Bændablaðið - 09.12.2003, Side 19

Bændablaðið - 09.12.2003, Side 19
Þridjudagur 9. desember 2003 Bæncblaðið 19 Verðlitlu ænkjfiti breytt í lúxuslorréffl Undanfarin 2 ár hefur starfsfólk Fjallalambs á Kópaskeri unnið að þróun hráverkaðra forrétta úr kindakjöti. Þarna er um að ræða afar fina og verðmæta vöru sem hentar vel á veisluborð eða í heimboðin og er gott innleg í matarmenningu Islendinga. Fjórar tegundir eru þegar komnar á markaðinn og hefur nafngiftin vakið mikla athygli. Réttimir bera nöín eins og Höfð- ingi- reykt sauðafille; Æringi - grafið sauðafílle; Græningi - þurrkaður sauðavöðvi og Sveit- ungi, sem er þeirra nýjastur og líkist mest evrópskum hráskinkum svo sem parmaskinkunni. Auk þessa er Fjallalamb að selja sér- meðhöndlað hangikjöt sem hráan forrétt og er það afar vinsælt líka. Fjallalambsmenn telja ótvírætt að það liggi í þjóðarsálinni þörf fyrir neyslu á hráu kjöti og enginn vafi á að vel hráverkað kjöt bætir meltingu og mótstöðu gegn meltingartruflunum... Forrétti Fjallalambs má nota á ýmsan hátt og er nánast hug- myndaflugið eitt sem takmarkar möguleikana. Hér má sjá forréttardisk sem gæti verið hver sem er af for- réttunum fjórum en einnig má sjá fleiri útfærslur á heimasíðu Fjalla- lambs www.fjallalamb.is sem var opnuð nú um miðjan desember. §m Búneðersemband Suðurlands helup opnað Ifflbú ú Hvolsvelli Búnaðarsamband Suðurlands hefur opnað útibú á Hvolsveili en sem kunnugter eru höfuðstöðvar þess á Selfossi. Pétur Halldórsson, ráðunautur hjá BSSL, sér um skrifstofuna á Hvolsvelli og segist hann vera þar tvo til þrjá daga í viku. Búnaðarsambandssvæðið nær alveg frá Lómagnúpi og vestur að Reykjanesi þannig að skrifstofan á Hvolsvelli styttir leiðina fyrir bændur á austursvæðinu sem erindi eiga við Búnaðarsambandið. Pétur segist aðallega vera í greiningar- og rekstraráætlunargerð en hann bendir á að starf ráðunauta sé ákaflega fjölbreytt þannig að það eru mörg mál sem til hans berast og að nóg hafi verið að gera síðan skrifstofan var opnuð í sumar er leið. Símar Péturs eru 862 9322 og 487 1513. Vesturlandsskógar mifila þekkingu til skúgarbænda Miðlun þekkingar til skógarbænda er eitt mikilvægasta hlutverk Vesturlands- skóga. Þekkingunni er komið á framfæri með ýmsu móti: með ræktunaráætlun (sem felur í sér uppskrift að framkvæmdum með allítarlegri verklýsingu), með heimsóknum til bænda og upplýsingagjöf gegnum síma og tölvu, en ekki hvað síst með námskeiðshaldi. Haldin verða árlega á Hvanneyri u.þ.b. sex námskeið ætluð skógarbændum. Alls gefst hverjum skógarbónda kostur á að sækja nítján námskeið á nokkurra ára tímabili. Nokkur námskeiðanna eru svokölluð grunn- námskeið sem ætlast er til að allir skógar- bændur sæki. Önnur eru ætluð þeim, sem eru sérstaklega áhugasamir. Ef menn Ijúka ákveðnum námskeiðspakka, sem felur í sér niu skyldunámskeið og a.m.k. þrjú valfrjáls námskeið, gefur slíkur "pakki" einingar til náms í bændadeild Landbúnaðarháskólans. Föstudaginn 14. nóvembcr var vígð á Hvanneyri ný skrifstofubygging þar sem verður aðsetur ýmissa stofnana sem tengjast landbúnaði. Við þetta tækifæri var undir- ritaður samstarfssamningur milli Vestur- landsskóga og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri um námskeiðshald. A myndinni t.v. má sjá Magnús B. Jónsson, rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, og Skúla Alexandersson, formann stjórnar Vesturlandsskóga, undirrita samstarfssamning um námskeiðshald. Fyrsta heimilið FærAu relkninga í tíma og ðtíma? Áttu erfitt með að átta þig á því hve mikið þú þarft að greiða f mánaðarleg útgjöld? Þú færð fyrsta árið frítt í Greiðsluþjónustu Búnaðarbankans - og bankinn sér um að greiða reikningana á réttum tíma. Ekki nóg með það, því útgjöldin dreifast jafnt á alla mánuði ársins og þú greiðir alltaf sömu fjárhæð í hverjum mánuði. Þú losnar við gluggapóstinn, dráttarvextina, biðraðirnar og útgjaldasveiflurnar og veist alltaf hvar þú stendur í fjármálum. BÚNAÐARBANKINN -Traustur banki BÚNAÐARBANKINN - FYRIR ÞIG www.bt.is ónusta

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.