Bændablaðið - 09.12.2003, Side 32

Bændablaðið - 09.12.2003, Side 32
32 Bændablaðið Þridjudagur 9. desember 2003 Sérvirk prótein framleidd í byggi Júlíus telur mikilvægt að átta sig á því að ORF áformar ekki að ffamleiða erfðabreytt bygg til almennrar dreifmgar sem erfða- breytt matvæli eða fóður. Þess í stað hyggst fyrirtækið í samvinnu við bændur rækta erfðabreytt bygg á afmörkuðum svæðum til framleiðslu á verðmætum próteinum úr plöntum með tækni sem verið sé að þróa og hefúr fengið nafnið sameindaræktun. Ætlun- in er að framleiða þennan efnaflokk, prótein, fyrir mismunandi markaði og að sögn Júlíusar má skipta honum í þrennt. I fyrsta lagi í prótein sem innihalda lyfjavirkni til nota fyrir lyfjaiðnaðinn, þá prótein fyrir rannsóknamarkaðinn og í þriðja lagi er hægt að framleiða prótein fyrir ýmsan iðnað; efnaiðnað, pappírsiðnað og aðrar greinar. "Sú viðskiptahugmynd sem við vinnum eftir byggir á tveimur grunnþáttum. Annars vegar ræktunarkerfmu, að geta framleitt prótein í plöntum og þá aðallega í byggi þótt við séum með fleiri plöntur undir í því efni. Hinn þátturinn er próteinhreinsikerfið. Þegar uppskeran er komin í hús hefst hreinsun próteina úr plöntunni. Við gerum ráð fyrir að þau prótein sem við munum framleiða með þessum hætti nemi innan við 1% af þeim lífmassa sem er í bygginu." En hvað verður þá um byggið þegar búið er að taka hin verðmætu prótein úr því, þessi rúmlega 99% massans sem verða eftir? Júlíus segir að ekki sé áformað að nota hann í fóður heldur verði kannað hvort nota megi hann til orkuöflunar, t.d. með gerjun yfir í iðnaðaralkóhól og þannig vinna jafnvel eldsneyti úr lífmassanum. Fengunt ekki studning - einkavceddum hugmyndina Bakgrunnurinn að þessu starfi nær að sögn Júlíusar aftur til ársins 1997 þegar að þeir tveir vísinda- menn, þá starfandi erlendis, Bjöm L. Örvar í Kanada og Einar Manyla Sví- þjóð, mótuðu þessa hugmynd. Þeir báru saman bækur sínar um til hvers mæti nota œktanlegt land hér á landi er um ein og hálf milljón hektara. Núverandi ræktun nær þó aðeins til um 130 þúsund hektara og stœrstur hluti hennar er grasræktun. Talið er að allt að 620r þúsund hektarar lands henti til rœktunar á byggi. A undanförnum árum hefur Rannsóknastofnun landbúnaðarins unnið ötult starf við að þróa byggafbrigði sem nýtt geta verðurfarsleg skilyrði hér á landi betur en eldri afbrigði. Vegna markaðsaðstœðna er þó ekki hagkvæmt að rœkta korn nema til fóðurs búpenings og þá einkum nautgripa og setur það kornræktinni ákveðin takmörk. Nú er hafln þróun sem leitt getur til þess að nýr atvinnuvegur, byggður á byggrækt, skapi landsbyggðinni vaxtarskilyrði og þjóðinni umtalsveðar tekjur. Bœndablaðið hitti Júlíus B. Kristinsson, framkvœmdastjóra ORF Líftœkni og forvitnaðist um málið. Starfsmenn ORF Liftækni við uppskeru á byggi á tilraunareit i Gunnarsholti haustið 2003. F.v. Einar Viðarsson, Bjargey A. Guðbrandsdóttir, Soffia Hrafnkelsdóttir, Pirfhing Guðmundsson, Freygerður Steinsdóttir, Þuriður Yngvadóttir, Björn L. Örvar, Bergrós Þorgrímsdóttir, Júlíus B. Kristinsson og Einar Mántylá. "Prótein eru einhverjar flóknustu lífsam- eindir er til em og einungis hægt að fram- leiða þau í lífverum nema að um mjög litlar próteinsameindir sé að ræða. Prótein eru keðjur af sameindum er nefhast aminósýrur sem ef til vill er best að lýsa með samlíkingu við perlufestar. Eiginleikar próteinanna fara algerlega eftir því úr hvaða aminósýrum þau eru gerð, á hvað stað í próteininu þær eru og hversu löng hver keðja er. Prótein eru að grunni til gerð úr sams konar byggingar- einingum (aminósýrum) hvort sem lífveran er maður, dýr, baktería, veira eða planta. Gen eru aftur á móti geymslustaður fyrir upplýsingar lífveranna um það hvemig raða skuli saman aminósýrunum til að mynda tiltekið prótein. í einföldustu mynd er bein samsvörun á milli próteins annars vegar og gens hins vegar. Ef lífvera hefur gen sem inniheldur tilteknar upplýsingar þá fæst pró- tein í samræmi við það. Gen em eins og pró- teinin að gmnni til gerð úr sams konar byggingareiningum (kjamsýmm) hvort sem lífVeran er maður, dýr, baktería, veira eða planta." Júlíus segir þessar upplýsingar skipta máli þegar fólk hugleiði um hvað málið raunvemlega snúist - að eingöngu sé verið að vinna með þau efni sem mannveran og lífheimurinn er byggður á. Prótein em viðkvæm effii, sem brotna hratt niður í meltingarvegi manna og dýra og missa þar með virkni sína. Um byltingu að rœða "Ef við lítum á fjárfestingar- kostnaðinn," heldur Júlíus áfram "þá kosta verksmiðjur til þess að ffamleiða eitt prótein í núverandi hefðbundnum kerfúm sem byggja á bakter- íum eða dýraffumum milljarða eða tugi milljarða króna. Fjárfestinga- kostnaður við að ffamleiða þau í plöntum er áætlaður aðeins um einn tíundi af því sem kostar að ffamleiða þau með eldri aðferðum. Ef við skoðum fram- leiðslukostnaðinn þá áætlum við að kostnaður tengdur ræktuninni nemi aðeins um 1% af því sem hann er við plöntulíftæknina og sameindaræktunin var ein af þeim hugmyndum sem þá kom fram. Árið 1999 var sett á laggimar Líftæknistofa á Keldnaholti og stóðu Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Iðntæknistofnun íslands þar að baki. Bjöm og Einar vom ráðnir til starfa en strax á árinu 2000 kom í ljós að þessar stofnanir fengu ekki fjárhagslegan stuðning til þess að halda starfinu áffam. Var þá brugðið á það ráð að einkavæða starfsemina. Júlíus var þá rannsóknastjóri hjá RALA en hafði einnig starfað í einkageiranum og með nokkra starfsreynslu þaðan hóf hann vinnu við undirbúning að stofnun og starfsemi ORF Líftækni og þeirri nýsköpunarvinnu sem var í deiglunni með Birni og Einari ásamt öðrum aðstandendum verkefnisins. Félagið tók við þessari starfsemi af rannsóknastofnunum á árinu 2002 og em þremenningamir fyrstu starfs- menn félagsins ásamt Þuríði Yngvadóttur. Líftæknisjóðurinn hf. og Framtakssjóður EFA, komu að starfseminni sem fjárfestar árið 2002 og síðan bættust Bændasamtök Is- lands í hópinn á liðnu vori. Yfir 2000 milljarða króna próteinmarkaður "Lyfjamarkaðurinn veltir að minnsta kosti 350 milljörðum Bandaríkjadollara á ári. Mörg ný lyf koma á markaðinn á hverju ári og verulegur hluti þeirra eru prótein sem líftæknin hefur gefið færi á að framleiða nú á síðustu tímum. Nú nemur lyfjaprótein- markaðurinn um 30 milljörðum dollara (um 2200 milljarðar króna) af þessum 350 milljörðum dollara og gert er ráð fyrir að hann tvöfaldist fyrir árið 2010." Júlíus segir einnig eftirspumina eftir próteinum stöðugt fara vaxandi og nú sé að koma í ljós að framleiðslugetan er flöskuháls í þessum hluta líftæknigeirans. "Þetta skiptir okkur máli en það skiptir ekki síður máli að með okkar tækni, sem er mjög öflug fram- leiðslutækni á sérvirkum próteinum, er hægt að framleiða prótein sem önnur kerfi ráða á ekki við. Við getum auk þess framleitt pró- tein sem þegar em á markaði á lægra verði og þar með prótein sem menn hafa ekki viljað fara út í ftamleiðslu á vegna þess að ekki hefur verið tryggt að hægt væri að framleiða þau á því verði sem að markað- urinn er tilbúinn að greiða." Efni sem mannveran byggist á Júlíus segir nauðsynlegt að skýra muninn á próteinum og genum í þessu sam- bandi til þess að fyrirbyggja misskilning. ræktun í bakteríum eða dýrafrumum. Hér er því um algera byltingu að ræða." Júlíus segir að hjá ORF sé unnið að þróun á nýrri hreinsitækni til þess að ná þeim kostnaði sem af hreinsuninni hlýst einnig verulega niður. "Þannig emm við að þróa miklu ódýrara framleiðslukerfi heldur en þau kerfi sem hingað til hafa verið notuð." Auóvelt að ufmarka byggið Júlíu svarar spumingunni um af hverju byggið hafi orðið fyrir valinu með þeim hætti að það sé afkastamikil landbúnaðar- planta, rætunarþekkingin til staðar og öryggið mikið. "Afköst í byggrækt em góð eða á bilinu þrjú til sex tonn á hektara. Við getum einnig gefið plöntunni "fyrirmæli" um að framleiða viðkomandi prótein ein- ungis í fræjum og í ákveðnum fmmum en

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.