Bændablaðið - 09.12.2003, Side 12
12
Bændabiqðlð
Þriðjudagur 9. desember 2003
r
I augum margra
útlendinga er það
jákvœtt að skipta við
lítinn aðila í strjálli
byggð
- Segir Arinbjörn Jóhannsson á Brekkulœk
Mikið vatn hefur unnið til sjávar síðan
Arinbjöm Jóhannsson ákvað að láta slag
standa og gerast ferðaþjónustubóndi. Að
vísu segir hann um annað munnvikið að
hann hafi hvort eð er ekki kunnað neitt
annað. Þegar sveitastrákurinn á Brekkulæk í
Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu leitaði sér
dægrastyttingar undi hann sér best við
veiðiskap og hestamennsku á
Amarvatnsheiði. í tæpan áratug dvaldi hann
í Þýskalandi og nam m.a. mannfræði í
háskóla í sunnanverðu landinu - kynntist
menningu og þjóð. Nokkmm ámm síðar fór
hann gjarnan með útlenska vini ríðandi um
Amarvatnsheiði og þeir renndu fyrir silung.
Líklega var það þá sem hann fann hvemig
íslensk náttúra heillaði þýsku vinina þannig
að þeir fóru ekki samir heim.
Arinbjörn setti ferðaþjónustu á laggimar
árið 1979 en brekkan var brött og laun
ferðaþjónustubændanna létt í vasa. Fyrstu
ferðimar skipulagði Arinbjöm ásamt
Gudrunu Hanneck-Kloes en það vom fimm
daga ferðir á hestum upp á Amarvatnsheiði
með Aðalból í Miðfirði sem miðstöð. Næstu
árin voru mögur - sum reyndar grindhomð -
og það var ekki fyrr en nú á síðustu ámm
sem innkoman vegur ögn þyngra en
útgjöldin. Nú er svo komið að á þessu ári
voru skipulagðar um 30 hópferðir, þar af 14
langar hestaferðir auk gesta á gistiheimilinu.
Ferðaþjónusta í sveit er ekki upphaf
auðsöfnunar! Aldrei má slaka á klónni því
hættumar leynast víða. Stundum er það
óhagstæð gengisþróun sem pirrar veskið og
stundum er það eitthvað annað. Allan
þennan tíma hefur Arinbjöm verið félagi í
Ferðaþjónustu bænda sem hann hrósar í
hástert. Án hennar gætu menn til dæmis
ekki haslað sér völl í ferðaþjónustunni.
Rösklega fimm ársverk em bundin
ferðaþjónustunni á Brekkulæk en mikið er
umleikis á sumrin þegar starfsmennimir eru
á annan tuginn. Hestar Arinbjamar fylla
lífi og sál og hefur líka pappír upp á það frá
ráðuneytinu að mega kalla sig
"ferðaskipuleggjanda" - eða B-leyfishafa -
en þá fara framlagðar tryggingar eftir veltu.
Hafa útlendingar þann áhuga á íslandi
sem við íslendingar teljum sjálfsagt að þeir
hafi? Eiga útlendingar að storma til íslands?
Arinbjörn hristir höfuðið og segir að að
þekking og áhugi á íslandi og íslenskum
málefnum sé bundinn við afar fáa. "Hins
vegar er ekki útlokað að vekja áhuga manna
á landi og þjóð og þá ekki síst ef um
útivistarfólk er að ræða eða fólk sem hefúr
áhuga á hestum. Ég fer á hestasýningar á
meginlandinu og hitti þá svona fólk en líka
er ég í sambandi við ferðaheildsala ytra."
Arinbjöm segir að íslenski hesturinn sé sá
segull sem virkar einna best. Utlendingar
hafi áhuga á hestaferðum enda séu þær engu
líkar. Hann er sammála Guðna
landbúnaðarráðherra Ágústssyni að
hesturinn sé prýðilegur sendiherra, en "ég
sakna þess hvað menn koma honum lítið á
hins vegar sjö tugi! Hópar koma og
fara. Sumar ganga um heiðamar en
aðrir fara ríðandi undir stjóm og í
verktöku nábúa Arinbjamar,
Eggerts Pálssonar.
Margt hefúr verið brallað og
reynt. Þannig var eitt árið boðið
upp á gönguferðir í veiði á
Amarvatnsheiði en þær ferðir náðu
ekki að festast í sessi. Sömuleiðis
gekk ekki að bjóða fólki upp á
reiðhjólaferðir. En árið 1988
byrjaði Arinbjöm að bjóða upp á
gönguferðir frá Húsafelli yfir
hálendið vestan jökla og norður í
Miðfjörð og þær nutu strax
vinsælda og hafa haldið þeim allt
til þessa dags. Gönguferðir með
nokkrum tilbrigðum yfír
Amarvatnsheiði em líka afar
vinsælar og sama má segja um tíu
daga vor- og haustferðir með
áherslu á einkenni árstíðanna. Þá
skoða menn fúgla og nýfædd lömb,
haustliti og fara í réttir. Starfsemin
teygir víða anga sína því hópar á
vegum Brekkulækjar fara nú um
Homstrandir. En hvemig er að vera
Á myndinni t.v. eru þeir feðgar
Jóhann og Arinbjörn i hesthúsinu.
Myndin t.h. er tekin á skrifstofu
ferðaþjónstunnar á Brekkulæk.
Arinbjörn og Claudia Hofmann
sögðu óreiðuna á skrifborðinu of
mikla - en gáfu sig að lokum. Ef
eitthvað þá sýnir borðið að þarna
býr vinnandi fólk!
með aðalstöðvamar í Brekkulæk?
Skiptir staðsetningin máli? Því
svarar Arinbjöm neitandi og bætir við að í
augum margra útlendinga sé það jákvætt að
skipta við lítinn aðila í strjálli byggð. "Þeir
telja það einfaldlega betri tryggingu íyrir
góðri tengingu við lífið í landinu og betri
þekkingu og innsýn í náttúruna," sagði
Arinbjörn.
Tölvutæknin skiptir máli og
Brekkulækur á sér heimasíðu - en hvemig
gengur Arinbimi að eiga við tölvur og álíka
galdratæki? "Konan sér um þetta allt
saman, en ég er mjög góður að tala í síma",
segir Arinbjöm og hlær dátt.
Ferðaþjónustubóndinn Arinbjöm þarf
líka sífellt að leita nýrra leiða til að afla sér
viðskiptavina en heima í skemmu bíða líka
ótal hnakkar og beisli, vagnar og
matvælakassar sem farið er með upp á
heiðar síðla vetrar; á slóðir sem aðeins em
færar hestum, hundum og ferðafólki sem er
tilbúið til að leggja talsvert á sig svo það
megi kynnast húnveskum heiðum og
mannlífi. Hann er ferðaskipuleggjandi af