Tónlistin - 01.11.1943, Page 71

Tónlistin - 01.11.1943, Page 71
tónlistin 69 nieta hina fögru list, tónlistina. Ef aö- stæöur mínar heföu leyft, mundi ég sjálf- ur hafa kosiö mér tónlistina aö lífsstarfi, því aö ég ann henni hugástum, og allir, sem aö þeirri fögru íþrótt vinna, eru vinir minir. Þórður Jónsson Eyrarbakka. rímaritið Tónlistin, Reykjavík. Heiðruðu útgefendur: Enda þótt ég spili ekki á neitt hljóö- færi og hafi aldrei opnað tónfræðibók, virðist mér aö menningargildi tónlistar sé staöreynd, sem ekki veröi um deilt, og að viöleitni islenzkra tónlistarmanna, að göfga landslýðinn á þessum vett- vangi, veröskuldi stuöning. Erfiöleikar tonlistarmanna, aö skrifa fræðilega og alþýðlega í senn, hljóta aö verða mjög miklir, þar sem örlítill hluti þjóöarinn- ar ber skyn á hin alþjóðlegu tónlistar- hugtök, og þá engu fremur á hinar ný- íslenzku þýðingar. % er ritstjóranum þakklátur fyrir athugasemd hans um „l’art pour l’art“. Ég hefi lengi litið á þaö slag'orö sem mannhættulega fjarstæðu. Ekki „listin iyrir listina", heldur „listin fyrir lífiö“! Eftir því, sem ég.má um þaö dæma, er andi ritsins skynsamlegur og hollur — og gerist ég því hér með kaupandi. Með beztu óskum til handa „Tónlist" og útgefendunum. Friðrik A. Friðriksson Húsavík. Ég hefi nýlega fengið þriðja hefti af TÓNLISTINNI, og likar mér þaö nijög vel. Ég hefi alltaf haft mikið yndi af tonlist, þótt ég sé meö þeiin ósköpum fæddur aö geta ekki raulað lag. Og fyrir nokkrum árum fór ég aö basla við aö læra að spila á stofuorgel en hefi lítillar tilsagnar notið í þeirri grein, aö undan- teknum tveimur vikum, sem ég var hjá Bjarna Bjarnasyni á Brekkubæ i Horna- firöi. En þótt ég hafi lítið komizt áfram í orgelspili, hefir hljóðfærið samt veitt mér óteljandi ánægjustundir. Þessvegna er það eins og opinberun að fá eitthvað á borð viö „Tónlistina". Og þó aö und- irleikurinn i lögum Páls Isólfssonar og Árna Björnssonar sé alls ekki mitt með- færi, hefi ég saint haft yndi af lögun- um. Interlude Björgvins Guðtnundsson- ar þykir mér mjög fallegt og auðvelt að spila. — Væri ekki tiltækilegt, að tímaritið flytti kafla um tónfræði fyrir þá, sem litla þekkingu hafa í þeirri grein og óhæga aðstöðu til að afla sér hennar á annan hátt? Ef til vill væri hugsanlegt, að Félag íslenzkra tónlist- armanna gæti haldið uppi bréfaskóla í þessari grein. Ennfremur vildi ég vekja máls á því, hvort ekki væri hægt að stofna nokkurskonar tónbókmenntafé- lag, sem þeir innrituðust í er hljóðfæra- leik stunda, og greiddu þeir fast árgjald og fengju fyrir þaö eitthvað ákveðið af nótnabókum á ári hverju? Félag is- lenzkra tónlistarmanna vildi ef til vill taka þetta til athugunar. Með útgáfu „Tónlistarinnar" vinnur Félag íslénzk.ra tónlistarmanna mjög þarft verk, þar sem stefnt er að því að opna augu þjóðarinnar fyrir því göf- ugasta og bezta, sem mannsandinn á til. Hróðmar Sigurðsson Kyljarholti í Austur-Skaftafellssýslu. Ætli að það verði ekki lengi svo, að miklu þrengri bás verði markaður tón- verkum og söngritum til útbreiðslu en allflestu öðru prentuðu máli, að minnsta kosti svo lengi sem alþýða íslands er ekki tónlæs. Menn teyga í sig sögurn- ar, af þvi að þeir eru læsir á mælt mál, en hafna lögunum, af því að þeir eru ólæsir á sungið mál. Við þetta bíður allt tónlistarlíf okkar stórfelldan hnekki, og menn hvorki hlusta á né lesa tónverk. Útgáfur tónverka eru þar með dauða- dæmdar, því að útgefandinn spyr ekki hver mestur sé hagnaðurinn, heldur hvað minnst sé tapið. Eru það heldur ólífg- andi staðreyndir að gefa andans auð — ef til vill í mörgum tilfellum ódauð- legan — en tapa á því að koma honum

x

Tónlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.