Fákur - 01.04.1927, Side 20
18
F Á Iv U R
nafnkunnir gæðingar. Var því áhugi manna öllu
meiri fyrir vekringunum en stökkhestunum.
Verðlaun stökkhesta og flokksverðlaun voru
hin sömu og áður um sumarið. En I. verðl. á
skeiði færð upp í 300 kr. eða sett eins og þau
voru í öndverðu. Hinsvegar voru II. og III. verð-
laun hin sömu og áður um sumarið.
Flokkshlaup stökkhesta fór svo, sem vitan-
legt var, að þar náði beslum hlauptíma Sörli
Ól. M. 23,6, en næstur honum Gosi Ivarls bakara
23,7, Baldur Kr. Guðmundss. 23,9 og Ivolskegg-
ur 24 sek., allir saman í II. flokki. í I. fl. varð
Blesi Sig. Gíslas. fyrstur 24,4 sek. og i III. fl.
Sörli Theódórs bakara 25,2 sek. Annars áttu
allir þessir 11 hestar að koma til úrslitahlaups,
en eigendur þriggja hestanna kærðu sig ekki um
að láta þá hlaupa oftar og urðu þeir því 8.
pá voru vekringarnir reyndir í 2 flokkum. í
fyrra l'I. skeiðaði að eins einn hesturinn sprett-
færið, Leiri pórðar Jónssonar, og var skeiðtími
hans 29,4 sek. Laugardæla-Rauður, sem marg-
ir höfðu litið hýru auga, hélst ekki á kostunum,
og jafnvel Miðdals-Sprettur toldi heldur ekki á
sínum kostum.
En seinni flokkurinn bætti það upp, sem í
ólagi fór hjá hinum og það svo, að allir hestarn-
ir, sem skeiðuðu marka í milli náðu betri hraða,
en áskilinn er lil I. verðlauna, og þó hrökk upp
snjall-vakrasti hesturinn, að sumra dómi, Sjúss
úr Hafnarfirði. peir, sem sprettfærið lágu á
kostum, voru: Hörður 24,4, Ilriki Kolbeins í
Kollafirði 24,7 og Sleipnir Brynjólfs í Vatna-
hjáleigu 24,9 sek.
í fyrra fl. úrslitahlaups varð fyrstur Jarpur
Vigf. Guðmundss. 25, Sörli Theódórs 25,1, prá-
inn og Blesi, báðir eign Sig. Gíslas., 25,2 og
25,3 sek.
1 síðari flokki varð Sörli Ól. M. langfyrstur
23,8 sek., Baldur 24,2, Gosi 26 og Kolskeggur
26,2 sek.
Til þess að lceppa um verðlaunin voru vald-
ir 2 fljótustu bestarnir úr hvorum flokki úrslita-
hlaupsins. En svo kynlega tókst til að enginn
hestanna náði þeim liraða, sem áskilinn var til
I. verðl. Sörli Ól. M. varð vitalega langfyrstur
en hlauptími hans 24,6. Að hann var það lengi
hlýtur að vera því að kenna, að ekki var við
jieitt að keppa, eins og sóst á því, að Baldur, sem
næstur honum var, nær að eins 25,2 sek., Jarp-
ur 25,4 og Sörli Theódórs 25,6 sek.
Úrskurður dómnefndar var sá, að Sörli Ól. M.
hlaut II. verðl. 100 kr. og' Baldur III. verðl.
50 kr.
Kappreiðareglur 1925.
Áður en kappreiðar hófust þelta vor (1925)
voru kappreiðareglurnar enn enduskoðaðar og
á þeim gerðar tvær breytingar, er rétt þykir að
taka liér upp.
Fyrri breytingin var sú, að þeir vekringar
sem að öðru leyti skeiðuðu spi’ettfærið yrðu
þó útilokaðir frá verðlaununum, ef skeiðtími
þeirra væri jd'ir 27 sek. (250 m.). Með þessu
vildi félagið enn betur sýna það, er fyrir því
vakti frá öndverðu: að verðlauna að eins gæð-
ingana, en útiloka alla meðalgutlara eða þar
fvrir neðan.
Siðari breytingin var um blauptímatakmark-
ið til úrslitahlaups. pað var, eins og áður er
sagt, upphaflega sett 3 sek., en fært niður i 2
sek. sumarið áður, en reynslan orðið sú, að enn
væri það óþarflega liátt. Var það að þessu sinni
fært niður í 1 sek., þó að ýmsum þætti þar
full langt gengið. Töldu l1/-* sek. hæfilegt.
Verðlaun voru ákveðin 200, 100 og 50 krón-
ur fyrir hvorttveggja, skeið og stökk, og flokks-
verðlaun 15 kr.
Hvítasunnu kappreiðarnar 1925.
Veður var allgott annan hvítasunnudag 1.
júní og fjölsótt úr horginni inn að skeiðvellin-
um við Elliðaár.
í flokkaskrá voru skráðir 18 stökkhestar og
voru 5 af þeim lengra að komnir: 3 austan yfir
fjallog tveir ofan úrBorgarf.Mátti heyraááliorf-
endum, að þeir hjuggust við góðri skemtun að
þessu sinni, enda voru þeir báðir komnir á vett-
vang, Eyvindarmúla-Skuggi og Sólheima-Mósi.
Töldu menn óvíst um leikslokin þó að Reykvík-
ingar sendu sína alkunnu lilaupagamma, svo
seni Sörla, Inga-Skjóna, Tvist og Hrafn.
í I. fl. varð Stjarni frá Gullberastöðum fyrst-
ur, 25,5 sek. En eigandinn, Pétur Vigfússon,
sem reið honum, bar sig svo ferlega, lamdi fóta-
stokkinn alla leið og barði klárinn með hönd-
unum, svo að hann var þegar dæmdur úr leik.