Fákur


Fákur - 01.04.1927, Page 8

Fákur - 01.04.1927, Page 8
6 F Á Iv U R Fjörhestum fækkar. Er skeiðið að hverfa úr sögunni? Bæði eg og ýmsir aðrir, sem átt hafa tal við mig um hesta, fullyrðum, að sönnum fjörhest- um sé að fækka á landi hér, en aftur á móti fjölgi hinum, sem kallað er að hafi sæmilegan reiðvilja og eru þægilegir ásetu. Eru flestir þeir hestar að meira eða minna leyti töltgengir, sem stafa mun af því, að menn eru alment farnir að leggja meiri rækt við töltið, og venja hesta sína meira við þann gang en tiðkaðist áður. Enda er svo komið, að þeir hestar eru sjaldan kallaðir reiðhestar, sem ekki kunna að hregða fyrii’ sig tölti. Ef það er rétt ályktað, að fjörhestum sé yfir- leitt að fækka, verður þó ekki því um kent, að nú sé uppeldi hesta lakara en áður, og því sið- ur að reiðhestar séu ver fóðraðir nú, en fyr á tímum. Verður því að leita að öðrum ástæðum og má cl'laust geta sér margs til í þessu efni. Fjöldi manna kcnnir hörðu vegunum fjör- leysi hestanna. þeim mönnum er eg ekki að öllu lejdi sammála, enda finnast enn, sem betur fer, miklir fjörhestar, sem ekki láta hörðu vegina aftra sér frá snöggum fjörkippum og til- þrifagóðum sprettum, þótt eg hinsvegar játi, að flestir hestar kunni hetur við moldargötur, harðar valllendisgrundir og sanda, þar sem að eins markar spor, að eg ekki nefni hjarn og isa, sem við Reykvíkingar höfum þó ekki mikið af að segja. Hitt má til sanns vegar færa að liörðu vegirnir séu eklci hollir, miðað við það reiðlag', sem nú tiðkast. Að þvinga á tölti, livaða liest sem er, og það á hörðum vegi, það deyfir eflaust fjörið, og gerir flesta hesta tilþrifaminni, en þeir voru að upplagi. En J?að, sem eg á við með fækkun fjörhesta er það, að nú komi fram á sjónarsviðið færri efni en áður, er i sér hafi hin sönnu einkenni fjörsins. Og það getur ekki verið liörðu vegun- um að kenna. pessvegna verður að leita að öðr- um ástæðum, sem eg geri þó ráð fyrir að vand- fundnar verði, og það sem eg segi hér, verði frekara að teljast tilgátur en fulla vissu. ^rá mínu sjónarmiði séð, þykir mér senni- legt að nokkru valdi um fækkun fjörhesta tryppasala sii til útlanda, sem átti sér stað t. d. á árunum 1920—1924. Ýmsir bændur hafa vegna fjárhagsörðugleika síðari ára orðið að farga á markað ótömdum folum — og stund- um hryssum líka — þótt tryppin bæru öll ein- kenni fjörs og annara gæða, sem sannan góð- hest má prýða. Til eru og þeir, sem láta sig það engu skifta, þótt þeir árlega selji út úr landinu rakin hestefni, þrátt fyrir það, þó að þeir efnanna vegna liefðu átt hægt með að fresta sölu Jieirra, þangað til full reynsla var fengin um gæði tryppanna. Og loks er hópur manna, sem aldrei bar gæfu til að þekkja sönn vilja- merki i tryppi, þótt þeir hafi frá blautu barns- beini alist upp svo að segja á hestbaki. J?á er annað, sem hugsanlegt er að valdi noklcru um fækkun fjörhesta, og það eru hrossakynbætur Búnaðarfélagsins. — Eins og kunnugt er, hafa flestir hrossákynbótaráðu- nautar Búnaðarfélagsins, að Theódór Arn- björnssyni undanskildum, lagt aðaláherslu á s t æ r ð og þ y n g d undaneldisfolanna. J?eir hafa lmgsað meira um að stækka kynið snögg- lega, ala upp stóra og föngulega akhesta, heldur en sameina stræðinni fjör, snarræði og létt- leika, er lengstum hefir þótt mest um vert og taldir bestu kostir liesta okkar. En nú hafa straumhvörf orðið í hrossakynbótunum, sem þakka má Theódór Arnbjörnssyni. Hann legg- ur aðaláhersluna á fjör og fimj undaneldisfol- anna, og er það vel farið. Má því ætla, er stund- ir líða, að sjáist í hópi þeirra hesta, er þá verð- ur um liéruð riðið, friðir og föngulegir fjör- gajiar. J?ó að ekki verði að sinni talið fleira, sem liklegt er að valdið liafi fækkun fjörhesta nii um stund, þá efast eg þó ekki um, að benda mætti á sitthvað enn. En hitt finst mér síst úr götunni, áður en eg skilst við þetta mál, að minnast örfáum orðum á s k e i ð i ð, því að þar er um slíka afturför að ræða, sem alls ekki er vansalaus reiðmensku Islendinga. Ef það er rétt álylctað, að fjörliestum sé jTir- leitt að fækka, þá er hitt áreiðaulegt, að skeið- hestum hefir hrakað svo, þennan fjórðung sem af er öldinni, að það má næstum einsdæmi kall-

x

Fákur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fákur
https://timarit.is/publication/917

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.