Bændablaðið - 09.12.1997, Qupperneq 23
Þriðjudagur 9. desember 1997
Bændablaðið
23
Bætt þjónusta við hestaeigendur
Samstarf um faglegri
fófirun hrossa
Vilhjálmur Þórarinsson bóndi
og heyverkandi Litlu-Tungu,
Davíð Jónsson fóðurfræðingur
og Bernharð Laxdal dýra-
læknir hjá Pharmaco sem er
umboðsaðili, MIRA hestavöru-
línunnar á íslandi hafa tekið
upp samstarf um faglegri
fóðrun hrossa.
Meginmarkmið samstarfsins er
að efla vitund hestaeigenda á fóðri
og fóðurvörum, vekja athygli á
Skynmatsaðferðir
fyrir fiskeldi
Ráðstefna hér á laadi í maí 1998
Vinnuhópur innan samtakanna
Norrænir rannsóknarmenn á land-
búnaðarsviði (Nordiska Jord-
brugsforskare förening, NJF)
stendur fyrir ráðstefnu um sky-
matsaðferðir fyrir fiskeldi. I
vinnuhópnum er einn fulltrúi frá
hverju landi og er formaður hóps-
ins Þyrí Valdimarsdóttir, matvæla-
fræðingur á fæðudeild Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins.
Ráðstefnan verður haldin í
Reykjavík daganna 21. til 24. maí
1998. Ráðstefnan er öllum opin
og er sniðin fyrir þá sem hafa
áhuga á gæðamálum í fiskeldi.
Fyrirlestramir verða haldnir á
ensku. Ráðstefnugjaldið er kr.
20.000 fyrir félaga í NJF og kr.
30.000 fyrir aðra, en innifalið í
gjaldinu eru hádegisverðir og tvær
heimsóknir í fyrirtæki. Gjald fyrir
félaga í NJF er 2000 kr á ári.
Þeir sem hafa áhuga á að sýna
veggspjöld á ráðstefnunni um
rannsóknir sem tengjast fiskeldi
geta hringt í Þyrí Valdimarsdóttir í
síma 577 1010. Hún tekur einnig
á móti skráningum á ráðstefnuna.
efha- og orkuþörf hestsins við mis-
munandi þroska- og brúkunarstig.
Lauslega áætlað eru um 10.000
hestar á húsi á Suð-Vestur homi
landsins og fóðurþörfm gæti því
verið um 10.000 tonn af heyi yfir
veturinn. Hey em af mismunandi
gerð og gæðum og hefur fram til
dagsins í dag oftast verið seld sem
óskilgreind söluvara þegar lykt- og
sjónmati sleppir. Verkun á heyi
hefur líka tekið miklum breyt-
ingum og ljóst er að um töluverða
breytingu er að ræða hvað efna- og
orkuinnihald áhrærir. Einkenni
ójafnvægis í orkugjöf er yfirleitt
auðvelt að leggja mat á. Erfiðar
getur verið að meta einkenni efna-
skorts og því oft farsælla að fyrir-
byggja heldur en að þurfa lagfæra
með lyfjagjöf.
Þeir félagar segja að heyverk-
un Vilhjálms sé nýjung hérlendis
en um er að ræða plastpakkaða
250 kg bagga þar sem þurrkstig er
á bilinu 70-80%. Vilhjálmur lætur
efnagreina heyfeng sinn og verð-
leggur samkvæmt fóðurgildum.
Við kaup á heyi frá Vilhjálmi fær
kaupandi yfirlit yfir orku- og efna-
innihald heysins. Sé þess óskað er
hægt að fá útskrift úr fóðurforriti
Davíðs þar sem sýnt er fram á að
með ákveðinni hey- og fóðurbætis-
gjöf megi fullnægja efna- og
orkuþörf hestsins.
Fóðurforritið metur þarfir
hestsins m.t.t. þroska, þyngdar og
brúkunarstigs. Einnig gefur forrit-
ið til kynna fóðurkostnað á dag
miðað við að forsendum forritsins
sé fylgt. í mörgum tilvikum getur
verið um mikla hagkvæmni að
ræða sé fóðuráætlunum fylgt.
MIRA hestavörumar eru fram-
leiddar af lyfjafyrirtækinu Bayer í
Þýskalandi. I þessu samstarfi er
horft til fóðurbætiefnanna með það
að leiðarljósi að þau geti bætt upp
þann mismun sem á vantar þegar
heygjöfinni sleppir. Þá er einnig
til orkudrykkur fyrir hesta við
mikið álag. Með MIRA er komin
nýjung í fóðurbætiefnum hérlendis
þar sem gerflóra er nýtt til að
koma á jafnvægi í meltingarvegi
hestsins og á þann hátt bætir
meltinguna og dregur úr líkum á
hrossasótt. Auk fóðurbætiefnanna
eru í MIRA línunni hreinlætis- og
hjúkmnarvörur.
Rétt er að taka fram að í
fyrmefndu samstarfi er ekki um
„allt eða ekkert“ fyrirbæri að ræða
heldur er öllum frjálst að tína þá
þætti úr sem hentar hverjum og
einum.
Davíð Jónsson, fóðurfrœðingur (t.v.) og Barnharð Laxdal, dýralœknir á
vinnufundi.
Bændur!
Mjólkurframleiðendur!
Hún er komin !! Edesa L63 er nú fáanleg.
Verð aðeins kr. 26.900 án vsk.
kr. 33.490. m.vsk
„Áríðandi er að sjóða eða þvo í
þvottavél á suðuprógrami alla
júgurþvottaklúta eftir notkun,
ef ekki eru notaðir einnota
pappírsklútar.
í Eyjafirði hafa bændur farið þá
leið með góðum árángri, að
eiga tvo umganga af klútum og
sjóða þá í þvottapotti með
einföldum tímarofa á nóttinni.
Ef þetta er gert, ráðlegg ég að
sleppa öllum íblöndunarefnum
í júgurþvottavatnið, þau eru til
lítils gagns.“ Bændablaðið 6.
maí 1997.
Glæsileg og
fullkominn þvottavél
á hreint ótrúlegu
tilboðsverði
Hún sómir sér vel
hvar sem er, í hvað
sem er,
Verðið gerir hana þó
sérlega áhugaverða
fyrir mjólkur-
framleiðendur.
Tvöfalt sett af klútum
í vélina eftir
kvöldmjaltir og þeir
bíða ykkar hrcinir
og gerilsneyddir að
morgni.
„Ég ítreka Ifka ábendingu mína
um júgurþvottaklútana, Það er
ekki samræmi í að sótthreinsa
mjaltakerfið, en þvo síðan
spenana á kúnum fyrir mjaltir
með gerlamenguðum klút.
(t.d.júgurb.gerlum) Sjóðið
kiútana alltaf, og hafið minnst
einn klút á hverja kú.“ Bænda-
blaðið 16. september 1997.
Tilvitnanir í tvær fræöslugreinar eftir
Kristján Gunnarsson
mjólkureftirlitsmann í Eyjafirði
SIEMENSBÚO,N
LJós • Heimilistæki • Viðgerðir
Glerárgötu 34, Akureyri, sími 462 7788
Aðalfundur Æðarræktarfélags íslands
Dúntekja var gófl f vor
þrátt lyrir aö varp væri
seial á ferO
Árni Snæbjörnsson,
Bændasamtökum fslands.
Laugardaginn 15. desember sl.
hélt Æðarræktarfélag íslands aðal-
fund sinn í Reykjavík. Fundurinn
var haldinn í Bændahöllinni og var
vel sóttur að vanda, en sjötíu
manns sátu fundinn.
Margt fróðlegt kom fram á
fundinum. Varp var óvenju seint á
ferðinni um allt land á liðnu vori,
en þrátt fyrir það var dúntekja góð
víðast hvar, nema á stöku stað á
Norðausturlandi, þar urðu sumir
fyrir áföllum vegna ótíðar. I einu
slíku varpi sást enginn bliki þetta
vorið og hafa ekki fengist
skýringar á því. Allt virðist því
benda til þess að dúntekja verði í
góðu meðallagi, en undanfarin ár
hefur útflutningur verið um og yfir
3000 kg af fullhreinsuðum æðar-
dúni á ári.
Á fundinum var rætt um að
tófu sé að fjölga, en samfara því
eykst tófugangur í æðarvörp svo
mikið að til vandræða horfir.
Æðarbændum finnst verulega á
skorta, að vandamál tengd vargi
mæti eðlilegum skilningi hjá
yfirvöldum.
Sala á æðardúni gekk vel á
liðnu ári og hefur verð á útfluttum
dúni aldrei verið hærra, en fram
kom að enn helst verðið gott, þó að
dregið hafi úr mestu spennunni
sem ríkt hefur varðandi eftirspum.
Þá var rætt um það tjón sem
verður þegar olía og/eða grútur fer
í sjó og drepur bæði æðarfugl og
annan fugl og vom nefnd nýleg
dæmi þar um frá Seyðisfirði og
Djúpavogi.
Greint var frá rannsóknum
þeim á æðarfugli, sem í gangi hafa
verið undanfarin ár, en niðurstöð-
ur sumra þeirra rannsókna liggja
nú fyrir.
Á fundinum var upplýst að ÆÍ
hyggst gefa út veglegt rit um æðar-
fuglinn. Vonast er til að það verði
fullbúið á 30 ára afmæli félagsins
haustið 1999. Ritnefnd er starfandi
og hefur hún ráðið Jónas Jónsson,
fyrrverandi búnaðarmálastjóra, rit-
stjóra verksins. Á fundinum kynnti
ritstjórinn hugmyndir að efnisvali,
en stefnt er að veglegu riti,
ríkulega myndskreyttu, sem fjalla
mun um flest það sem tengist
æðarfugli og æðarrækt fyrr og nú.
Á fundinum vom samþykktar
sex tillögur um eftirfarandi efni:
Frá stjóm ÆÍ; 1) Áskomn á
sjávarútvegsráðuneyti um að grá-
sleppuveiðar á Breiðafirði hefjist
ekki fyrr en 15. maí ár hvert og að
þeim ljúki eigi síðar en 25. júlí.
2) Áskorun til umhverfisráð-
herra um að hann beiti sér fyrir því
að hart verði tekið á þeirri um-
hverfismengun sem á sér stað
þegar olía og/eða grútur kemst í
sjó og rekur svo á fjömr og veldur
ómældu tjóni á fuglum og öðm
lífríki. Þetta verði gert með skýrri
lagasetningu sem kveði m.a. á um
a) að sekta þá sem menguninni
valda, b) bótum til þeirra sem
verða fyrir tjóni, c) hvemig bregð-
ast eigi við ofangreindum meng-
unarslysum varðandi úrbætur á því
sem aflajga fer við mengunina.
3) Osk til umhverfisráðherra
um að hann beiti sér fyrir því að
embætti veiðistjóra verði endur-
skipulagt og faglegi þáttur þess,
sem snýr að framkvæmd við fækk-
un tófu, minks og flugvargs er heijar
á íslenskan landbúnað, verði fluttur
til Bændasamtaka íslands og þá til
þess fyrirkomulags sem áður var.
Með hverri af ofangreindum
tillögum stjómar fylgdi svo ítarleg
greinargerð.
Frá æðarræktardeildinni Æðar-
vé barst eftirfarandi tillaga;
„Aðalfundur Æðarvéa, haldinn
á Reykhólum 10. nóv. 1997, beinir
eftirfarandi tilmælum til Æðar-
ræktarfélags Islands:
Félagið beiti sér fyrir því við
stjómvöld að betur sé tekið á
vömum gegn mengunarslysum en
verið hefur.
Stórslys af völdum olíu-
mengunar vofa sífellt yfir, en þau
geta haft geigvænlegt tjón á fugla-
lífi í för með sér. Strand Vikartinds
sl. vetur hefur beint athygli að
málinu, og aðkallandi hlýtur að
vera að herða vamir og reglur á
þessu sviði. Brýnt er að banni við
olíulosun skipa í sjó sé framfylgt."
Frá æðardúnsútflytjendum
barst tillaga um; að ÆI tilnefni tvo
fulltrúa og æðardúnsútflyjendur
tvo til að endurskoða núgildandi
reglur um dúnmat og gera tillögu
að breytingum fyrir næsta aðal-
fund ÆÍ.
Frá Pétri Guðmundssyni í
Ófeigsfirði kom eftirfarandi til-
laga: Skorað er á umhverfisráð-
herra að láta nú þegar hefja veiðar
á mink og ref í friðlandi Hom-
stranda með það að markmiði að
eyða mink og fækka ref verulega.
ítarleg greinargerð fylgdi.
Gestir fundarins fluttu ávörp
og kveðjur, þeir Guðmundur
Stefánsson, frá Bændasamtökum
íslands, og Ásbjöm Dagbjartsson,
veiðistjóri.
Stjóm ÆÍ skipa; Davíð Gísla-
son, frá Mýrum, formaður, en aðrir í
stjóm em Hermann Guðmundsson,
Stykkishólmi og Jónas Helgason,
Æðey. Varastjóm skipa þau Ámi G.
Pétursson, Vamsenda, og Ingibjörg
Eyþórsdóttir, Kaldaðamesi.
Á fundinum fór fram kosning á
fulltrúa ÆÍ til Búnaðarþings til
næstu þriggja ára. Kosningu hlaut
Jónas Helgason, Æðey og til vara
Valdimar Gíslason, Mýrum.