Fákur - 01.04.1927, Síða 38
Um víða veröld.
Hestavísur.
Dýr hryssa.
Árið 1925 var hryssa af góðu brokkhesta-
kyni í Ameríku seld fyrir 18 þúsund dollara
(um 125 þús. kr., eftir norsku gengi), og er það
liæsta verð, sem fram til þess tíma hafði þeksl
fyrir lir\Tssui’.
Laglegur skildingur
er það, sem sumir Englendingar vinna árlega
í verðlaunum fyrir liesta sína í kappreiðum þar
i landi. T. d. vann lord Astor árið 1925 sam-
tals 26700 sterlingspund, eða 720900 krónur fyr-
ir 6 hesta, sem hann átti. Næstur honum komst
eigandi 3 vetra liryssu, sem „Manna“ nefndist,
og sigraði i Derby-hlaupinu það ár. Hún ein
færði eiganda sínum þetta ár hvorki meira né
minna en 21 þús. sterlingspund, eða 567 þús.
krónur. — En „Manna“, sem allir gerðu sér
miklar vonir um, lauk svo frægð sinni, að hún
<lalt á spretti þá um haustið á kappreiðum og
er fullyrt að hún muni ól'ær til kappreiða
framar. — En þótt „Mönnu“ þætti takast vel,
á meðan hún var, er þó uppliæð sú, sem jafn-
aldra hennar vann vestur í Ameríku þetta sum-
ar, nokkuð hærri. Hún vann samtals 191500
dollara eða um 1 miljón króna og varð líka
hæst þar í landi. Hún heitir Mad. Pery.
Engin miskunn hjá Magnúsi.
í Ungverjalandi kom það 1‘yrir sumarið 1925,
að knapi, sem kominn var á vettvang, til þess
að keppa, og vega átti 54 kg., reyndist % kg. of
þungur. Æfingastjórinn var strangur og vildi
ekki annað heyra en að knapinn væri nákvæm-
lega það þungur, sem ákveðið var. Alt var kom-
ið í eindaga og því góð ráð dýr. Var knapinn þá
drifinn í hað og síðan fekk hann duglega „inn-
töku“ i því skyni, að liann léttist um þetta Vz
kíló. Ahrifin sýndu sig fljótlega, því að knaji-
inn léttist um 1% kíló, og varð þá að útvega
nýjan hnakk og þyngri, svo alt væri löglegt.
í Buda-Pest vann þetta sama sumar knapi,
sem að eins vegur 29 kíló.
Ejöllin öskra, glymja gil,
grundir skjálfa og balinn,
þegar Röskur þrífur til
og þrumar á skeiði’ um dalinn.
Vel hefir sóst á vinamót,
vín er í brjósti inni-
Yfir hrjóstur hrauna’ og grjót
hleypti eg Gjóstu ininn.
pröstur.
Myndin framan á blaðinu er teiknuð af Birni
gullsmið Björnssyni, en öll myndamótin eru
gerð af Ólafi Hvanndal.
Kappreiðar
á komandi sumri.
pað mun nú ákveðið að tvennar kappreiðar
verði háðar i sumar, þær fyrri annan Hvíta-
sunnudag þ. 6. júni, en þær síðari sunnu-
daginn þ. 3. júli, og munu þær verða með líku
sniði og áður, og sérstakt folahlaup fyrir hesta
á aldrinum 5—6 vetra.
Ujipliæð verðlauna er enn ekki ákveðin, og
verður það og fleira kappreiðunum viðvíkjandi
auglýst síðar í hlöðum þeim sem fara út um
land.
Áhyrgðarmaður: Dan. Daníelsson.
FélagsprentsmiÖjan.