Bændablaðið - 31.08.2004, Page 16

Bændablaðið - 31.08.2004, Page 16
16 Þriðjudagur 31. ágúst 2004 Aðgerðir til að tryggja góða meðferð á dýrum, hreinlæti við slátrun og gæði húða. Sláturdýr þurfa að vera hrein því: 1. Kjötið getur mengast sýklum og rotnunargerlum í slátrun Ýmsir sýklar, t.d. salmonella, kamfýlóbakter og saurkólí, geta leynst í saur sláturdýra sem virðast heilbrigð. Við slátrun óhreinna sláturdýra (sjá mynd 1) er hætta á mengun kjötsins og afurðirnar geta því orðið varhugaverðar til neyslu. Þrátt fyrir strangar hreinlætiskröfur mengast skrokkar óhreinna sláturdýra af rotnunar- gerlum. Það rýrir gæði og geymsluþol afurðanna. 2. Dýravelferðar skal gætt í eldi sláturdýra Óhreinindi á húð geta valdið sárum og sýkingum, auk þess getur húðin brunnið undan skítnum.(Sjá mynd 2). Það veldur vanlíðun,, vanþrifum og lélegri fóðurnýtingu. Slíkt samræmist ekki kröfum um dýravelferð. Óhrein sláturdýr geta bent til vanhirðu eða lélegs aðbúnaðar. Eftirlitsdýralækni ber að tilkynna slíkar grunsemdir til héraðsdýralæknis. 3. Húðir eru verðmæti Óhreinindi valda oft varanlegum húðskemmdum og þar með verðfellingu á húðum. 4. Löggjafi og kaupendur gera kröfur Í lögum og reglugerðum eru gerðar kröfur um að óhreinum dýrum sé slátrað þannig að fyllsta hreinlætis sé gætt. Eftirlitsdýralæknirgetur krafist þess að slík dýr séu ekki tekin til slátrunar eða slátrað sér. Minni hraði á sláturlínu og meiri vinna eykur kostnað við slátrun. Óhreinkist skrokkar við slátrun, ber að skera burt óhreinindin. Það kostar meiri vinnu og henda verður kjöti. Stjórnvöld og kaupendur (verslanir, kjötvinnslur, mötuneyti, neytendur o.s.frv.) gera sífellt meiri kröfur um hreinar afurðir. Mengaðar afurðir geta valdið minni markaðshlutdeild afurðastöðvar og þar með fjárhagslegu tjóni. Matvælafyrirtækjum er skylt að hafa innra eftirlit og uppfylla þar með lágmarkskröfur um hreinlæti og gæði. Ein af forsendum þess að fyrirtækin geti uppfyllt þessar kröfur er að aðkeypt hráefni standist almennar kröfur um heilbrigði og geymsluþol. Fyrirbyggjandi aðgerðir: Aðbúnaður Nægur undirburður er nauðsynlegur. Þrífa skal bása og stíur reglulega. Stíugólf skal hannað þannig að ekki safnist fyrir hland og skítur. Bitar skulu vera hæfilega breiðir og millibil nógu stór. Hæfilega margir gripir skulu vera í stíu svo skítur troðist niður. Gott er að fóður og vatn séu sitt hvoru megin í stíunni til að auka umferðina. Góð loftræsting, sérstaklega að vetrarlagi, til að koma í veg fyrir slaga. Miða skal básastærð við stærð gripa. Umhirða Klippa/rýja skal dýr um leið og þau eru tekin á hús og síðan eftir þörfum svo ekki myndist kleprar. Fjarlægja skal óhreinindi jafnóðum af dýrunum. Hægt er að þrífa óhrein dýr fyrir slátrun með því að bleyta þau daglega með volgu grænsápuvatni þar til kleprarnir fara að losna. Dýrin eru þá kembd og skoluð vandlega. Ekki má nota háþrýstidælu! Fóðrun Forðist fóður sem veldur skitu. Flytjið gjafagrindur reglulega og setjið þær á þurra staði. Hrein dýr Engin sýnileg óhreinindi Óhrein dýr Dýrin eru greinilega óhrein á kvið á bringu á lærum á síðum á spegli og drundi eða með skítabrynju á minni svæðum á kvið, lærum, síðum, og víðar. Mjög óhrein dýr Dýrin eru mjög óhrein: á kvið á bringu á lærum á síðum á spegli og drundi eða með skítabrynju á minni svæðum á kvið, lærum, síðum og víðar. Sláturleyfishafi getur verðfellt afurðir komi dýrin sannanlega óhrein frá bónda. Ráð og leiðbeiningar Dýr óhreinkast vegna þess að aðbúnaði, umhirðu eða fóðrun er ábótavant

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.