Bændablaðið - 29.04.2003, Side 6
6
Bændabladið
Þríðjudagur 29. apríl 2003
Bændablaðið er málgagn
íslenskra bænda
Bændablaðiö kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og
fjölmargra annarra er tengjast landbúnaöi. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra
er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Argangurinn
kostar kr. 5.200 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.250.
Bændablaöiö, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavik.
Sími: 563 0300 - Fax: 552 3855 - Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Áskell Þórisson (ábm.)
Auglýsingastjóri: Eirikur Helgason, blaöamaður: Sigurdór Sigurdórsson
Netfang blaðsins er bbl@bondi.is
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bændablaðinu er dreift í tæpum 8000 eintökum.
islandspóstur annast það verk að mestu leyti.
ISSN 1025-5621
Framleiðslurisar kúga
alþjóðastofnun
Nýjar leiðbeiningar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
(WHO) um mataræði, þar sem varað er við ofneyslu
sykurs, em merkileg tíðindi. Leiðbeiningamar byggjast á
niðurstöðum 30 vísindamanna og em þær þegar notaðar í
23 löndum. Þótt ýmsir hafí á undanfömum ámm varað
við ofheyslu sykurs em þessar leiðbeiningar eigi að síður
mikilvægar í allri umræðu um fæðuval og hollustu
matvæla. Fáum blandast hugur um að offita er eitt af
alvarlegustu heilbrigðisvandamálum hins vestræna
heims. Því er mikilvægt að stemma þar á að ósi og viður-
kenna hinar raunverulegu orsakir vandamálanna, sem
meðal annars em breytt mataræði og aukin neysla
sykurs. í ljósi þess sem við blasir, hvort heldur gengið er
um götur Reykjavíkur eða New York, er rétt að taka
hinar nýju leiðbeiningar alvarlega og viðurkenna þörf á
breyttu neyslumynstri vestrænna þjóða og þá ekki síst
nauðsyn þess að draga úr neyslu sykurs. í staðinn kemur
þá væntanlega aukin neysla próteina og jafnvel fitu sem
er í eðlilegu samræmi við reynslu íslensku þjóðarinnar
gegnum aldimar. Vitað er að Islendingar lifðu lengi vel
einkum á próteinum og fitu og þá var offita ekki vanda-
mál. Síðan hefiir auðvitað margt breyst, húsakynni allt
önnur og beiting líkamsorku minni. Það er þó ekki fyrr
en nú á síðustu áratugum sem neysla sykurs kemur inn
sem vemlegur þáttur í mataræði þjóðarinnar og offita
verður alvarlegt vandamál hérlendis. Við verðum því að
horfast í augu við, eins og aðrar vestrænar þjóðir, glímu
við heilsufarsvandamál sem em mjög alvarleg og em
meðal annars afleiðing af ofneyslu sykurs í mismunandi
formi og annars skyndifæðis sem þjóðin neytir í vaxandi
mæli.
"Hvað ungur nemur gamall temur", gildir enn og því
er það fagnaðarefni að skólayfirvöld hafa í vaxandi mæli
hafið herför gegn sykurdrykkjum og óhollu skyndifæði
og innleitt hollar máltíðir í skólana. Nýjar leiðbeiningar
WHO staðfesta að stjómendur skóla em þar á réttri leið.
Viðbrögð margra öflugustu aðila heimsins á sviði
framleiðslu matvæla og drykkjarvara við þessari
niðurstöðu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar hljóta að
vera öllum hugsandi mönnum áhyggjuefni. Það að
framleiðslurisamir í Bandaríkjunum skuli ætla sér að
kúga einhverja virtustu alþjóðastofhun heimsins til þess
að birta ekki vísindalegar niðurstöður um áhrif
mataræðis sýnir á hvaða braut við emm komin í okkar
kapítalíska hagkerfi. Ef það er í raun og vem svo að
Mammon telur sig geta stjómað því hvaða þekking á
heilbrigðissviði er birt og hver ekki þá gæti verið stutt í
að velferð mannkyns verði fómað á altari þess guðs. Það
verður því ffóðlegt að fýlgjast með því á næstunni
hvemig tillögum WHO reiðir af. Hverjir munu þora að
fylgja þeim eftir og hver verða áffamhaldandi viðbrögð
framleiðslurisanna og umboðsmanna þeirra um allan
heim, sem nú virðast með góðu eða illu ætla að verja
tekjur sínar af því að viðhalda röngu matarræði. /AT
Á síðustu árum hafa verið að koma upp sýkingar í búfé af völdum
salmonella sýkilsins, þar sem ekki var hægt að útiloka að frárennsli
frá íbúðarhúsum hafi getað mengað drykkjarvatn búfjárins og
þannig valdið sýkingunum. í þessu sambandi má nefna þau
vandamál sem voru á Suðurlandi árið 2000 og á Norðurlandi árið
2002.
Ástandið nú
Fáar athuganir hafa verið gerð-
ar á ástandi ffárennslismála á
landsbyggðinni með tilliti til bú-
skapar en þó má nefna að á árinu
2000 skipaði landbúnaðarráðherra
nefnd til að kanna orsakir þeirra
sýkinga sem upp komu í búfé á
Suðurlandi. Nefhdin lét meðal
annars kanna ástand frárennslis-
mála á tilteknu svæði og þá kom í
ljós að þrátt fyrir að ástandið væri
mjög gott í einstaka hreppi þá var
ffágangi á rotþróm og ffárennsli
þeirra við sveitabæi víða ábóta-
vant. Einnig kom í ljós, sem
reyndar var vitað, að ástand ffá-
rennslismála ffá þéttbýliskjömum
var ekki gott. Nefhdin ályktaði í
skýrslu sinni sem var gefin út á
árinu 2002 að vel mætti búast við
að ástand þessara mála væri með
svipuðum hætti annars staðar á
landinu, sérstaklega við þéttbýlis-
kjama inn til landsins, sem hefðu
aðeins viðkvæma viðtaka fyrir ffá-
rennsli sitt.
Á vegum umhverfisráðuneytis-
ins hefur á undanfömum árum
starfað sérstök ffáveitunefnd. Á
ráðstefnu ráðuneytisins, sem hald-
in var nýlega, var gerð grein fyrir
skýrslu nefndarinnar. Þar kom
fram að það sé mat skýrslu-
höfundar, að höfðu samráði við
sveitarstjómir og heilbrigðiseftir-
lit, að ástand á frárennslismálum í
dreifbýli, bæði lögbýlum og
sumarbústöðum, sé í raun mjög
slæmt og að rotþrær og ffárennsli
frá þeim sé aðeins " í lagi" í milli
5 - 10% tilfella. Ennffemur kom í
ljós að losun rotþróa og eftirlit
með því sé víðast hvar vemlega
ábótavant og ekki í samræmi við
reglugerðir þar að lútandi.
Laga- og
reglugerðarramminn
Samkvæmt tilskipunum sem
ísland hefur tekið yfir í samræmi
við aðild okkar að Evrópska efna-
hagssvæðinu(EES) þá á að vera
búið að koma ffárennslismálum í
viðunandi horf í árslok 2005. Fram
kom á ráðstefnunni að ekki em
taldar líkur á að það takmark náist
og miðað við óbreyttar forsendur
þá muni þessu verki ekki vera
lokið fyrr en í fyrsta lagi 2016. Því
væri þörf nýrrar stefhumörkunar á
þessu sviði og að vemlega miklum
fjármunum þyrfti að veita af ríkis-
ins hálfu til málaflokksins. Ljóst
væri að ffágangur ffárennslismála
sé víða mjög dýr og mörgum sveit-
arfélögum óviðráðanlegur, nema
með tilkomu fjárveitinga ffá
ríkinu, enda væm frárennslismálin
ekki einkamál viðkomandi sveitar-
félaga, vegna hugsanlegra nei-
kvæðra áhrifa á matvælaffam-
leiðsluna. Fram kom að ekki yrðu
öll ríki í Evrópu búin að leysa sín
mál fyrir árslok 2005, en þó yrðu
lönd eins og Danmörk, Flolland og
síðan Svíþjóð, Finnland, Austur-
ríki og Þýskaland langt komin á
þeim tíma.
Yfírdýralæknir gerði grein
fyrir skoðun sinni, að okkur bæri
að stefna að því að leysa okkar mál
sem allra fyrst og komast f hóp
hinna bestu hvað þetta varðaði
vegna ímyndar landsins um hreina
náttúm og útflutningshagsmuna á
bæði sjávar- og landbúnaðarafurð-
um. Vemlega auknu fjármagni
yrði að veita til málaflokksins og
því yrði að forgangsraða til að
leysa fyrst vandamál vegna íbúðar-
húsa og sumarhúsa og þéttbýlis-
kjama í dreifbýlinu sem heföu
aðeins viðkvæma viðtaka inn til
landsins fyrir ffárennslið og síðan
þéttbýlis, sem hefði möguleika á
frárennsli út í síður viðkvæman
viðtaka við ströndina.
Komið hefur í ljós að líklegt er
að ríkisvaldið verði vegna alþjóða-
samninga að falla ffá eða minnka
vemlega ýmsar stuðningsaðgerðir
við landbúnaðarffamleiðsluna. í
þessu sambandi mætti skoða hvort
ekki væri hugsanlegt að færa
þennan stuðning yfir í það form að
bændur væm studdir til að koma
ffárennslismálum og öðrum álíka
umhverfisbótum á bóndabæjum í
gott lag.
Hvað þarf
að gera strax?.
Með hliðsjón af ofangreindu
þá leggur yfirdýralæknir til við
bændur að þeir hugi nú þegar að
ástandi ffárennslismála á sínum
bæ. Þeir kanni ástand og ffágang á
rotþróm ffá íbúðarhúsum og
hvemig sé háttað með ffárennsli
ffá rotþrónum. Flafa ber í huga að
ffárennslinu verður að vera veitt í
lokað síubeð eða með öðmm hætti
tryggt að það geti ekki komist í að
menga yfirborðsvatn sem búpen-
ingur á möguleika að komast í.
Hafa ber í huga að rotþrær em að-
eins hugsaðar til að fella út föst
efhi í skólpinu en að fjöldi örvera
sem í þær fara stendur í besta falli í
stað á ferð sinni í gegnum rot-
þróna, en getur líka fjölgað mikið
ef til dæmis rangt er staðið að ffá-
rennlislögnum og ef heitu af-
rennslisvatni er veitt í þróna. Hafa
ber í huga að í húsunum geta verið
íbúar eða gestir sem geta verið
heilbrigðir smitberar salmonella
sýkilsins og þá fer hann lifandi í
gegnum allt frárennslið og getur
valdið sýkingum í búfénu komist
hann í drykkjarvatn þeirra.
Bændur geta haft samband við
viðkomandi sveitarfélag og heil-
brigðiseftirlit til að fá ffekari upp-
lýsingar um gerð og ffágang ffá-
rennslismála við bóndabæi, enda
em slík mannvirki háð samþykki
og úttekt heilbrigðis- og bygginga-
fúlltrúa. Ef úrbóta er þörf þá skal
bent á að nú þegar hafa mörg
sveitarfélög tekið myndarlega á
þessum málum með sameiginlegu
átaki á lögbýlum og sumarhúsum í
öllu sveitarfélaginu. Við það er
hægt að ná niður kostnaði vegna
þessara ffamkvæmda.
Komist bóndi að því í könnun
sinni á bænum að ffárennslismálin
séu ekki í lagi hjá honum eða hann
telur líklegt að búfé hans geti
komist í drykkjarvatn sem er
mengað ffárennsli ifá manna-
bústöðum, og að líklegt sé að það
geti tekið nokkum tíma að koma
þeim í viðunandi horf, ætti hann
að gera strax í vor viðhlítandi ráð-
stafanir á sínum bæ. Þessar
ráðstafanir gætu meðal annars
falist í að girða af skurði og önnur
svæði þar sem búféð gæti komist í
ffárennslismengað drykkjarvatn.
Einnig þarf hann að huga að því að
leiða hreint drykkjarvatn út í
hagana þar sem hann beitir búfé
sínu.
Til framtíðar litið
Þar sem ofangreindar ffam-
kvæmdir þurfa skipulagningar og
undirbúnings við þá em bændur
hér með hvattir til að gera við-
eigandi ráðstafanir hið fyrsta.
Kæruleysi í þessum málum er
þegar búið að kosta einstaklinga
vemlegt tjón og áltishnekki og
minnt er á að vandamál á einstaka
bæ, t.d. af völdum salmonella, er
aldrei einkamál viðkomandi bæja.
Verði bóndi var við veikindi eða
óeðlileg dauðsföll í búfé sínu á
hann að hafa samband við sinn
dýralækni eða viðkomandi héraðs-
dýralækni. Hætta er á að afúrðir
ffá viðkomandi bæjum séu
mengaðar og geti valdið umfangs-
miklum matarsýkingum ef illa
tekst til. Það getur einnig kostað
álitshnekki fyrir viðkomandi sveit-
arfélag og hérað og þau matvæla-
fyrirtæki sem þar starfa og veita
fjölda manns atvinnu.
Halldór Runólfsson,
yfirdýralœknir.