Bændablaðið - 25.02.2003, Qupperneq 10

Bændablaðið - 25.02.2003, Qupperneq 10
10 Btendablaðið Þridjudagur 25. fehrúar 2003 Myndin var tekin á bændafundi, sem Bændasamtökin efndu til í Miðfirði. Þarna er hún Heiðrún Brynja Guömundssdóttir, Neðri Torfustöðum, að prjóna fallega flík, og hlusta á ræðumenn. Viö hlið hennar situr bóndi hennar Benedikt Björnsson en Ijær er Niels ívarsson, bóndi á Fremri Fitjum. Landgræðsla ríkisins auglýsir til umsóknar styrki úr Landbótasjóði Landeigendur, félög, félagasamtök og aðrir umráðahafar lands geta sótt um styrk úr Landbótasjóði. Þau verkefni sem hæf eru til að hljóta styrk úr sjóðnum þurfa að falla að markmiðum og áherslum landgræðsluáætlunar 2003 - 2014. Áhersla verður lögð á að styrkja m.a.: Landbætur sem viðurkenndar eru af Landgræðslu ríkisins, þ.m.t. stöðvun hraðfara jarðvegsrofs, uppgræðsla og skipulag landnýtingar. Bætta beitarstjórnun á afréttum og öðrum sameiginlegum beitarsvæðum þ.m.t. friðun við- kvæmra svæða og rofsvæða svo og afmörkun á beitarhæfum svæðum. Heildarframlag í Landbóta á árinu 2003 er 5 milljónir kr. Hámarksfjárhæð styrks getur numið allt að 2/3 kostnaðar vegna vinnu, tækja og hráefnis. Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur fýrir Landbótasjóð eru á heimasíðu Landgræðslu ríkisins (http://www.land.is). Nánari upplýsingar eru veittar í Gunnarsholti og á héraðssetrum Landgræðslunnar. Skila skal umsóknum til Landgræðslu ríkisins í síðasta lagi 24. mars 2003. Umctgrað*l« rlktun* Landgræðsla ríkisins Gunnarsholti, 851 Hella Sími 488-3000 Netfang: land@land.is Aipasamningar Nú stcndur yfir ný lota í viðræðum á vegum WTO. Að þcssu sinni er m.a. fjallað um takmarkanir á leyfilegum aðgerðum stjórnvalda í hverju aðildarlandi samningsins til að styðja sinn landbúnað, og frjálsara flæði búvara milli landa. Niðurstaða liggur ekki fyrir og ljóst er að verulegur ágreiningur er á milli þeirra ríkja sem mcstu munu ráða um niðurstöðuna. (Minnir að ýmsu leyti á GATT-lotuna fyrir áratug eða svo). Eftirfarandi punktar lýsa í stuttu máli því sem mér finnst mestu skipta í stöðunni eins og hún er nú: •Aðild íslands að samningnum og afleiðingar/áhrif hans á íslandi eru á ábyrgð íslenskra stjórnvalda. •Við væntum þess að stjórnvöld vinni að því að nýr WTO-samningur yerði þannig að landbúnaður á íslandi geti þrifist, þrátt fyrir samninginn. •Það er mjög nauðsynlcgt að íslensk stjórnvöld annars vcgar og hagsmunasamtök í landbúnaði hins vcgar skiptist á skoðunum og upplýsingum um málið. •Áætlað er að þessari lotu samninganna Ijúki árið 2005, en óvíst er hvort það næst. Þá hefst væntanlega aðlögunarferli sem aðildarlönd samningsins þurfa að hlýta. •Eitt það erfiðasta næstu mánuði og misseri er að túlka það sem fram kemur í umræddumWTO-viðræðum. Hvort, hvenær og hvernig á að bregðast við? Að mínu mati er þetta stærsta spurningin sem við stöndum frammi fyrir núna. •Við cigum að segja frá og túlka það sem rætt er, en við eigum ekki að liefja aðlögun að einhverju sem við höldum að verði. •Aðlögun er þá fyrst tímabær þcgar skrifað hefur verið undir endanlegan samning. Bara atriði eins og hugsanleg undanþága fyrir einangruð smáríki til að styðja framleiðslu fyrir heimamarkað gæti gerbreytt forsendum okkar, t.d. varðandi nautgriparæktina. Slík undanþága er mögulcg alveg fram til loka viðræðnanna. Munum eftir „íslcnska ákvæðinu" og Kýótó- samkomulaginu. •Við eigum ekki að gera lítið úr því að niðurstaðan í WTO-viðræðunum geti knúið á um breytingar, raunar mjög miklar breytingar. Við megum hins vegar ekki draga kjarkinn úr bændum og öðrum sem málinu tcngjast, það drepur landbúnaðinn innan frá. •íslensk stjórnvöld og hagsmunasamtök í landbúnaði eiga að halda ró sinni þar til endanlcg niðurstaða liggur fyrir í viðræðunum. Þegar niðurstaða er fengin, verði brugðist við með það að markmiði að hér geti áfram þrifist lífvænlegur landbúnaður. Þórólfur Sveinsson StuQningup FramleiOnisjQQs við nýsköpnn í landbúnaði Bjarni Guðmundsson, prófessor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, flutti erindi á ráðu- nautafundinum sem hann og Jón G. Guðbjörnsson sömdu og nefna „Stuðningur Framleiðni- sjóðs við nýsköpun í land- búnaði." Framleiðnisjóður hefur starfað síðan árið 1966 og er hlutverk hans að veita styrki og lán til fram- leiðniaukningar og hagræðingar í landbúnaði og atvinnurekstrar á bú- jörðum. Fjármagn til sjóðsins er starfsfé sem ríkissjóður veitir, en tekjur koma einnig af kjam- fóðurtollum og loks hefúr sjóðurinn nokkrar vaxtatekjur. Fjármagn sjóðsins í ár eru rúmlega 220 milljónir króna. Bjami sagði varðandi starfs- hætti sjóðsins að þar sé um að ræða samstarfsvettvang bænda og ríkis- valdsins hvað snertir umbætur og nýsköpun í landbúnaði. Hann sagði þetta skýrast bæði af tilurð fjár- magnsins sem og starfsháttum við skipan stjómar, en sjóðsstjómin er skipuð tveimur fúlltrúum sem Bændasamtökin tilnefna, tveimur fúlltrúum sem landbúnaðarráðherra tilnefnir og einum fúlltrúa sem ráðherra byggðamála skipar. Framleiðnisjóður fer einnig með málefni Garðávaxtasjóðs sam- kvæmt sérstakri reglugerð er um hann gilda. Bjami sagði að skipta mætti starfssögu Framleiðnisjóðs niður í þrjá kaffa. Fyrsti kaflinn fólst fyrst og ffemst í stuðningi við afúrða- stöðvar, ekki síst við byggingu sláturhúsa og nokkm fé var varið til rannsókna í landbúnaði. Á ámnum 1980 til 1992 var fé varið til bú- háttabreytinga en síðan 1992 má segja að Framleiðnisjóður sé alhliða þróunarsjóður fyrir land- búnaðinn með áherslu á ffam- leiðniaukningu og nýsköpun at- vinnu til sveita. Hann sagði að sjóðurinn legði áherslu á að fjármagn ffá honum væri til viðbótar ffamlögum ábyrgðaraðila verkefhanna. I upphafi hvers árs setur stjóm Framleiðnisjóðs sér starfsstefhu. Fyrir árið 2002 er hún þessi: Framleiðnisjóður landbúnaðarins styður með sfyrkjum og lánum verkefhi til nýsköpunar og ffam- leiðniaukningar í landbúnaði og við aðra eflingu atvinnu í dreifbýli. Framleiðnisjóður leggur áherslu á að fjármagn sjóðsins verði til viðbótar ffamlögum ffá ábyrgð- araðilum verkefnanna, bæði eigin f]ár og því sem þeir kunna að afla frá öðrum. Framleiðnisjóður leggur á árinu 2002 áherslu á viðfangsefni sem hafi þessi markmið: Að auka ffam- leiðni búgreina með rannsókna- og þróunarverkefnum, að styrkja tekjumöguleika á einstökum búum með nýsköpun í búrekstri, að efla kunnáttu og fæmi í búrekstri, að efla og styrkja markaði fyrir búvömr og þjónustu búanna, að sfyðja hagræðingu í úrvinnslu búsafúrða og efla atvinnufyrirtæki í dreifbýli. Þegar um er að ræða verkefhi á einstökum bújörðum og lögbýlum tekur sjóðurinn þátt í allt að 30% kostnaðar, en þó ekki hærri upphæð en 1.750 þúsund krónur á verkefhi. Undantekningar em þó gerðar ef um er að ræða verkefiii sem skapar fleiri ársverk en eitt, þá getur upphæðin orðið hærri. Lán sem sjóðurinn veitir em skammtímalán. Það fjármagn sem til bænda hefúr mnnið til nýsköpunar á bú- jörðum eða ýmis verkefhi á vegum bænda og samtaka þeirra auk fyrir- tækja í dreifbýli á ámnum 1999 til 2001 var tæpur helmingur af fjármunum sjóðsins þessi ár. Um það bil þriðjungur fjármuna sjóðs- ins hefúr mnnið til þróunarverkefha af ýmsu tagi. Framleiðnisjóður hefúr haft samvinnu við RANNÍS um tíu ára skeið um ýmis rannsóknaverkefni á sviði landbúnaðar. Um það bil 9% af fjármunum sjóðsins síðustu þrjú árin hafa farið til endurmenntunar og 10% í markaðsöflun. Samkvæmt könnun sem sjóðs- stjómin lét gera um hvemig þeim verkefnum á bújörðum sem sjóð- urinn sfyrkti á ámnum 1989 til 1999 vegnaði kom í ljós að 80% þeirra náðu fram að ganga og sköpuðu 1,75 ársverk að meðaltali en 20% dagaði uppi af ýmsum ástæðum. Könnun var gerð í Borg- arfjarðarsýslu, S-Þingeyjarsýslu og V-Skaftafellssýslu. I lokin nefndi Bjami verkefhi sem Framleiðnisjóður hefúr sfyrkt og komið á nýsköpun. Hann nefhdi afkvæmarannsóknir á sauðfé, bleikjueldi á Hólum, kynbætur ali- fúgla, loðdýraræktin og fóður- eftirlitið á Hvanneyri, fóðurrann- sóknir á Rala, kynbætur, ræktun og nýting koms líka á Rala, tölvu- væðing búnaðarsambandanna og endurmenntunarþátturinn. Ljósabretti á kerrur og vagna L: 123 cm. B: 14 cm. Rafmagnssnúra 6 m. Stök Ijós • 4 í einu Bremsu-, stefnu-, stöðu- og númeraljós Urval Skeifunni 2-108 Reykjavik Sími 530 5900 • poulsen@poulsen.is www.poulsen.is

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.