Bændablaðið - 09.12.1997, Síða 13
Þriðjudagur 9. desember 1997
Bændablaðið
13
Dr. Leo Ernst, varaforseti rússnesku landbúnaðarvísindaakademíunnar,
afhendir Þorsteini Tómassyni skjalið._____________________________
Rússar sýna RALA virðingu
Þorsteinn Túmassnn kjörinn
í rússnesku landbúnaúar-
vísindaakademíuna
í liðnum mánuði var staðfest
kjör Þorsteins Tómassonar, for-
stjóra RALA, í rússnesku land-
búnaðarvísindaakademíuna. Á
fundi, sem haldinn var á RALA
afhenti dr. Leo Ernst, vara-
forseti rússnesku landbúnað-
arvísindaakademíunnar, Þor-
steini Tómassyni skjal frá aka-
demíunni til staðfestingar á því
að hann hefur verið kosinn
erlendur félagi í akademíuna
og er það mikil viðurkenning á
því starfi sem Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins hefur
lagt fram í þessu samstarfi.
Um árabil hefur verið mikið
samstarf um landbúnaðarrann-
sóknir á norðurslóð milli RALA
og systurstofnunar hennar í Maga-
dan í Austur-Síberíu. Þannig
dvöldu fyrir skömmu hér á landi
þrír landbúnaðarvísindamenn frá
Rússlandi og var heimsóknin liður
í samstarfsverkefni sem hófst árið
1993 milli Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins og systurstofnunar
hennar í Magadan í Austur-
Síberíu. Verkefnið, sem er styrkt
af vísindasjóði NATO, beinist
einkum að fóðuröflun og fóður-
verkun.
Verkefnið hófst í framhaldi af
gagnkvæmum heimsóknum vís-
indamanna frá Magadan og íslandi
árin 1989 og 1991. í tengslum við
þetta samstarf hafa bæði löndin
gengið til samstarfs um þróun
landbúnaðar á norðurslóð innan
vébanda Circumpolar Agricultural
Association. Það eru samtök sem
standa fyrir ráðstefnu á þriggja ára
fresti um viðfangsefni í
landbúnaði á þessum landsvæðum.
Innan ramma verkefnisins
hafa nokkrar gagnkvæmar ferðir
verið famar. Vísindamenn frá
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
heimsóttu til dæmis stofnanir í
Magadan og kynntu sér rekstur
samyrkjubúa, fjölskyldubúa og
tilraunastöðva þar í landi og
grundvöll þeirra bæði á sviði jarð-
ræktar og búfjárræktar.
INNI-FÓÐURSÍLÓ
úr galvanstáli með losunar og
áfyllingarútb.+filt.
Verð án vsk frá:
3,7 tn/kr. 84.200
5,1 tn/kr. 91.800
6,0 tn/kr. 99.100
7,3 tn/kr. 106.700
Margar stærðir.
Vélaval - Varmahlíð HF
Sími: 453 8888 Fax: 453 8828
Nú eru þeir fáanlegir traktorarnir sem allir hafa beðið eftir! Nýju
John Deere 5000 traktorarnir eru léttir, meðfærilegir og afar
hentugir í flesta algenga traktorvinnu. Þeir eru mjög léttir og spora
því lítið út. Þeir eru lágbyggðir og komast inn í eldri byggingar.
Traktorarnir eru liprir í allri notkun, þeir eru vel búnir og vinnan
verður auðveld.
# Tvær stærðir: 55 og 70 hö.
# 3ja strokka mótor m/forþjöppu
# Alsamhæfður gírkassi 24/24
# Vendigír
# Skriðgír
* 40 Km/klst.
O 2ja hraða aflúrtak 540/750
O Heildarhæð um 240 cm
* Heildarþyngd um 2.900 kg.
* Afar hagstætt verð
ÞOR HF
Reykjavík - Akureyni
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 - AKUREYRI: Lónsbakka, - Sími 461-1070
Kynnum nýju JOHN DEERE 5000 traktorana
LÉTTIR OG LIPRIR
HBændur!
mastri. Mesta
-------- hæð 1,5 m og
lyftihæð 1,70 m.
Verð frá kr.
380.000 + vsk.
Lyftarar ehf.
Vatnagörðum 16
Reykjavík
Sími 581 2655
GSM 852 2506
Fax 568 8028
KR Gjafagrindur
INUSTRN
KR Þjónustan ehf. Hlíðarvegi 2-4, 860 Hvolsvelli.
Gjafagrindur fyrir sauðfé, hesta og nautgripi
Nú tvær einingar, settar saman á staðnum, einfalt hentugri flutningur. Talið
er að u.þ.b. fjórða hver rúlla sparist vegna minna traðks og fjúks.
Hafið samband við vélsmiðju okkar í síma 487 8136.
Áratuga reynsla í smíði tækja fyrir landbúnað tryggir gæðin.
BEaaeBBaBBaaaBaaaaDBaaaafl
IBDBBHE
m