Bændablaðið - 14.06.2000, Síða 2
2
BÆNDABLAÐIÐ
Miðvikudagur 14. júní2000
Fyrirspurn Ögmundar Jónassonar um íslandspóst:
Starfsmðnnum íslandspóst á
landsbyggOinni hefur Qðlgafl
- prátt fyrir afl póstúHbú haffii verifi Iðgð niflur
Ögmundur Jónasson alþing-
ismaður spurði á Alþingi á
vordögum hvaða áhrif skipu-
lagsbreytingar hjá íslandspósti
hf. hafi haft á starfsmannahald
og starfsmannastefnu á lands-
byggðinni frá því að stofnunin
var gerð að hlutafélagi. Vísar
hann þá til þess að á þinginu hafi
nú verið afgreidd Iög sem heim-
ila íslandspósti að ganga til sam-
starfs við banka og sparisjóði
um rekstur á starfsemi
póstþjónustunnar. Ögmundur
bendir á að í mörgum tilvikum
hafi póstútibú verið lögð niður,
t.d. á Laugarvatni, Reykjahlíð,
Grímsey og Brú í Hrútafirði og í
staðinn gerðir slíkir samstarfs-
samningar. í sumurn tilvikum
hafí starfsfólk pósthúsanna
misst vinnuna. Þá nefndi
Ögmundur dæmi um mann sem
hafi verið beðinn um að hætta
störfum hjá íslandspósti þar
sem hann var kominn nálægt 65
ára aldrinum en stefnan væri sú
að ráð yngra fólk til starfa.
I svari sínu sagði Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra að
starfsmannastefna Islandspósts
hefði ekki breyst, en í henni er lagt
áherslu á að bjóða starfsfólki
fjölbreytt störf og góða
starfsaðstöðu. Þá haft dreifingar-
starfið aukist nokkuð með tilkomu
áætlunar um fimm daga
póstþjónustu meðan afgreiðslu-
verkefni hafa dregist saman. Þar
sem þjónusta hafi minnkað fyrir
Landssímann og greiddum
gíróseðlum fækkað, hafí verið
reynt að hafa samstarf við aðra um
rekstur afgreiðslustaða, einkum
banka og sparisjóði, og hefur það
gefist vel. Einnig kom fram að 682
starfsmenn séu nú hjá Islandspósti
á landsbyggðinni og er það fjölgun
um 28 frá því sem var fyrir tveim-
ur árum.
Ráðherra sagði einnig ljóst að
breytingar yrðu á rekstrinum á
þessu ári og í einhverjum tilvikum
myndi fólki fækka þar sem verk-
efni hefðu dregist saman. Hann
segir að ekki verði horft framhjá
þeim þjóðfélagsbreytingum sem
átt hafa sér stað.
Einföld lausn
„Af hverju hefur mér ekki
dottið þetta í hug“, sagði
velunnari blaðsins þegar hann
rakst á þessa mynd í ensku
blaði, en hér má sjá hvernig
spegli hefur verið komið fyrir
á áburðardreifaranum þannig
að ökumaðurinn þarf ekki að
liggja hálfur aftur úr
dráttarvélinni til að sjá hvort
dreifarinn er orðinn tómur.
Ingvar
Helgason hf.
Vélavarahlutir, Sævarhöfða 2, sími 525 8040
Perkins
Varahlutir og síur í
Perkins vinnuvélar
OrQsending frá Forystu
Qárnæktarffllagi fslands
ForystuQárræktarfélag íslands var stofnað 18. apríl s.l. og hafa nú
þegar margir bændur og annað áhugafólk gengið í það. Er ánægju-
legt hve mikill áhugi er á vemdun og ræktun þessa merka fjárstofns
sem á sér enga aðra líka í heiminum. Eyðublöð fyrir inntökubeiðni
voru fyrr í vor send öllum sem sátu stofnfund félagsins svo og
ýmsum öðrum sem sýndu málefninu áhuga. Þeir sem vilja gerast
stofnfélagar skulu senda Ólafi R. Dýrmundssyni hjá Bænda-
samtökum íslands inntökubeiðnimar fyrir 30. júní n.k. Ef eyðublöð
vantar útvegar hann þau og eins em þau til hjá búnaðarsamböndum
um land allt. Ólafur segist reikna með að margir sendi inn inntöku-
beiðnir nú að loknum sauðburðarönnum.
Svæðisstöðvar Ríkisútvarpsins:
Rekstur svæOisstfiðva
verðnr enðurmetinn
Á vordögum spurði Pétur
Bjarnason varaþingmaður
menntamálaráðherra á Alþingi
uin svæðisstöðvar Ríkisútvarps-
ins. Vildi Pétur m.a. fá að vita
hvað gert hefði verið til eflingar
dagskrárgerðar á lands-
byggðinni til samræmis við
þingsályktun um stefnu í
byggðarmálum 1999-2001.
Einnig spurði Pétur hvort
ætlunin sé að útsendingar
svæðisútvarps Vestfjarða næðu
einnig til Strandasýslu,
Barðastrandar og Reykhóla.
í svari menntamálaráðherra,
sem byggt var á upplýsingum frá
Ríkisútvarpinu, kemur fram að
samkvæmt árangursstjómunar-
samningi menntamálaráðuneytis-
ins og Ríkisútvarpsins sé stefnt að
því að styrkja fréttaöflunarkerfi
Ríkisútvarpsins, styrkja dreifi-
kerfið og auka efni frá lands-
byggðinni. Fram kemur að I. júlí í
fyrra hafi hafist svæðisbundnar
útsendingar á Suðurlandi sem
Utvarp Suðurlands á Selfossi sér
um og þá hafi verið samið við
fréttablaðið Skessuhorn í Borgar-
nesi um fréttir og pistla af Vestur-
landi. Þá sé verið að vinna að end-
urskipulagningu á fréttastofum
Ríkisútvarpsins, eflingu fréttarit-
arakerfisins og að virkja
svæðisstöðvamar til fréttaöflunar
bæði fyrir útvaip og sjónvarp. Þá
sé gert ráð fyrir auknum umsvifum
Sjónvarpsins á landsbyggðinni
þegar næsta vetrardagskrá verður
áætluð.
I svarinu kom einnig fram að
rekstur svæðisstöðvanna verði
endurmetinn, m.a. með tilliti til
þeirra sjónarmiða að þær eigi fyrst
og fremst að sjá um dagskrárefni
sem sé fiutt í útvarpi og sjónvarpi
á landsvísu. Þá sagði ráðherra að
endurvarp dreifikerfis Rásar 2 fyr-
ir Hólmavík muni tengjast
svæðisútvarpinu þannig að íbúar
við Steingrímsíjörð nái útsending-
um þess. Hins vegar sé flókið og
kostnaðarsamt að tengja
Barðaströnd og bæi í Strandasýslu
og því muni aðrar brýnni aðgerðir
í dreifikerfismálum ganga fyrir,
svo sem að bæta sjónvarps- og
útvarpsskilyrði í byggðakjömum á
Vestfjörðum með Ijósleiðar-
avæðingu og nýjum sendum.