Tónlistin - 01.11.1943, Side 56

Tónlistin - 01.11.1943, Side 56
54 TÓNLISTIN ég ekki getaS, því hér er allt í þeim venjulega fúla spenningargraut, sem á- vallt á hér heima. Hér eru engar nó.ur til, nema þær, sem Einar prentari á, en aö gefa þetta út í Suðra, það fer ég ekki fram á; bæði vil ég ekkert eiga viö Gest, og svo' mun hann ekkert vilja hafa meö þaö aö sýsla, bæöi af því hann er nú orðinn aftur landshöföingj- ans creatúr og svo er hann á móti mér svo sem einn af þeirri yngri generation, sem ég hef oft sýnt stóran skort á respekti, af því mér finnst ekki svo ntikiö til þeirra koma, og ég hefi ekki hrósað þeim nógu mikið. Nú, nú, ég fór í Jón Ólafsson og beiddi hann aö hjálpa, en Jón kvaðst ekki vel geta farið í Einar, þvi hann væri í máli á móti honum. En ég get ekki fengið af mér að fara í aðra blaðamenn, ég nenni ekki að láta neita mér, svo nú stendur við þetta. Kannske þú gætir fundið upp á einhverju ráði. — — Til E. M. 15. okt. 18S5. -----Rímur eru ekkert annað en episk kvæði, og þær gætu verið eins góðar eins og hver önnur Poesi, ef þær væru vel gerðar; item hefur verið haft á móti rímnalögunum, ja, það er satt, að oft er illa kveðið, en ef fara ætti út í allar O'kkar músíkölsku præsationir — in- clusive söngkennslunni sem nú er, þar sem engin hugmynd er um ,,Foredrag“, fegurð &c — þá mætti margt segja. — Til E. M. 28. nóv. 1885. Eg get nú ekkert gert að svo stöddu við lagið við „Vestan um haf“. Eg hef engan aðgang að Einari prentara, sem er sá einasti, sem getur prentað nótur, en hann er nú orðinn hálfómögulegur, 0g ég hef ekki sjálfur ráð á að kosta það; Helgi snikkari sagði mér um dag- inn, að hann hefði sett Iag við kvæðið og lézt ætla að gefa það út, ef ég leyfði, og kvaðst ætla að gefa út sínar eigin Compositionir smátt og smátt; rétt þar á eftir kom hann með eitt prentað ark með nótum, og þar á var „Söngurinn" eftir St. Th. og „Skarphéðinn" eftir Hannes Hafstein, og varð ég hálfstygg- ur við Helga og sagðist ekki álíta það neinn heiður fyrir mig að vera í hala- rófunni á Steingrími og Hannesi, og þar að auki þætti mér lítið koma til þessara kvæða; en annars sagðist ég ekkert skipta mér af þessu — svo ég veit ekki livað Helgi gerir, en líklega gefur hann lagið út, því ég er orðinn vanur þess- um látum í Helga, hann hefur oft láuð jiannig við mig; en mér er ekki til neins að fara í þessa menn, það er ég-marg- búinn að reyna.----- Til E. M. 30. ág. 1S58 (skrifað í Þýzkal.). — — Ekki vantar mann hér músík eða söng, og Piano eru um allt, þar sit ég agndofa, því sumir spila ágætlega. Hér leikur einn maður svo vel Menu- etten af Don Juan (Goða það likast unun er), að ég er hreint hissa, og glápi á tangentana eins og hundur á stóra og ilmandi rúllupylsu, sem hann þorir ekki að. — — HIÐ TÓNVÍSA HÖFUÐSKÁLD METUR ÞJÓÐLÖGIN MIKILS. „Með endurreisn rimnalistarinnar mundi stofnast bragaskóli þjóðarinnar að nýju. Siðabót lýðbragsins bannfærir keskni, níð og sorpkviðhnga, og þá rís ný, sterk alcia hinnar a.mennu skáld- menntar, sem þjóð vor er borin til. En að því er rímurnar sjálfar snertir kemur eitt sérstakt atriði enn til greina, það er eðli þeirra sem nokkurs kyns hálfkvæði mitt á milli söngs og lestrar, er virðast mætti erfitt að sameina sannri list. Af sögu rimnalaganna er það auðsætt, að þau hafa um langan aldur hrifið þorra þjóðarinnar, og gjört þar víöa hlýtt og bjart, sem annars mundi hafa verið harla kalt og dauflegt, úti um hinar strjálu byggðir íslands. Og það verður einnig sannað og sýnt, að í þeim hefur komið fram afar fjö'.breytil gur auður íslenzkra söngþanka. Þvi miður mun þó mikið af þeim auð hafa glatazt

x

Tónlistin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.