Bændablaðið - 31.08.2004, Side 21

Bændablaðið - 31.08.2004, Side 21
Þriðjudagur 31. ágúst 2004 21 Skjól – skógur – skipulag Málþing verður haldið föstudaginn 3. september kl. 13-17 í húsi Orkuveitu Reykjavíkur B jarhálsi 1 Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Skógrækt ríkisins, Landgræðsla ríkisins, Félag íslenskra landslagsarkitekta og Arkitektafélag Íslands. Dagskrá: 13.00 Alexander Robertson skógfræðingur (PhD) frá Kanada “Wind patterns - visualization – shelterbelts – design features” 13.45 Umræður 14.00 Sigurður Harðarson arkitekt AÍ - “Áhrif vinda á byggingar - mikilvægi skjóls” 14.30 Umræður og kaffihlé 15.00 Yngvi Þór Loftsson landslagsarkitekt FÍLA - “Skógrækt í skipulagsáætlunum” 15.30 Umræður og tilraunir 17.00 Málþingi lýkur - Sjá einnig nánar á heimasíðu LBH – www.hvanneyri.is Þátttaka tilkynnist: Helga Birni Ólafssyni endurmenntunarstjóra LBH í síma 433 7040, 860 7304 eða á netfangið helgibj@hvanneyri.is Á þessu ári hlutu samtökin Lifandi Landbúnaður ásamt fyrir- tækinu Skref fyrir skref.is styrk úr starfsmenntasjóði Vinnumála- stofnunar til að hanna, þróa og meta verkefni sem nú hefur hlotið nafnið STÓRBAGGAR Í STÆÐUNNI. Um er að ræða nám sem á að auð- velda konum í landbúnaði að nýta krafta sína til starfa og sóknar fyrir atvinnugreinina og skapa nýja möguleika. Í verkefnisstjórn eru þær Ragnhildur Sigurðardóttir, Álfta- vatni á Snæfellsnesi, Kristín Linda Jónsdóttir, Miðhvammi í Þingeyjar- sýslu og Hansína B. Einarsdóttir, Glym í Hvalfirði. Nú er fyrsta verkefnið að fara af stað og í tilefni af því fékk Bændablaðið þær til að skýra nánar frá þessu verkefni. Þær stöllur voru sammála um að það væri forgangsverkefni að gera bændakonur sýnilegri og skapa þannig öflugar fyrirmyndir fyrir aðrar konur. Konur sinni ótal verkefnum og það væri samfélaginu mikilvægt að raddir þeirra heyrist til jafns við karla. Verkefninu er ætlað að auka tekjumöguleika og ný- sköpun í landbúnaði og byggja upp virkt tengslanet kvenna í öllum greinum landbúnaðarins. Kristín Linda sagði að það væri ljóst að í atvinnugreinum landbúnað- arins eins og víðar í þjóðfélaginu nýttust kraftar kynjanna ekki til jafns til þeirra verka sem vinna þyrfti í hagsmunagæslu, kynningarstarfi og stefnumótun. "Eftir því sem fólki fækkar í atvinnugreinum landbúnað- arins er mikilvægara að virkja ein- staklingana og hvetja þá til að taka ábyrgð á hagsmunagæslunni. Því miður sýna tölur að sláandi fáar konur eru tilbúnar til að axla þessa ábyrgð. Það er því er rík ástæða til að hvetja þær til verka." Hansína minnti á að kannanir sýndu að oft þarf annað til þess að hvetja konur til stjórnunar og ábyrgðarstarfa en karla. "Konur for- gangsraða oft á annan hátt en þeir, t.d. varðandi uppeldi og heimilislíf. Þetta þýðir að þær hafa e.t.v. betri tíma síðar á ævinni til þess að takast á við ýmis önnur verkefni." Ragnhildur sagði að þær teldu sig fyrst og fremst vera að vinna eftir samþykktum kvennanna í grasrótar- hreyfingunni, "en jafnframt er það að nýta krafta kvenna samfélagsleg krafa nú á dögum, við þurfum að nýta alla okkar bestu liðsmenn, hvort sem þeir eru karlar eða konur." Í fyrsta verkefnishópnum er æskilegt að taki þátt reyndar konur sem geti bæði verið þátttakendur og eins lagt mat á verkefnið í heild sinni. Hámarksfjöldi þátttakenda í hvert verkefni eru 15 konur og fyrsti hópurinn er að fyllast. Ef vel tekst til mun á næstu árum fjölda kvenna um allt land verða boðið að taka þátt í sambærilegu verkefni. Námskeiðið er kynnt á heimasíðu Lifandi land- búnaðar; á landbundur.is og bondi.is. Stórbaggar í stæðunni www.bondi.is Bændur Tek að mér rafbylgju- mælingar og varnir í útihúsum og á heimilum. Leitið upplýsinga. Garðar Bergendal. Sími 581-1564 eða 892-3341. SANTANA ER KOMINN Verið velkomin í reynsluakstur á þessum frábæra vinnubíl Skemmuvegi 6 Sími: 587-1280 www.bsa.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.