Bændablaðið - 09.12.2003, Qupperneq 26

Bændablaðið - 09.12.2003, Qupperneq 26
26 Bændablaðið Þridjudagur 9. desember 2003 Ahrií á einslakar húgreinar Aðild íslands að Evrópusambandinu myndi hafa áhrif á allar búgreinar, mismikil þó. í skýrslunni er tekið fram að mikil óvissa ríki um það hvaða kjör íslendingar myndu fá út úr aðildarviðræðum og þess vegna mjög erfitt að sjá fyrir áhrif aðildar. Þó eru ákveðnir þættir nokkuð Ijósir. Mjólk Ef litið er á mjólkurfram- leiðsluna þá ráðast kjör hennar af þremur þáttum: ♦ Stærð framlciðslukvóta við úthlutun og nýtingu hans til lengri tíma. ♦ Stuðningi við greinina í breyttu umhverfi. ♦ Greiðslugetu afurðastöðva til mjólkurframleiðenda. Kvótinn yrði væntanlega svipaður og nú en nýting hans, það er framleiðsla á mjólk, ræðst væntanlega af hlutdeild af innanlands- markaði sem enginn veit hver verður. Hlutdeildin mun ráðast af verðhlutfollum innlendrar og erlendrar framleiðslu. Ferskvara (drykkjarmjólk, rjómi o.þ.h.) myndi njóta fjarlægðarvemdar en vömr með lengra geymsluþol (ostar, jógúrt o.þ.h.) þyrftu að keppa við innfluttar vömr. Stuðningur hins opinbera við mjólk- urframleiðslu myndi lækka vemlega. Nefht er dæmi frá finnsku mjólkurbúi sem fær um 20 krónur í stuðning við hvem mjólkurlítra. Þegar Island væri orðið hluti af innri markaði ESB yrði heild- söluverð mjólkurafurða ffá afurða- stöð að lækka um 10-15 kr. á hvem mjólkurlítra, jafhvel meira. Þessari verðlækkun yrðu bændur og afurðastöðvar að mæta með hag- ræðingu og lækkun kostnaðar, stækkun búa og fækkun afúrða- stöðva. Kindakjöt Kjör sauðfjárræktarinnar myndu ráðast af þróun markaðs- mála og stuðningi við greinina. Markaðsmálin hafa tekið ömm breytingum undanfarin ár og sér ekki fyrir endann á þeim. Verð- lækkun til ffamleiðenda yrði ekki nærri því eins mikil og í mjólkinni og vemlegir möguleikar em til hagræðingar í greininni, einkum í sláturkostnaði með fækkun Grétar Már Sigurðsson Frumhald af bls. 25 miklu betri skilningur á málefnum landbúnaðarins hér í ráðuneytinu en áður." Að þekkja keppinautinn Grétar Már segir að vinna starfshópsins hafi skilað góðum árangri og vitnar í því sambandi til orða finnsks ráðherra sem nefnd- armenn hittu á ferð sinni í Finn- landi. "Hann gaf okkur það ráð að hvort sem við hygðum á inngöngu í ESB eða ekki þá yrðum við að setja okkur vel inn í regluverkið hjá sambandinu vegna þess að það hefúr bæði bein og óbein áhrif á ís- lenskan landbúnað. Auk þess væri eðlilegt að kynna sér hvað væri að gerast hjá keppinautunum, rétt eins og gert er í öðrum atvinnu- greinum. Þar væri eflaust hægt að læra ýmisiegt sem gagnast mönnum. Hér í ráðuneytinu teljum við okkur standa betur að vígi í því að gæta hagsmuna íslensks land- búnaðar með þessa skýrslu í höndunum. Samstarfíð í hópnum t hefúr einnig verið mjög gott og hefúr styrkt samstarfið milli bænda og ráðuneytanna." - Það eru ekki ýkja afgerandi svör í skýrslunni. "Það er kveðið nokkuð skýrt á um að við teljum að íslenskur landbúnaður væri ekki betur kom- inn innan ESB miðað við nú- verandi aðstæður. En skýrslan sýnir fram á að landbúnaðarstefna ESB er ekki mjög afmörkuð, það er hægt að semja um margt innan hennar. Hins vegar þarf að endur- meta þessa niðurstöðu ef samn- ingar takast á vettvangi WTO um verulegar breytingar á viðskipta- umhverfmu." - Hvernig mun ráðuneytiö not- fœra sér þessa vinnu? "Hún skilar sér beint í hags- munavörslu okkar í viðræðunum innan WTO og í samskiptum við ESB. Við erum betur upplýstir en áður. Það skiptir okkur líka miklu máli að vera í góðu sambandi við bændur, bæði um viðræðumar í WTO og einnig um þá viðleitni okkar að liðka til fyrir útflutningi á hrossum og búvörum. Þetta samband hefúr mátt vera öflugra. Ég vonast líka eftir því að þessi skýrsla verði til þess að menn hugsi um þróun landbúnaðar lengra fram í tímann en gert hefúr verið. Það hlýtur líka að vera jákvætt að fylgjast með því sem aðrir em að gera og nýta sér það sem vel er gert annars staðar," segir Grétar Már Sigurðsson. sláturhúsa. Stuðningur hins opinbera við sauðfjárræktina gæti haldist svipað- ur og hann er nú en það fer þó eftir niðurstöðu samninga við ESB. Nautgripakjöt Framleiðsla nautgripakjöts stendur ekki undir sér hér á landi nema sem hliðarbúgrein með mjólkurframleiðslu. Þetta gæti breyst við aðild að ESB þar sem greinin nýtur stuðnings frá hinu opinbera sem hún gerir ekki hér á landi. Hann mun þó taka breytingum effir að endurskoðun land- búnaðarstefnu ESB tekur gildi en óljóst er hver áhrif hennar verða þar sem enn á eftir að semja ýmsar reglu- gerðir sem ákvarða stuðninginn. Svinakjöt Verð á svínakjöti til ffamleiðenda hefúr farið hratt lækkandi hér á landi að undanfomu, búum fækkar ört og einingamar stækka. Skýrsluhöfúndar telja að verðið til fram- leiðenda megi ekki vera hærra en 150 kr. á kíló til þess að kjötið standist samkeppni við innflutning. Með styrkjum gætu tekjur bænda verið 180-190 kr. á kíló. Greinin myndi njóta nokkurrar vemdar vegna þess að innflutningur á fersku svínakjöti er miklum annmörkum háð vegna svínasjúkdóma sem herja á ná- granna okkar. Hins vegar veikir hár vinnslukostnaður samkeppnisstöðu mikið unninna svínakjötsafúrða. Alifuglakjöt Verð á því hefúr einnig farið hríðlækkandi upp á síðkastið og sér ekki fyrir endann á því. Hér á landi em vemlegir hagræðingarmögu- leikar svo sem í fjárfestingum í húsum sem em helmingi meiri hér en í Svíþjóð. Einnig væri hægt að lækka launakostnað með aukinni sérhæfingu og stækkun eininga. Alifuglarækt nýtur fjarlægð- arvemdar hvað snertir sölu á fersku kjöti því innflutningur á því er tæpast raunhæfur eins og er. Grein- in gæti reiknað með einhverjum stuðningi sem ekki er til staðar núna. Egg Þótt verð á eggjum hafi lækkað og afúrðir hænsnastofnsins aukist er verð til ffamleiðenda samt tvö- falt hærra en í Svíþjóð. Inn- flutningur á eggjum er raunhæfúr möguleiki og því má búast við vemlegum tekjusamdrætti hjá eggjabændum. Þá mun reyna á möguleika þeirra til hagræðingar en þeir geta einnig vonast eftir ein- hverjum styrkjum því fyrir því er í það minnsta fordæmi í Finnlandi. FINNLAND Áður en Finnar gengu í Evrópusambandið árið 1995 var afurðaverð til framleiðenda landbúnaðarafurða fremur hátt en beinn stuðningur hins opinbera minni. Við aðild lækkaði verð til framleiðenda talsvert, eða um 30-50%, en opinber stuðningur við bændur jókst, þó ekki nógu mikið til að bæta bændum tekjutapið. Heildarniðurstaðan varð sú að tekjur bænda lækkuðu allnokkuð fyrst eftir aðild en hafa farið heldur hækkandi á síðustu árum og eru nú 5% lægri en árið 1994. Verð til neytenda lækkaði strax og Finnar gengu inn en minna en afurðaverðið eða um 10-11%. Síðan hefur matvælaverðið ekki haldið í við verðbólgu. Á árunum 1995- 2000 hækkaði vísitala neysluvöru um 8% en matvælaverð um 2%. Aðild Finna að ESB hefur þó ekki haft veruleg áhrif á framleiðslu landbúnaðarafurða. Mjólkurframleiðslan var ívið meiri árið 2002 en 1994, eggjaframleiðslan dróst saman um rúmlega fimmtung en kjötframleiðslan jókst um tæplega 15 af hundraði. Samsetning framleiðslunnar hefur þó breyst töluvert, nautakjötið hefur sveifiast upp og niður, svínakjötsframleiðslan sigið upp á við og kjúklingaframleiðslan rúmlega tvöfaldast. Kornframleiðslan var nokkuð stöðug fyrstu ár aðildar en tók svo dýfu árin 1998 og 1999 vegna lélegrar tíðar. Arið 2000 var hún meiri en nokkru sinni fyrr og næstu tvö ár var hún lítið minni. Frá 1990 til 2002 fækkaði finnskum bændabýlum um 38% en fækkunin var örust fyrir 1995, eftir inngöngu Finna í ESB dró úr henni. Mesta fækkunin hefur orðið í búfjárrækt en minni í kornrækt og þar hefur búum fjölgað síðustu þrjú ár. Fækkunin hefur verið mest í afskekktari sveitum en í þeim sem betur liggja við mörkuðum hefur búskapur efist. Búin sem eftir eru hafa stækkað, framleiðni aukist verulega og tekjubilið á milli frístundabænda og þeirra sem hafa atvinnu af búskap hefur breikkað. Um fækkun bændabýla segir svo í skýrslunni: "Þrátt fyrir að af aðild hefði ekki orðið töldu bæði forsvarsmenn bænda og stjórnvalda að breytinga hafi verið þörf í finnskum landbúnaði. Það var m.a. metið svo að finnskum búum myndi fækka um helming frá 1990 til ársins 2006. Margir þættir myndu valda þessu svo sem aldurssamsetning bændastéttarinnar og lítil nýliðun. Almenningsálit væri gegn bændum og þrýsti á um minnkandi stuðning hins opinbera og takmarkaði svigrúm stjórnvalda til stuðnings við finnska bændur. Eins glötuðust markaðir fyrir finnskar landbúnaðarafurðir í austurvegi í kjölfar hruns Sovétrikjanna og hafði það einnig sín áhrif á þessa mynd." Finnar beittu sér fyrir því að bæta hlut landbúnaðarins þegar sameiginleg landbúnaðarstefna ESB var endurskoðuð árið 2000. Þeir uppskáru betri samninga en áður og fyrir vikið hefur hagur finnskra bænda heldur vænkast síðustu ár. Fulltrúar finnskra bænda sem nefndarmenn heimsóttu voru ófáanlegir til að tjá sig um það hvort þeir væru betur settir núna ef þeir hefðu staðið utan ESB. Austurrískir bændur sem hafa gengið í gegnum áþekka þróun sögðu hins vegar að breytingarnar hefðu hvort sem er orðið og að aðild að ESB breytti engu þar um. Til samanburðar má geta þess að skráðum bútjáreigendum á íslandi fækkaði um 22% á árunum 1991-2001 en mjólkurframleiðendum fækkaði mun meira, eða um 38%. u NOREGUR Hagfræðistofnun norska landbúnaðarins gaf í sumar út skýrslu um áhrif ESB-aðildar á norskan landbúnað. Þar er meginniðurstaðan sú að borið saman við núverandi stöðu norsks landbúnaðar myndi ESB-aðiId fela í sér "umtalsverða verðlækkun á landbúnaðarafurðum með tilsvarandi lækkun á tekjum framleiðenda". Á móti því vegi "lítiisháttar aukning á stuðningi og nokkur lækkun kostnaðar, fyrst og fremst fóðurkostnaðar". Skýrsluhöfundar telja ólíklegt að Norðmönnum takist að semja við ESB uin heimildir til að auka innanlandsstuðning við landbúnað svo nokkru nemi og ráða það ekki síst af reynslu Finna í samningaviðræðum þeirra og ESB um stuðning við landbúnað í Suður-Finnlandi. Er það niðurstaða skýrslunnar að "meiri möguleikar væru til að halda uppi verði til framleiðenda með því að standa fyrir utan ESB". Sá fyrirvari er þó á þessum niðurstöðum að margir óvissuþættir séu í myndinni, svo sem þróun heimsmarkaðsverðs búvara, þróunin innan ESB og á vettvangi WTO. Við það megi einnig bæta óvissu um þróun landbúnaðarstefnunnar í Noregi. Texti: Þröstur Haraldsson. cZV- mm m p . r<réfi mt

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.