Fákur - 01.04.1927, Síða 12
10
F Á Iv U R
í Kollafirði), Jarpur Guðm. Guðnasonar skip-
stjóra 27,6 og Jarpur Einars Erlendssonar 32,6
sek. — ]?egar bestu vekringarnir voru úr sög-
unni, þólti sýnt, að hinir næðu aldrei þeim
liraða, sem áskilinn var til I. verðlauna. pótti
þvi óþarft að reyna til þrautar og skeiðinu þar
með lokið að því sinni, án þess að veita nein
verðlaun.
Aftur á móti reyndust stökkhestarnir jafn-
betri og þóttu sumir þeirra stöklcva ágætlega.
Bestum hlauptima
í flolcki náði Brúnn
frá Hvítárósi, 25
sek., en lakastur
timi reyndist 27,5.
pó er aðgætandi
að hlauptími síð-
asta hests í liverj-
um flokki náðist
ekki. - Til úrslita-
hlaups valdi dóm-
neí'nd 7 fljótustu
hestana og voru
þeir reyndir allir i
senn. — Varð þá
fyrstur Skjónilnga
halcara, 24 sek.,
Brúnn frá Hvítárósi 24,2 og Sörli Ólafs Magn-
ússonar 24,6. Verðlaun voru 300, 150 og 75 kr.,
dæmd þessum hestum. Annars varð röð liinna
hestanna fjögurra þessi: næstur Sörla og fast
við hann var Tvistur Jóns Lárussonar, þá
Skeggi, 7 v., nýkeyptur norðan úr Húnavatnss.
af Seh. Thorsteinsson, lyfsala, þá Léttir Steind.
Gunnlaugssonar, og munaði hálfri hestlengd
að Skeggi var framar. Síðastur varð hrúnn foli,
6 v., frá Deildartungu í Borgarfirði.
pegar þess er gætt, að flestir hestarnir voru
sama sem óæfðir, og sumir lítt vanir vellinum,
en hann nýgerður og ótroðinn, þá verður ekki
annað sagt, en að hlauptími verðlaunagæðing-
anna sé eftir öllum vonum. Að vísu liöfðu liest-
arnir vindinn með sér, en það er nokkur léttir.
Síðari kappreiðar 1922.
Sunnudaginn 20. ágúst var efnt til kappreiða
í annað sinn á skeiðveUinum við Elliðaár.
Kappreiðareglur voru hinar sömu, nema að
sprettfæri skeiðhesta var fært niður í 200 m., en
lágmarkshraði til verðlauna hinn sami, 20 selc.,
og miðað við úrslitasprett. Verðlaun voru liin
sömu, 300, 150 og 75 krónur fyrir hvorttveggja,
skeið og stökk.
pátttaka mátti heita góð, og nokkrir hestar
þó all-langt að komnir, einkum þó úr Borgar-
firði. Á vettvang komu 9 vekringar og 20 stökk-
hestar.
Veður var leiðinlegt. Hafði ringt allmikið
undanfarið og
fram á sunnudag,
en skift um liá-
degið og skúraskil
öðru hvoru á með-
an kappreiðar
stóðu. Var völlur-
inn þvi hlautur og
þungfær með köfl-
um.
Skeiðhestarnir
voru reyndir í 3
ílokkum og runnu
að eins þrír þeirra
sprettfærið án þess
að hrökkva upp:
Faxi, Arna Gunn-
laugss., 24,4 sek., Sleipnir, Ólafs Guðnas., 23, og'
Mósi, porsteins Fjeldsteds, 24 sek. pessir vekr-
ingar sem upphaflega voru hver í sínum flokki,
voru revndir aftur, og þá allir saman. Fataðist
þeim þá báðum skeiðið, Faxa og Mósa, og
hrukku upp. Sleipnir einn skeiðaði marka í
milli, en var að því 24 sek. Var sá skeiðtími
svo langt frá lágmarkshraða þeim, sem tilskil-
inn var, að dómnefnd taldist ekki mega dæma
þessum eina hesti nein verðlaun.
Stökkhestarnir voru reyndir í 5 flokkum og
valt hlaupthni þeirra frá 24,6 upp í 31,6 sek.
(Garpur Guðm. Iir. Guðm.). Báru þar lang-
samlega af verðlaunahestarnir frá fyrri kapp-
reiðum (sjá skýrsluna hér á eftir), því að næsti
hlauptími var 27 sek. (Óskar og Neisti). Næst-
ur var Stígandi 27,6, þá Faxi 27,8 og Vikingur
frá Dalsmynni 28,2.* Hinir stökkhestarnir 12
voru allir fyrir ofan 29 sek.
* Stígandi, Faxi og Víkingur voru allir reyndir á
skeiði áður, en hrukku þá upp.
Verðlaunagarparnir 1922.
1