Fákur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Fákur - 01.04.1927, Qupperneq 24

Fákur - 01.04.1927, Qupperneq 24
22 F Á K U R samhliða Goði og Smári, en Goði þó að eins framar; hlauptími þeirra 22,8. Fimti í röðinni var Mósi 23, en Skjóni siðastur 23,2 sek. Dómnefnd úrskurðaði þegar Sörla I. verðl., Skugga II. og Goða III. verðl. En þar með var ekki öllu Jokið. — pórður i Múla (eigandi Skugga) og þeir sem honum fylgdu að málum, vildu ekki hlíta úrskurði dómnefndar, töldu hestana jafna, þar sem hlauptími væri sami og heimtuðu að Sörli og Skuggi yrðu látnir keppa til þrautar um I. og II. verðl. En dómnefnd hélt fast við úrskurð sinn og kvað hann í fullu samræmi við þá venju, sem fylgt Iiefði verið oft og mörgum sinnum, er svo bar undir, að tveir hcstar hlutu sama hlauptíma. Enginn ágreiningur um það innan hennar, að Sörli hefði haft betur þótt litlu munaði. Skoraði þá pórðm* á Ólaf að láta Sörla keppa móti Skugga um verðl., en Ólafur gaf þvi lítinn gaum. Varð þá að samkomulagi eftir tillögu dómnel'ndar og vallarstjóra, að þar sem enginn hestanna hefði farið fram úr metinu, þá skyldu þeir Sörli óg Skuggi keppa einir saman um metverðlaunin, en úrskurður dómnefndar að öðru leyti standa óhaggaður. Féllust háðir á þetta, Ólafur og pórður, og var hestunum riðið norður eftir. En hvort knapinn á Skugga (Arthur Guðmundsson) hefir gugn- að þegar á liólminn kom, skal ósagt látið. En Skugga fór hann að slöðva þegar fram á völl- inn kom, svo að Sörli neytti sín þá ekki og kom í hálfum hlaupum að marki; spretturinn því dæmdur markleysa og enginn hlauptími tekinn. Og þar með lauk kappreiðunum og var ekki efnt til þeirra framar þetta sumar. Kappreiðareglur 1926. Á kappreiðareglunum voru þær einu breyt- ingar gerðar, að hlauptimatakmarkið til úrslita- spretls var hækkað um (/2 sek., eða upp i iy2 sek., og að þeir stökkhestar, sem lengur væru en 26 sek. að hlaupa sprettfærið (300 m.), hlytu engin verðlaun. Hins vegar var heitið fernum verðlaunum á hvitasunnu-kappreiðunum: 200, 100, 50 og 25 kr. fyrir hvorttveggja, skeið og stökk. Hvítasunnu-kappreiðarnar 1926. Veður var ágætt annan hvítasunnudag (24. maí), en stormur dálítill af norðvestri. Var völl- urinn mjög þur, enda kom vatnsleiðslan i góð- ar þarfir. Var stökt vatni á völlinn og með því kæft niður moldrykið. Áhorfendur voru margir hæði úr Reykjavík og nágrenninu. Af 16 stökkhestum, sem skráðir voru í flokka- skrá, var að eins einn lengra að kominn, en þó gamall kunningi i hópi kappreiðahestanna. pað var Inga-Skjóni. Hann hafði sumarið áður ver- ið seldur upp í Rorgarfjörð og bjuggust sumir við, að hann mundi það endurhrestur og magn- aður eftir hvíldina i sveitinni, að hann yrði gömlu kunningjunum þungur í skauti. Af kunnum hestum voru þarna Sörli gamli, Goði og Smári. En auk þeirra voru á vettvang komnir ýmsir nýir gæðingar, er ekki höfðu sést á kappreiðum áður. Einkum litu menn Fifu- hvamms-pyt hýru auga, því að spurst hafði, að hann mundi flestum hestum betur æfður þetta vor, og hefði jafnvel skákað Sörla gamla á æf- ingum. En þar voru líka tveir aðrir nýir gæð- ingar í liópnum: Andvari porgríms Guðmunds- sonar, og Hrani Magnúsar Magnússonar, falleg- ir hestar og föngulegir, er margir gerðu sér góð- ar vonir um. í fyrsta flokki hafði Blesi Sig. Gislas. að eins vinninginn fram ylir Örn, en hlauptími beggja 23,8 sek., Fluga Steina á Valdastöðum í Kjós 24,2 og Gammur Har. Björnss. 24,3 sek. I II. 11. urðu svo að segja jafnskjót að marki Brana Eiriks Einarssonar og Reykur Jóns Guðnasonar, cn Brönu dæmdur spretturinn; hlauptími beggja 23 sek., Inga-Skjóni 23,1 og Goði 23,3 sek. í III. fl. voru aðalhlaupagarparnir og Sörli gamli l'yrstur að marki, 23,1, pytur 23,3, Hrani 23,4 og Andvari 23,6 sek. í IV. 11. bar Smári sigur af hólmi, 24,2 sek., Blossi porvalds frá Hjaltabakka 24,3, Faxi Árna Gunnlaugssonar 24,6 og Lokkur porgríms Guðmundssonar 24,7 sek. Vekringarnir voru með flesta móti, eða 12, og keptu í þremur flokkum. En ekki tókst þe:m hetur en svo, að að eins einn hestur úr hverjum flokki skeiðaði sprettfærið: í I. fl.

x

Fákur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fákur
https://timarit.is/publication/917

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.