Fákur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Fákur - 01.04.1927, Qupperneq 10

Fákur - 01.04.1927, Qupperneq 10
8 F Á K U R Kappreiðarnar við Elliðaár. Fimm ára starfsemi Fáks. Forspjall. ]?að þarf síst að undra um íslendinga, sem segja má um, að aldir hafi verið upp á hestbaki, þó að nokkurs metnaðar liafi gætt manna i inilli um gæði hesta, flýti þeirra og þol. Frá þvi sögur hófust, mun það hafa tíðkast að í’íða i köpp, sem kallað er, og sá knapinn að jafnaði drjúgur með sjálfum sér, sem átti þann hestinn, er götunni liélt, þegar margir hleyptu saman. Slíkar smákappreiðar hafa verið háðar um land alt, öld eflir öld, og enn hafa menn gaman af að leiða iiesta sína saman og ríða i köpp, þegar svo ber undir að fleiri eiga sam- leið, sem vel eru riðandi. Og skemtilegra umtalsefni getur ekki í hóp þeirra manna, sem hvorttveggja eru í senn: reiðkænir og taumslyngir, en að rifja upp sög- ur um afburða snjöllu gæðingana. peir hafa líka ef til vill sjálfir, hver í sínu lagi, átt þann hlaupagamm, er oftast bar sigur af hólmi, og' engum dugði að þreyta við, á meðan hann var í fullu fjöri. Og þó að sá, er frá segir, sé kom- inn til ára og hættur fyrir löngu að staulast á liestbak, lifnar hann allur við, og augun glampa eitthvað svo notalega, á meðan hann rifjar upp Iivert smáatvik í sambandi við snjöllustu spretti gæðingsins, sem fallinn er fyrir mörg- um árum. Og honum er eklci siður hlýtt í huga, öldungnum þeim, sem rifjar upp söguna um Gamm, er hann greip skeiðið á miðjum spretti og þuldi á hreinum lcostum fram úr öllum hópnum. pegar þess er gætt, Iiver metnaður það var mönnum, að vera sem best riðandi, er þeir sóttu til mannfunda, og kapp manna í milli um að eiga fljótasta hestinn, þarf síst að furða, þótt að því ræki, að kappreiðar væru teknar upp og yrðu einn veigamesti þátturinn til gleðiauka á héraðshátíðum og sumarfundum þeim, sem háðir hafa verið víðsvegar um land, siðan þjóð- hátíðar-sumarið 1874. pó mun það ekki vera fyr en um 1890 að kappreiðar hefjast svo teljandi sé, en rnest fjör virðist hafa verið í þeim fyrir og eftir alda- mótin. pá má svo að orði kveða, að hylst hafi vexáð til að halda þjóðhátíðir og og aðrar sum arskemtanir á þeim stöðum einum, er komið gat til mála að efna til kappreiða í sanxbandi við þær. Og þó að til smárra eða engra verð launa væri að vinna, skorti sjaldnast lxesta á kappreiðar. Mela-kappreiðarnar. Merkastar af þessunx kappreiðuixi má eflaust telja þær, sem háðar voru á Skildinganesmel- um við Reykjavík. pær hófust sumarið 1897 og mest að tilstuðlun Englendings, Richardsson að nafni, sem stundaði laxveiði í Elliðaánum. Hann gaf fé til verðlaunanna i það sinn (200 lcrónur). En upp frá því voru kappreiðar jafnan fyrsti þáttur á skemtiskrá þjóðhátíðardagshis, 2. ágúst. pað var líka til hærri verðlauna að vinna á þessunx kappreiðum, en menn áttu að venjast (I. verðl. oftast 50 kr.), enda sóttu til þeirra hestamenn úr öllunx nærliggjandi sýslum: aust- an yfir fjall, ofan úr Borgarfirði og lengst að norðan, úr Húnavatnssýslu. Mátti því segja, að oft væri saman komið hér á Mclununx besta úr- val landskunnra gæðinga, þar sem hvorki skorti falleg tilþref né snjallan fótaburð. Sú nýlunda var þegar tekin upp í öndverðu, að mældur var hlauptínxi fljótasta hestsins á úrslitaspretti, og því haldið áfram flest árin, sem kappreiðar voru háðar hér, en það var sumarið 1909 að þær lögðust niður. Er því meiri fróðleik að sækja til Melakappreiðanna, en til annara, sem háðar voru víðsvegar um land á þessum árunx. En þó að Melakappreiðarnar þj’ki enn að ýnxsu merkilegar, skorti þó nxjög á, að til þeirra væri vandað, sem skyldi. Bæði var það, að nxenn þeir, sem að þeiixi stóðu, lxöfðu úr litlu fé að spila, enda var kostnaður sá hverfandi litill, sem varið var til undirbúnings þeim árlega. Rak

x

Fákur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fákur
https://timarit.is/publication/917

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.