum
sínum. Bændur og samtök þeirra
eiga að styðja við þetta vegna
mikilvægis málsins. Mikill fjöldi
ferðamanna heimsækir Italíu
einungis til að versla og efst á lista
þar em tískuföt.
Fjölmiðlar hafa algerlega
söðlað um hvað varðar umfjöllun
um grávöm. Sífellt fleiri blöð og
tímarit skrifa hlutlaust um málið.
Þeir tískublaðamenn sem áður
rituðu gegn pelsum em þeim nú
hliðhollir í skrifum sínum. Tísku-
tímarit fjalla mikið um pelsa og
bryddingar úr skinnum.
Vegna þess að ítalir hafa ekki
getað haldið stöðu sinni sem leið-
andi afl á skinnamarkaðnum hefur
því miður tapast nokkuð af kunn-
áttu í meðhöndlun vömnnar.
Erfitt er orðið að selja hefð-
bundnar kápur, það er búið að selja
svo mikið af þeim. Því er nauð-
synlegt að breyta útliti kápanna
algerlega. I því sambandi er nánast
nauðsynlegt að fá tískukóngana til
að leiða verkið. SAGA á Ítalíu er í
samstarfi við þekkt tískunöfn s.s.
Ferré, Genny og Fendi. Fendi hef-
ur verið fengið til að breyta notkun
refaskinna til bryddinga og virðist
sem það sé að skila sér í lítils
háttar auknum áhuga á ref.
Svo virðist sem aukning sé í
sölu á skinnavöm og ef veturinn
verður kaldur má gera ráð fyrir
áframhaldandi jákvæðri þróun.
Stór hluti framleiðslunnar á
Ítalíu fer til útflutnings. Svo virðist
sem í sumum löndum sé það fólki
mikilvægt að varan sé framleidd á
Ítalíu.
Vegna þess að ítalir eiga í
erfiðleikum með að keppa við
rússneska og kínverska kaupendur
hvað verð áhrærir em þeir sífellt
að leita eftir öðmm skinnum til að
nota í sína framleiðslu. Minkur og
refur frá Norðurlöndunum er þó sú
vara sem þeir vilja helst, vegna
þess hve skinnin eru samstæð.
Verðið í september var of hátt
fyrir Itali. Líklegt má telja að þeir
muni í framtíðinni kaupa mikið af
skinnum þegar verðið er viðráðan-
legt fyrir þá. Þetta er breyting þar
sem þeir hafa á undanfömum ámm
keypt þegar þá hefur vantað skinn.
Áhuginn er greinilega vaxandi
fyrir dökku skinnunum: Mahogany
og einnig virðist sem svartminkur
sé að ná vinsældum aftur.
SPÁNN
Spánverjar eru reiðubúnir að
kaupa mikið af skinnum. Eftir
mörg slök ár eru menn mjög já-
kvæðir og byggja það m.a. á eftir-
farandi:
-fjárhagsstaðan fer batnandi
-pelsar eru efst á tískulistanum
-spádómar um kaldan vetur.
Ef spár um kaldan vetur rætast
er enginn vafi að salan fer í 2,5-3
millj. skinna eða svipað og hún var
á ámm áður. Hefðbundinn minka-
pels er vinsælastur en bryddingar
seljast einnig vel.
Minkur er vinsælasti pelsinn á
Spáni og liturinn er brúnn, frá
Mahogany yfir í Scanbrown og
Scanglow
AÐRIR HLUTAR
EVRÓPU
Til viðbótar Ítalíu og Spáni er
þróunin jákvæð í Mið- og Norður
Evrópu og horfur góðar fyrir næsta
sölutímabil. Bæði er reiknað með
að vel seljist af kápum/jökkum og
flíkum með bryddingar á komandi
vetri.
NORÐUR AMERÍKA
Allar fréttir frá USA eru ják-
væðar. Smásalar kaupa mikið af
pelsum. Tískublöð eru full af um-
fjöllun um notkun á skinnum til
bryddinga og einnig kápur og
jakka.
Fjárhagslegt umhverfi er mjög
jákvætt og neytendur em þess al-
búnir að auka einkaneysluna, og
gera það að hluta til með því að
kaupa pelsa. Mögulegt er að
hafstraumurinn E1 Nino geti haft
tímabundin neikvæð áhrif í formi
óeðlilega hlýs vetrar.
Efst á vinsældarlistanum er
minkur en þar er einnig að finna
ref. Mahogany er vinsælastur lita,
en aðrir vinsælir em Scanblack,
Scanbrown og Blue Iris.
Vel f’erðir pelsar eru hreinustu listaverk.
Á undanförnum árum hafa starfsmenn danska
uppboðshússins farið á hausti hverju í heimsókn til
helstu kaupenda loðskinna í þeim tilgangi að reyna að
meta stöðu og horfur í sölumálum. Hér á eftir verður
gerð grein fyrir helstu niðurstöðum þeirra nú, en þær
voru birtar dönskum loðdýrabændum á fundum í
byrjun nóvember. Grein þessi er byggð á erindi því
sem flutt var á fyrrgreindum fundum.