Bændablaðið - 09.12.1997, Page 29
Þriðjudagur 9. desember 1997
Bœndablaðið
29
Það var rosalegt - Sigurdór Sigurdórsson
blaðamaður og Hákon Aðalsteinsson leiða
saman hesta sína
Skógarbóndinn
Hákon Aóalsteinsson
,JÞað var rosalegtlí er heiti bókar sem Sigurdór Sigurdórs-
son, blaðamaður, skrásetti um Hákon Aðalsteinsson, hag-
yrðing, skógarbónda og lífskúnstner. Hér á eftir er birt
brot úr bókinni en fyrir valinu varð kafli með vísum eftir
Hákon. „Vísur hans hafa til að bera þann beitta húmor
sem greinir á milli venjulegs hagyrðings og snillingsins.
Hann er einnig einstakur sögumaður,“ segir á bókarkápu.
„Þeir Jökuldælingar kalla það að „Jökuldalssera“ sögur
þegar þær eru sagðar á þann hátt sem Hákon gerir. Það er
Hörpuútgáfan á Akranesi sem gefur bókina út.
og var orðljótur. Þá orti ég í hans
orðastað:
Á mér hefur andskotast
úfinn vetrardrunginn.
þetta djöfuls kuldakast
kœlir á mér punginn.
Eitt sinn gerðu kraftlyftinga-
menn harða hríð að Pétri Péturs-
syni, lækni á Akureyri, og enduðu
með málsókn á hendur honum
fyrir að segja að það yrði lítið
undir þeim eftir allt steraátið.
Málið fór alla leið fyrir Hæstarétt
og þar var Pétur sýknaður. Pétur er
góður hagyrðingur og skemmti-
legur maður og því fylgdist ég
með málinu. Þegar sýkna Péturs lá
fyrir urðu þessar vísur til:
Loks er Pétri létt i sál
laus úr öllum vanda.
En vaxtarœktar viðkvœm mál
virðast illa standa.
Berjast menn við harðan heim
hér á einu bretti.
Dœmt var ónýtt undir þeim
allt í Hæstarétti.
Dregur yfir drungaský,
dvínar sérhver von.
Krabbinn er að krœkja í
Kristján Ásgeirsson.
Og þegar harðast var keppt um
Útgerðarfélag Akureyringa varð
þessi vísa til, þar sem Erlingur Sig-
mðsson ffá Grænavatni sat í stjóm
ÚA, og samþykkti söluna til SH:
Vísur
I hremmingum
kirkjunnar, biskupsins og
prestanna árið 1996 var
farið að tala um að halda
veglega upp á þúsund ára
afmæli kristinnar trúar í
landinu. Mér þótti sú
umræða heljast á heldur
óheppilegum tíma og ég fór
að hugsa um hvar trú okkar
væri stödd eftir þessi þúsund
ár. Þá varð til þessi hmra:
Einhverju sinni sem oftar
var ég beðinn um að yrkja
afmælisvísu og þá varð þessi
til:
Þroskast rœna og ráð,
réttum aldri er náð
það má glæsileg tímamót
telja.
Allt er fertugum fært
þeim semflest hafa lært
sem hægt er að hafna og
velja.
Árangur þúsund ára
uppskera gleði og tára,
en hvar er hún nú
vor heilaga trú?
Klemmd milli kviðar og
nára.
Einlæg bæn okkar ber
inn í bœinn lijá þér
óskir á dýrðlegum degi.
Megi hugur og hönd
inn í hamingjulönd
gœfunnar vísa þér vegi.
Bœndablaðsmynd: Magnús Sigsteinsson.
ílok nóvember var tekið í notkun nýtt og glœsilegt hesthús að Torfastöðum
í Biskupstungum. Afþví tilefni héldu eigendurnir þau Drífa Kristjánsdóttir
og Ólafur Einarsson mikla veislu. Á myndinni sjást þau við veisluborðið í
hesthúsinu.
Ekki er von til að veröld á
nœstunni batni,
víða er barist um hlutdeild í
tekjum og arði.
Kolkrabbans angi er kominn að
Grœnavatni,
ég kvíði því mest efhann lœðist að
Starra í Garði.
kom í ljós að tveir prestar voru við
borðið og þá varð mér að orði:
í mínu lífi er brotið blað
bætist andans forði,
að vera talinn tækur að
tveggja presta borði.
Kunningi minn einn býr á
Héraði. Eitt sinn kom mikið kulda-
kast og hann bar sig illa undan því
Það var borið á mig, að
ég væri orðinn lélegur við að
yrkja. Þá varð mér að orði:
Sjá má þanin seglinfi'n
sveipar Ijómi gandinn,
er um sálarsundin mt'n
siglir ferskur andinn.
Það er gestagangur að
Húsum og um hann orti ég
þessa vísu:
Suma daga fæ ég lítinn frið
þvi'ferðamenn um Austurlandið
streyma.
Keppast við að koma héma við
hjá konunni efég er ekki heima.
Mikið gekk á í samkeppni
Sölumiðstöðvar hraðffystihúsanna
og Islenskra sjávarafurða um kaup
á fiskvinnslufyrirtækjum á landinu
fyrir nokkrum misserum. Þegar
keppt var um fiskvinnslufyrirtæki
á Húsavík, þar sem Alþýðubanda-
lagsmaðurinn Kristján Asgeirsson
var í forsvari sem bæjarfulltrúi,
datt mér í hug:
Halldór Blöndal, ráð-
herra, var einu sinni á hag-
yrðingakvöldi samt mér og
fleirum og bað okkur að
yrkja um Hvalfjarðargöngin,
sem hann virtist vera stoltur
af. Við vorum ekkert fjáðir
í það landsbyggðarmenn,
enda lítt hrifnir af Hval-
fjarðargöngum. Við viljum
fá almennilega vegi út um
landið. Þetta endaði þó með
því að ég féllst á að yrkja
um göngin eina vísu og það er
stutthenda. Vísan er svona:
Að grafa svona göng í jörð
er góður siður,
styttist leiðin norður, niður.
Ég var eitt sinn fenginn til að
skemmta á Ólafsfirði og lenti í
veislu á eftir. Þar var ég settur til
borðs með prúðbúnu fólki. Það
Sýnishorn úr söluskrá
Steyr 8110 4x4
Steyr 8090 4x4
Case 4240 4x4
Case 485 2x4
Zetor 5211 2x4
IMT 4x4
Ursus 4x4
MF 35
MF362 4x4
Ford 4100 2x4
Traktorsgrafa Volvo
T raktorsgrafa MF
Votheysvagn JF
Múgsaxari JF
Hjólagrind OK
90 hö m/framb. og tækjum
80 hö Árgerð 1992, m/tækjum
Árgerð 1996, m/tækjum
Árgerð 1988
Árgerð 1987
Árgerð 1987, m/tækjum
100hö Árgerð1987
m/multi power
Árgerð 1991
Árgerð 1978 m/tækjum
4x4 Árgerð, 1984
70 Árgerð 1976, 6 cyl
Árgerð 1977, 17 tonn
Höfum oft nýjar dráttarvélar á góðu verði.
Nýjar sláttuvélar og heyþyrlur afrúllarar á afsláttarverði.
Toyota Landcruser '93
Dodge Ram pic-up disel '97
Toyota Rav 4, sjáifsk. '97
Nissan Patrol '93
Ford Ranger pic-up '85
Cherokee '93 og '97
Cherokee Laredo '90
Nissan Patrol m/háan topp '94
Land Rover12 manna '71
Range Rover 5 dyra '85
M.Benz húsbíll '83
Ford Econoline húsbíll '88
MMC Lanser GLX 1500 "91
Dodge Neon '97
Dodge Voyager '97
"5§»-
Bíla- og
vélasalan
Sími 451 2617 & 854 0969
Fax 451 2890
530 Hvammstangi
^skum brendum n
^esturlunrfi og
fjölsfegldum þeirrn
gleðilegru jóla og
fursœldur á bomnndi nri.
J^aupféfag Jgorgfirðingu