Bændablaðið - 25.02.2003, Page 18
18
Bændoblaðið
Þridjudagur 25. febrúar 2003
Landstilutum
mismunaO
varðandi styrki
fli menningarmála
Á vefsíðu Skessuhoms segir:
I'orsvarsmenn menningar-
stofnana á Vesturlandi, svo og
sveitarstjómarmenn, em ekki
alltof kátir með úthlutun styrkja
til menningarmála á Vesturlandi
samkvæmt ljárlögum.
Samkvæmt samantekt sem
unnin var af markaðsskrifstofu
Akranesbæjar úr fjárlögum fyrir
árið 2003 em styrkir til safna á
Vesturlandi 10,2 milljónirá
árinu. Ef borið er saman við
aðra landshluta er Vesturland
langlægst. Næst kemur
Austurland með 30 milljónir og
Vestfirðir með 44,2 milljónir.
Styrkir til safna á Norðurlandi
eru 54,2 milljónir og söfn á
Suðurlandi fá 63,5 milljónir. Af
landshlutum utan höfuðborgar-
svæðisins eru söfn á Reykjanesi
í toppsætinu en þau fá sfyrki
sem nema 73,9 milljónum
króna. Söfn í Reykjavík fá síðan
langstærsta styrkinn eða samtals
301,3 milljónir.
Framleiða mjólkursíur
ag júgurþvotteklúta
Á myndinni hér aö ofan má sjá
Kristinu Björnsdóttur starfsmann
Plastiöjunnar Bjargs-lðjulundar á
Akureyri að sauma mjólkursiur
sem bændur þekkja af langri
reynslu. Og þaö er Nanna
Haraldsdóttir (t.h.) sem er að raöa
siunum í kassa. Þrátt fyrir allt
hefur PBI haldið stööu sinni í
sölu á mjólkursíum og sifellt
meira selt af löngum síum. PBI
framleiðir einnig júgurþvotta-
klúta.
Fjósaskoðun dýralækna
Á fundi LK á Akureyri nú í
haust komu fram verulegar athuga-
semdir við vinnubrögð við fjósa-
skoðun hér á þínu svæði. Þar sem
samkvæmt lögum um þau mál er
ábyrgðin héraðsdýralæknis vil ég
biðja þig að svara nokkrum
athugasemdum sem við teljum að
ekki hafi komið viðunandi svör
við.
Á þessum fundi kvörtuðu
bændur yfir óvönduðum vinnu-
brögðum við framkvæmd ijósa-
skoðunar. Það versta í þessari um-
ræðu var það að allir sem tóku til
máls höfðu sömu sögu að segja.
Lítil sem engin skoðun fór ffam.
Því langar mig að spyrja hvemig
þú getur gefíð út mjólkursöluleyfi
byggt á jafn hæpnum upplýsing-
um. Afraksturinn af þessum heim-
sóknum er ekki annar en sá að
bændur borga um 14 þús. krónur
fyrir marklausan pappír sem ekkert
segir um stöðu mála, að minnsta
kosti ekki hér hjá okkur og ég geri
ekki ráð fyrir að bændum sé mis-
munað við þetta eftirlit.
Eins og framkvæmdin er hér er
enginn hagnýtur ávinningur af
skoðuninni fyrir bændur. Ef þessi
skoðun á að veita öryggi er gildið
ekkert! Hún segir ekkert um ástand
mála, en eins og yfirdýralæknir
segir þá á hún að "vitna um ástand
á hverjum bæ á þeim tíma sem
skoðun fer fram". Hvers virði er
"skoðun" þar sem form er fvllt
út í m jólkiirln'isi án allrar
skoðunar að sumri til op nánast
engir gripir í fjósinu? Dæmi um
óvönduð vinnubrögð eru að gefið
er gott fyrir ástand klaufhirðu,
steyptan flór og rimlaflór, einnig
húsaskjól fyrir sjúka útigangsgripi
sem við þó eigum enga, hvað þá
heldur skjól fyrir þá. Með lind og
yfirborðsvatn í lagi, en tökum vatn
úr borholu. Þá langar mig til að
vita hvaða tækni er notuð til að
mæla "Hvorl varhugaverðar loft-
tegundir séu í fjósinu, (4. gr.")
þegar það er nánast tómt?
í síðasta fféttabréfi ffá Ráð-
gjafarþjónustu í landbúnaði hér á
Akureyri er ffétt ffá Búgreinaráði
BSE í nautgriparækt. í þeirri ffétt
eru nokkur atriði sem þarfnast
frekari útskýringa. Halldór yfir-
dýralæknir segir í samtali sem ég
Opið bréf frá
Guðmundi J.
Guðmundssyni til
Olafs Valssonar
héraðsdýralæknis
vegna fjósa-
skoðunar 2002
átti við hann að gjaldskráin hafi
verið sett í febrúar árið 2000 og
eins og aðrar opinberar giald-
skrár ákvörðuð samkvæmt
kostnaði.
Eftir þér er haft í áðumefndu
fféttabréfi að vinnuþátturinn sé
ekki allur sýnilegur fyrir fram-
leiðandann. Því fer ég fram á að þú
útskýrir fyrir mér og öðrum
hvemig 10 mínútna skoðun, sem
að mestu fór fram í mjólkurhúsinu,
geti kallað á 2.8 tíma vinnu. Við
skulum gefa okkur 20 mín í milli-
ferðir þannig að eftir standa þá 2
tímar og 15 mínútur. Ég var 4
mínútur að fylla út listann eins og
gert var hjá okkur með því að
krossa á sama stað í alla reiti hans
hvort sem viðkomandi atriði var til
staðar eða ekki, í lagi eða ekki.
Ekki er eðlilegt að allir eigi að
greiða sama gjald hvort sem allt er
í lagi eða ekki. Því eins og áður
segir er þetta opinber gjaldskrá
ákvörðuð samkvæmt kostnaði. Því
hlýtur gjaldið að verða annað hjá
þeim sem þarf að heimsækja oftar.
Ég get ekki séð í 13. gr. reglu-
gerðar nr. 438/2002 sem fjallar um
skoðunina að gert sé ráð fyrir öðm
en að héraðsdýralæknir sjái um
það ef þarf að beita þvingunar-
ákvæðum. Þar er hvergi stafur um
að þeir sem allt er í lagi hjá greiði
niður kostnað fyrir hina.
í fréttabréfmu segir: Að úr-
bótum sé raðað í mismunandi for-
gangsröð eftir framleiðendum.
Hvemig í ósköpunum er hægt að
hafa mismunandi forgangsröð hjá
ffamleiðendum og gera ráð fyrir
því að útkoman verði trúverðug,
að ég segi ekki marktæk. Hvemig
getur þú t.d. fært sannfærandi rök
fyrir því að Jón Jósson þurfi sal-
emi í fjósið en séra Jón Jónsson
ekki? Sérstaklega með tilliti til
þess að í reglugerðinni segir:
"Héraðsdýralœknar skulu, hver í
sínu umdœmi, hafa eflirlit með því
að ákvœðum reglugeróar þessarar
sé framfylgt. Héraðsdýralæknar
skulu reglulega sœkja sérstakt
námskeiö á vegum yfirdýralœknis
og Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri, til samrœmingar á
eftirliti samkvœmt reglugerð
þessari."
Ætlar héraðsdýralæknir að taka
á sig ábyrgð á ástandi mála eftir
svona kák. Það er eina orðið yfir
svona vinnubrögð og munu fleiri
bændur tilbúnir að vitna um svip-
uð vinnubrögð, eins og berlega
kom ffam á fúndi LK.
í áður nefndri reglugerð er líka
gert ráð fyrir að þeir sem fara á
milli Qósa gæti hreinlætis "...dvra-
læknar.... oe aðrir sem koma í
miólkurhús op/eða fíós skulu væta
vtrasta hreinlœtis til að koma í veg
fvrir að smit berist í fiósið." Því
spyr ég: Hver er kostnaður em-
bættisins vegna þessa við fjósa-
skoðunina? Þ.e. notkun á einnota
skóhlífum og yfirhöfhum, og sótt-
hreinsun þegar farið er yfír sótt-
vamarlínuna sem skiptir t.d. Eyja-
fjarðarsveit eftir endilöngu? Var
hann kannski enginn? Ekki var
neitt af því tagi notað hjá okkur og
er þó hvom tveggja til taks í
fjósinu.
Að lokum þetta: Ef þér finnst
þú eða embættið verða fyrir að-
kasti með þessum spumingum þá
er það ekki ætlunin heldur finnst
mér að embættismenn eigi að þola
rökstudda gagnrýni sem snýr að
störfum þeirra sem embættis-
manna en ættu að geta haldið
einkaskoðunum sínum þar fyrir
utan.
Bændur hljóta að eiga rétt á
sanngjarnri umræðu, og vandaðri
og markvissri skoðun sem byggir á
faglegum vinnubrögðum sem þá í
leiðinni geta síað þá ffá sem ekki
hafa metnað til að standa vel að
framleiðslu matvæla.
Það þarf að vera markmið
bænda að hafa hlutina í sem bestu
lagi og er þetta eftirlit, ef vel er að
staðið, góður vettvangur til þess að
bændur og effirlitsaðilar geti farið
saman yfir stöðuna og komið
málum í sem best horf.
Við þurfúm ekki málamynda-
gjöming sem ekkert er byggjandi á.
Með vinsemd og virðingu.
Guðmundur Jón
Guðmundsson
Óðinn Örn Jóhannsson,
búfræðikandídat, hefur
verið ráðinn búfjáreftir-
litsniaður í Rangárvalla-
sýslu og hefur þcgar
tekið til starfa. Óðinn
Örn útskrifaðist frá
Landbúnaðarháskólanum
á Hvanneyri vorið 2001 og
hefur síðan m.a.
starfað við kennslu í
Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Sel-
fossi. Óðinn Örn er
sunnlenskum bænd-
um ekki með öllu
ókunnur, en hann
var sl. haust m.a. í
sauðfjárdómum og
úttektum jarðabóta
fyrir Búnaðarsam-
bandið.
Nýttstarf
Óðinn Öm sagði í
samtali við tíðinda-
mann Bændablaðsins
að búQáreffirlit það
sem hann er að taka
að sér væri samkvæmt lögum nr.
103 frá árinu 2002 og væri því um
nýtt starf og ómótað að ræða. Inn í
þetta nýja starf kemur forðagæsla,
sem áður var sjálfstætt
starf. Auk þess ber búfjár-
eftirlitsmanni að hafa
eftirlit með ásigkomulagi
skepnanna og öllum
aðbúnaði þeirra. Síðan ber
honum að gefa skýrslu
vor og haust. Óðinn Öm
mun vera fyrsti maðurinn
sem ráðinn er til
starfa samkvæmt
þessum nýju
lögum.
„Mér telst til að
það séu 468 bæir
sem ég þarf að heim-
sækja. Menn vita
ekki enn hve langan
tíma skoðunin tekur,
en gert hefúr verið
ráð fyrir því að tveir
tímar dugi á
hveijum bæ. Það
verður svo bara að
koma í ljós eins og
margt annað varð-
andi þetta ómótaða
starf. Ég mun starfa
í samstarfi við
héraðsdýralækni á Suðurlandi og
héraðsráðunautinn," sagði Óðinn
Öm.
Haustskoðun:
Samkvæmt lögunum ber bú-
fjáreftirlitsmanni að senda út
haustskýrslu í síðasta lagi þann 1.
nóvember og skal sú skýrsla
berast aftur úttyllt af
umráðamanni búfjár í siðasta lagi
þann 20.nóvember. Hafi skýrsla
ekki borist fyrir tilskilinn tíma skal
viðkomandi heimsóttur á
tímabilinu 20.nóv. til 20.des. og
ber þá af því allan kostnað
samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Vetrarskoðun:
Búfjáreftirlitsmaður skal á
hverjum vetri fyrir IS.apríl fara i
eftirlitsferð til allra umráðamanna
búfjár og líta eftir húsakosti,
fóðrun og aðbúnað.
RaforkuverO til landbúnaðar
Bændur vilja lá
ralorkuverð lækkaO
Fyrir Búnaðarþingið, sem hefst eftir nokkra daga, vrður lagt erindi
frá Búnaðarsamtökum Vesturlands þar sem því er beint til
Bændasamtaka íslands að þau freisti þess að gera rammasamning
við RARIK og/ eða önnur orkufyrirtæki um sérstök kjör á raforku
til landbúnaðar.
Bent er á að raforku-
verð hafi úrslitaáhrif á
arðsemi ýmissa bú-
greina, eins og fram-
leiðslu ýmis konar gróð-
urhúsaafurða með að-
stoð lýsingar og kom-
rækt þar sem kom er
þurrkað. Einnig er bent
á að kæling mjólkur og
rekstur loftræstikerfa
gripahúsa sé orkuffekur
og aukin tæknivæðing kalli á orku-
frek tæki. Bændur benda á að víða
njóti fyrirtæki hagstæðra raforku-
samninga við raforkusala og verð
sé þar umtalsvert lægra en al-
mennir taxtar.
Aukin raforkunotkun i
landbúnaði
Eiríkur Blöndal, framkvæmda-
stjóri Búnaðarsamtaka Vestur-
lands, segir að landbúnaðurinn í
heild noti mikla raforku. Því telji
menn sjálfsagt að ffeista þess að
landbúnaðurinn fá lægra raforku-
verð til sinnar ffamleiðslu. „Kom-
rækt hefúr stóraukist hér á landi
hin síðari ár og talsverð raforka er
notuð við að þurrka komið. Hátt
raforkuverð og skortur á þrífasa
rafmagni má ekki hamla eðlilegri
tæknivæðingu í landbúnaði. Til
gamans má hér þó benda
á að þó nokkur áhugi er
meðal bænda á starfs-
væði okkar að virkja
minni vatnsöll. Samtök
raforkubænda hafa hér
unnið brautryðjendastarf
og nú á næstunni mun
Orkustofnun kanna að-
stæður hjá nokkrum
bændum og aðstoða
menn við að meta
virkjunarkosti," sagði Eiríkur.
VÉLAVAL-Varmahlíö hf
S: 453 8888 fax: 453 8828
vefur: www.velaval.is
netpóstur: velaval@velaval.is