Tónlistin - 01.11.1943, Page 32

Tónlistin - 01.11.1943, Page 32
30 TÓNLISTIN við lagið, að á innilegra samband yrði alls ekki kosið. Og í hvert skipti, sem ég heyrði það eða söng, fann ég til sannrar gleði og ánægju, svo að ég hlakkaði einatt til, er röðin kom að þvi. Þótt Friðrik hefði ekki gert nema þetla lag, væri það eitt nóg til að lialda nafni hans á lofti. Það mun lifa sem gott dæmi þess, hvern- ig á að samlaga sig skilningsheimi harnsins. Friðrik hefir náð að finna hinn ríkjandi tón barnsins, sem hann mót- ar á margvíslegan en alltaf sannan hátt. Hann kynokar sér jafnvel ekki við tónendurtekningu í sifellu, ef orðin krefjast þess. Aðalatriðið er, að hjá harninu vakni rétt tilfinning fyrir því, sem orðin láta í ljós. Þau lög, sem við auðkennum sem „barna- söngva“, eru í eðli sínu oft ekkert annað en barnóralög, fundin upp1 af fullorðnum, þrungin raunskökkn innihaldi, er alls ekki hæfir barninu. En Friðrik hefir ldustað eftir rödd barnsins hetur en margir aðrir, það er víst óhætt að segja betur en allir aðrir hér á landi. Fvrir það á hann þúsundfalldar þakkir skilið. Hann hefir gefið harninu gaum, þegar það er eitt saman, þegar það leikur og syngur ótruflað fyrir sjálft sig. Þann- ig hefir hann kynnzt hinum einu réttu tónum þess. Friðrik hefir ávallt gert sér far um að ala hörnin og unglingana upp í lifandi samneyti við tónana. Hon- um hefir frá því fyrsta skilizt, að brýn þörf var á tónrænu uppeldi, og hann hefir því alið nemendur sína upp við tónlist og með tónlist. í því starfi hans hefir söngurinn af skilj- anlegum ástæðum verið nærtækast- ur. Hann hefir gert sér far um að forðast lifvana yfirheyrslur og þrá- látar endurtekningar og gengið á snið við stirðleg kerfi mótaðra sann- inda. Hin lífrænu tengsl við efnið hafa verið honum fvrir mestu. Þar með hefir Friðrik sýnt fram á, að tónlistarinnar verður ekki leitað einhversstaðar utan gátta, — hún hýr i okkur sjálfum, fylgir lífi okkar, hinum ýmsu tilefnum okkar að gleði og sorg; liún er vinur okkar og hugg- ari. Friðrik Bjarnason er ættaður frá Stokkseyri, þar sem faðir hans var organisti; er hann kominn af hinni eftirtektarverðu Bergsætt, sem alið hefir svo marga gáfumenn í söng og tónlist. Úr mikilli fátækt hrauzt hann til mennta og tók kennarapróf i Hafnarfirði árið 1904. Nótur lærði hann fyrst að þekkja, er hann var um tvítugt, en varð mikið ágengt á skömmum tíma. Sérstalclega liefir Friðrik kynnt sér söngkennslu í skólum á Norðurlöndum og í Þýzka- landi. Hefir hann gefið út margar skólasöngbækur, sem notaðar hafa verið um land allt, og væri óskandi, að fleira kæmi frá hans hendi af því tagi; á þvi er hrýn nauðsyn. Uppeldisfræðingurinn og tónskáld- ið Friðrik Bjarnason eru tvær óað- skiljanlegar hliðar á sama manni. Svipar honum i því til svissneska tónfræðingsins Hans Georg Nágeli, sem manna mest barðist fyrir út- breiðslu aðgengilegs söngs fyrir al- þýðu manna og samdi lög í því skyni. 1 tónsmíðum sínum er Friðrik bund- inn þeim uppeldisfræðilegu megin-

x

Tónlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.