Bændablaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 27
Miðvikudagur 14.júní 2000
BÆNDABLAÐIÐ
27
Tveir góðir saman[
Búvfsnndar á foraldslæti
Föstudaginn 24. mars lögðum við
nemendur í Búvísindadeild II í
Landbúnaðarháskólanum á
Hvanneyri af stað í þriggja daga
fræðslu- og skoðunarferð norður í
land. Meiningin var að skoða sem
fjölbreyttastan búskap á mörgum
bæjum. Fararstjóri var Bjami
Guðmundsson og bflstjórinn var
Guðmundur Hallgrímsson, bú-
stjóri á Hvanneyri. Fyrsti bærinn
var Sölvabakki í Engihlíðarhreppi
en þar er búið með tæpar 500 kind-
ur og nokkur hross. Aður höfðum
við þó rennt aðeins fram í Vatns-
dal til að skoða okkur um á heim-
aslóðum Guðmundar bústjóra.
Næst lá leiðin norður yfir Vatns-
skarð og var áð á Syðra-Skörðug-
ili. Þar var margt að skoða. Við
byrjuðum í loðdýrahúsunum og
fengum þar góðan fyrirlestur um
loðdýrarækt. Einnig skoðuðum við
þar í hesthúsið og íjárhúsin. Næsti
viðkomustaður var Keldudalur í
Hegranesi en þar er nýlegt
legubásafjós auk annarra nýjunga
sem var spennandi að sjá s.s.
sjálfvirk kálfafóstra og kjarn-
fóðurbás sem hvort tveggja var
tölvustýrt. Loks var haldið heim
að Hólum en þar beið okkar
kvöldverður og skoðunarferð um
staðinn. Við vorum svo heppin að
þá um kvöldið var Grímutölt
þeirra Hólamanna og var gaman
að fylgjast með því. Við gistum
svo á Hólum um nóttina.
Á laugardeginum héldum við
sem leið lá yfir Öxnadalsheiði að
tilraunabúinu á Möðruvöllum. Þar
var fróðlegt að skoða sig um og
fengum við fræðslu um helstu
verkefni sem fyrir liggja og starf-
semina almennt. Næst keyrðum
við í Kjamaskóg og fengum kynn-
ingu á starfsemi Skógræktarfélags
Eyjafjarðar. Þaðan keyrðum við í
Hrafnagil, stærsta kúabú landsins
og tók Benedikt bóndi á móti okk-
ur cg sýndi okkur fjósið. Við
áttum alveg eftir að skoða svínabú
í ferðinni og því héldum við næst
sem leið lá að Hraukbæ þar sem
búið er með svín. Þar var geysi
fróðlegt að koma, enda fæst okkar
fróð um slíkan búskap. Við
enduðum síðan skoðunarferð laug-
ardagsins í verksmiðju Sól-Víking
á Akureyri og fengum þar kynn-
ingu á ferli þeim sem kölluð er
bruggun. Um kvöldið fórum við út
að borða á Greifanum og litum
aðeins á bæjarlífið á Akureyri.
Sunnudagurinn rann upp með
blíðskaparveðri og héldum við
áleiðis til baka. Fyrsti viðkom-
ustaður á þeirri leiðinni var Torf-
alækur í Austur-Húnavatnssýslu
og þar skoðuðum við fyrsta laus-
agöngufjós á landinu með nýjuin
kjamfóðurbás. Gauksmýri í Vest-
ur-Húnavatnssýslu var næsti
viðkomustaður, og skoðuðum við
þar tamningamiðstöðina og feng-
um góða kynningu á starfseminni
þar. Síðasti bærinn sem við
heimsóttum í ferðinni var Bess-
astaðir á Heggstaðanesi og var vel
við hæfi að enda ferðina á
blönduðu búi sem þar. Þar var nýtt
lausagöngufjós með tilheyrandi
nýjungum sem spennandi var að
sjá. Auk þess var litið í fjárhúsin
og hesthúsið.
Ferð þessi heppnaðist í alla
staði frábærlega. Norðlensk
veðurblíða lét ekki að sér hæða og
brosti sólin við okkur alla dagana.
Móttökur voru höfðinglegar á
öllum stöðum, og kunnum við
gestgjöfum okkar bestu þakkir fyr-
ir. Einnig þökkum við styrktaraðil-
um ferðarinnar en þeir vom
Áburðarverksmiðjan hf., Kaupfé-
lag Eyfirðinga, Osta- og smjörsal-
an og Kaupfélag Borgfirðinga.
Framlag þeirra til ferðarinnar gerði
hana mögulega. Síðast en ekki síst
eiga Bjami Guðmundsson og
Guðmundur Hallgrímsson einstak-
ar þakkir skildar fyrir frábæra
umsjón ferðarinnar og viljum við
koma þeim hér á framfæri.
Búvísindadeild II við
Landbúnaðarháskólann á Hvann-
eyri.
A10
NOTUÐUM
RÚLLU-
BINDIVÉLUM
Claas R44
árgerð 1988
baggastærð 120x120
Ásett verð
kr. 450.000- án vsk
Verð nú
kr. 330.000-
án vsk
Afsláttur
kr. 120.000- án vsk
Claas R46
árgerð 1989
baggastærð 120x120
Ásett verð
kr. 450.000- án vsk
Verð nú kr.
350.000-
án vsk
Afsláttur kr.
100.000- án vsk
Welger
RP12
árgerð 1989
baggastærð 120x120:
Ásett verð
kr. 450.000- án vsk
Verð nú kr.
350.000-
án vsk
Afsláttur kr.
100.000- án vsk
Welger
RP200/2M
árgerð 1992
2ja metra sópvinda,
garn/netbinding
baggastærð 123x125
Ásett verð
kr. 680.000- án vsk
Verð nú kr.
550.000-
án vsk
Afsláttur kr.
130.000- án vsk
Claas R46
árgerð 199
baggastærð 120x120
Ásett verð
kr. 500.000- án vsk
Verð nú kr.
390.000-
án vsk
Afsláttur kr.
110.000- án vsk
Deutz-Fahr
GP220
árgerð 1985
baggastærð 120x120
Ásett verð
kr. 350.000- án vsk
Verð nú kr.
250.000-
án vsk
Afsláttur kr.
100.000- án vsk
Welger
RP12
árgerð 1991
baggastærð 120x120;
Ásett verð
kr. 500.000- án vsk
Verð nú kr.
390.000-
án vsk
Afsláttur kr.
110.000” án vsk
Welger
RP12S
árgerð 1990
baggastærð 120x120,
sópvinda 1,8 mtr.
Ásett verð
kr. 550.000- án vsk
Verð nú kr.
450.000-
án vsk
Welger
RP200
árgerð 1992
baggastærð 123x125
Ásett verð
kr. 500.000- án vsk
Verð nú kr.
450.000-
án vsk
Afsláttur kr.
50.000- ánvsk
VELAVERf
Reykjavík sími 588-2600
Akureyri sími 461-4007
Lægsta verðið - Besta ástandið