Bændablaðið - 09.12.2003, Síða 31
Þridjudagur 9. desember 2003
Mikit meira
um I8DIII+
Þessa dagana
er að koma sífellt
meiri reynsla á
notkun ISDN+
tenginga.
Greinilegt er að
unnt er að spara
sér talsvert
hlutfall í kostnaði
af því sem áður
var. Vissulega er
um minni hraða
að ræða á D
rásinni en þarna
getur tíminn
unnið með okkur
og svo höfum við
mögleika á að
hoppa upp á 64
kb/s eða 128 kb/s
ef okkur liggur á.
Nú hef ég um
nokkurn tíma
notað ISDN+ fyrir
mína vinnu og
kemur þessi
aðferð við
tenginguna vel út.
Þar kristallast
alveg skýrt að um
90% af þeim tíma
sem tölva er tengd
við netið er ekki í
raun þörf á
miklum
tengihraða og
flísfellur þar D
rásin að og svo B
rás/rásir þar til
viðbótar eftir
þörfum. Eg vil
ítreka það sem
áður hefur komið
fram í greinum
mínum hér, að
engin startgjöld
eru tekin lengur
fyrir upphaf
tengingar á B
rásum í ISDN+
áskrift, einungis
tímamæling á B
rás/rásum. Þá er
er afar
nauðsynlegt að sú
staðreynd komi
fram að ekki er
nægjanlegt að
sækja bara um
ISDN+ áskrift hjá
Landssímanum
heldur þarf að
vera til staðar
ISDN kort í tölvu
sem skilur ISDN+
tenginguna eða
FRITZIX ferjald
frá
Landssímanum og
einnig ISDN+
hugbúnaður frá
Landssímanum
sem er í raun eina
leiðin til að nýta
og tengjast ISDN+
þjónustunni og
nýta þau kjör er
þar gilda. Þó að
sótt sé um ISDN+
áskrift og ekkert
annað gert í
málunum gerist
ekkert annað en
að
símareikingurinn
hækkar að
nauðsynjalausu
vegna fastagjalds
af þjónustunni og
engin nýting á
þeirri hagræðingu
sem rétt
uppsetning ISDN+
veitir.
Að endingu vil
ég nefna að sá
ISDN og ISDN+
búnaður sem
hefur reynst mér
best í minni vinnu
á undaförnum
árum er frá
FRITZ. Þarna á
ég við einfaldleika
í uppsetningu og
góðri "greind" í
búnaðinum ef við
getum orðað það
svo. /HO
Barnaherbergi
Skriístofa
Eídhús
Stofa
Bíiskúr / útihús
TOLVULAUSN FYRIR HEIMILIÐ
Ferjald með símstöðvareicinleika - ISDN
SÍMALAUSN
' Sjaldan á tali.
' Allt að io símanúmer.
' Frí aukanúmertil áramóta.
Hægt að senda og móttaka fax
með hugbúnaði sem fylgir.
Mögulegt að svara í einn síma og
senda símtalið í annan innan
ferjaldsins.
Netlausn
Sítenging - allt að 128 kb/s hraði.
Öflugri nettenging en með
hefðbundnu mótaldi.
Hægt að skoða póst án þess að
sækja hann.
Ekkert upphafsgjald ef skipt er
á meiri hraða.
Islenskur hugbúnaður og
hjálpartexti.
Auðveld uppsetning.
siminn.is
Nánari upplýsíngar í verslunum Símans um land allt
eða í gjaldfrjálsu númerl 800 7000
Fritz SÍMSTÖÐ
Léttkaupsútborcun
1.250 kr. á mán.
í 12 mánuði.
Staðgreiðsluverð: 15.001 kr.
Verð áður:j>^tje kr.
• Frittstofngjaldá ISDN+og
tveir mánuðir með.
• Ekkert breytingargjald úr
hefðbundnum síma í ISDN.
• Friraðgangurað internetinu í
tvo mánuði.
SÍMINN
Bændablaðið
Algjör nauðsyn
I vinnu minni við þjónustu og forritun
hjá Bændasamtökum íslands undanfarin ár
hef ég séð sífellt vaxandi þörf fyrir að flestir
þeir sem vinna við innslátt gagna á tölvutækt
form geri meira í að afrita innslegin gögn
yfír á öruggan stað séu þau ekki affituð
miðlægt ( á server / þjóni).
Aður fyrr var affitun í betri farvegi því af
ýmsum ástæðum voru diskettur / disklingar /
"floppy diskar áreiðanlegri geymslustaður.
Nú er staðan þannig að afritun á
disklinga sem við þekkjum aðallega sem
3'A" er ekki fysileg hvað áreiðanleika
snertir.
Önnur ástæða til viðbótar er að margt af
tölvugögnum er orðið það mikið að vöxtum
að gögnin rúmast ekki á einum disklingi eða
tveimur jafnvel.
I fyrirtækjum er venjulega afritað á tape /
segulband með sérstakri gerð af þar til
gerðum segulböndum. Þessi búnaður er
fremur kostnaðarsamur,en er enn sem komið
er aðallega notaður.
Geislaskrifarar
Sennilega er ódýrasta lausnin miðað við
umfang allra þátta að nota geislaskrifara sem
eru nú famir að fást bæði sem sjálfstætt tæki
(extemal / útvortis) eða til ísetningar inn í
tölvu (intemal / innbyggður) á viðráðanlegu
verði.
Við kaup á slíkum búnaði, ef valinn er
skrifari sem er tengdur utan ffá við tölvuna,
þarf að hafa í huga að til eru skrifarar sem
ekki geta nýst á eðlilegan máta við USB port
/ tengi tölvunnar ef USB tengið er af eldri
kynslóð slíkra tengja. Flestir skrifarar em
enn sem komið er fyrir bæði eldri og yngri
kynslóð af USB tengjum. Þetta atriði þarf
ekki að huga að ef skrifarinn er settur inn í
tölvuna. Fyrir þá sem eiga tölvu með engu
USB tengi er unnt að setja USB tengi í
tölvuna en að jafnaði þarf að færa tölvuna á
þar til gert verkstæði til slíkrar uppfærslu og
er þá sett svokallað PCI USB kort í laust slot
/ rauf á móðurborði tölvunnar.
Einnig er meira en sjálfsagt við kaup á
nýrri tölvu að hafa geislaskrifara með í
kaupunum.
Hvernig?
Geislaskrifari vinnur þannig að laser /
mótað Ijós ( light amplification by
stimulated emission of radiation ) er notað til
að skera í þar til gerðan geisladisk merki
sem með ákveðinni röð mynda að lokum
innihald geisladisksins sem getur verið allt
sem er á staffænu formi og kemst á
geisladiskinn.
Við kaup á geisladiskum til afritatöku
hefúr það verið mín reynsla að ekki sé neitt
öruggara að nota dýrari geisladiska en
ódýrari eða endurskrifanlega diska.
Miklu betra er að nota geisladiska sem
eru hagkvæmir í innkaupum og taka mun
oftar afrit og þá á nýjan disk þó svo meira
geti komist á þann fyrri. Það kemur
nefnilega stundum fyrir að tölvugögn geta
skemmst án þess að notandi verði þess var
fyrr en of seint. Þá kemur í góðar þarfir að
eiga fleiri en færri afrit til að geta rakið sig
til baka.
Vinnureglan á að vera sú að notandi
muni að tölvugögn geta skemmst ná- ^
kvæmlega NUNA vegna þess að: rafmagnið
fer af, vírus tekur sig til og skemmir fyrir,
harði diskurinn hrynur eða hreinlega að
tölvan látist endanlega.
Þetta kemur notendum alltaf í opna
skjöldu og að sjálfsögðu á enginn von á
slíku þegar það gerist.
Til að lágmarka hasttuna á að týna
tölvugögnum er best hafa þá reglu að taka
afrit þegar notandi getur ekki sætt sig við að
vinna upp það sem týnist NÚNA frá seinasta
affiti sem gæti verið líka skemmt.Þá þarf að
taka til við næsta afrit eins og áður segir.
Aður en affitun yfir á geisladisk fer ffam
þurfa öll forrit eða gögn sem á að affita að
vera lokuð. Þá er mjög til bóta að endurræsa
tölvuna áður en tekið er til við afritun ( Start
-> Shut down -> Restart computer ). Ekki er *
afritað endilega með afritunarverklið
viðkomandi forrits heldur er mappa
viðkomandi forrits valin í afritun. Td. DK,
FJARVIS, BUBOT eða önnur forrit og gögn
þeirra.
Betra er við slíka afritun að velja fremur
lágan hraða sem geislaskrifarinn á að nota til
að auka áreiðanleika skriftar á geisladiskinn.
Til að mæta aukinni þörf hefur
Tölvudeild Bændasamtaka íslands nú tekið
upp þá þjónustu að taka við öiyggisaffitum
til geymslu. Slík afrit eru trúnaðarmál á milli
Bændasamtaka íslands og viðkomandi
viðskiptamanns og verða ekki afhent nema %
effir sömu leið og þau bárust. Best er að
senda slík affit í tölvupósti til Tölvudeildar
eftir nánari leiðbeiningum. Þessi þjónusta
verður gjaldskyld en þó í algjöru lágmarki.
Hjálmar Ólafsson, hjalmar@bondi.is
forritari og þjönustufulltrúi í tölvudeild
Bœndasamtaka íslands