Bændablaðið - 31.08.2004, Page 26
26 Þriðjudagur 31. ágúst 2004
Sunnudaginn 22. ágúst stóð
Sauðfjársetur á Ströndum fyrir
meistaramóti í hrútadómum í
Kirkjubólsrétt við Stein-
grímsfjörð. Er þetta annað árið í
röð sem slík keppni er haldin á
Ströndum. Framkvæmdin á
hrútadómunum er með þeim
hætti að sérvalin nefnd
valinkunnra ráðunauta og
hrútaþuklara tekur fjóra hrúta
til skoðunar og raðar þeim í
gæðaröð með aðstoð allra
nýtísku tóla og tækja áður en
keppni hefst. Hrútarnir sem
valið var úr komu frá bændum í
Tungusveit, frá bæjunum
Tröllatungu, Húsavík, Miðdals-
gröf og Þorpum. Dómnefndina
skipuðu Jón Viðar Jónmunds-
son, ráðunautur hjá BÍ, Svan-
borg Einarsdóttir hjá Ráðu-
nautaþjónustu Húnaþings og
Stranda og Lárus Birgisson hjá
Búnaðarsamtökum Vesturlands.
Keppt er í tveimur flokkum.
Annar fyrir vana bændur en hinn
fyrir óvana. Þeir sem eru vanir
hrútadómum þurfa að stiga hrútana
á hefðbundinn hátt og raða þeim í
gæðaröð. Leyfð hjálpartæki eru
engin, aðeins má nota hendurnar
og önnur meðfædd skynfæri. Þeir
óvönu þurfa hins vegar ekki að
nota stig í mati sínu á gæðum
hrútanna en gera tillögu um
gæðaröðina á hrútunum.
Keppendur að þessu sinni voru
yfir 30 talsins en rúmlega 100
manns mættu á svæðið og fylgdust
með. Verðlaunahafar voru
víðsvegar að af landinu en í fyrra
hirtu Strandamenn öll verðlaun
sem í boði voru. Nú var aðeins
einn Strandamaður í hópi sigur-
vegara - Jón Valur Jónsson (4 ára)
frá Kirkjubóli sem vann 3. verð-
laun í flokki óvanra hrútaþuklara. Í
öðru sæti í þeim flokki varð Svala
Einarsdóttir frá Bolungarvík en í
fyrsta sætinu lenti Guðlaug
Elíasdóttir í Bolungarvík. Í þriðja
sæti í flokki vanra hrútaþuklara var
Gréta Karlsdóttir á Efri-Fitjum í
Húnaþingi vestra, en jafnir í fyrsta
sæti urðu Eiríkur Helgason í
Stykkishólmi og Björn
Sigurvaldason á Litlu-Ásgeirsá í
Víðidal.
Góð verðlaun voru í boði í
báðum flokkum - gefin af Kaup-
félagi Skagfirðinga, Sölufélagi
Austur-Húnvetninga, Álafossi og
heimafyrirtækjunum Strandagaldri
og Sauðfjársetrinu.
Sigurvegarar í flokki vanra þuklara, Gréta, Eiríkur og Björn
Sverrir bassi Guðbrandsson og
hrúturinn Bjartur í Miðdalsgröf
sem er frá Hafnardal
Hrútadómar
á Ströndum
mörkuðum því að handprjón
virðist vera í uppsveiflu. Sömu-
leiðis eru ágætar horfur með sölu á
hreinni ull á erlenda markaði.
Engar verðsveiflur hafa átt sér
stað og verðið því það sama og í
fyrra. Þar sem ekki hefur verið
hægt að koma þeirri ull, sem Ístex
liggur með, í verð verða tafir á
lokauppgjöri á haustull frá í fyrra.
Á réttum tíma voru greidd 70% til
bænda en 30% átti að greiða 180
dögum síðar en á því verða tafir,
að sögn Guðjóns. Þegar ullar-
þvottur hefst komast málin í eðli-
legt horf hægt og rólega.
Ullarmálin
framhald af bls. 1
Miðstjórn Nor-
rænu bænda-
samtakanna
Verslun er engin
töfralausn -
Þróunarlöndin verða
að fá svigrúm til að
þróa og byggja upp
eigin landbúnað
Miðstjórn Norrænu bændasam-
takanna, NBC, (Nordens
Bondeorganisationers Central-
råd), hélt árlegan fund sinn í
Reykjavík 17. ágúst sl. Meðal
mála á fundinum var staða
þróunarlandanna og verslun
með búvörur. Forsvarsmenn
bændasamtaka á Íslandi,
Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku
og í Noregi samþykktu þar
eftirfarandi ályktun varðandi
verslun og þróunarlönd:
1. Þróunarlönd jafnt og
iðnríki þurfa á fjölþættri verslun
og viðskiptum að halda, en
verslun með búvörur er engin
töfralausn fyrir þróunarlöndin til
að komast út úr fátækt. Þar má
t.d. nefna fríverslun með dæmi-
gerðar framleiðsluvörur þróun-
arlandanna, kaffi og te. Frelsi í
viðskiptum með þær vörur hefur
ekki fært löndunum, sem fram-
leiða þær, betri lífskjör.
2. Aðstoð við þróunarlönd
verður að beina markvisst til
þeirra landa og þeirra hópa í
hverju einstöku landi sem hafa
brýnasta þörf fyrir hana. Verslun
með búvörur er engin trygging
fyrir slíkri dreifingu að-
stoðarinnar.
3. Þróunarlöndin verða að
hafa svigrúm til að byggja upp
sjálfbæra búvöruframleiðslu sína.
4. Það verður að gefa land-
búnaðinum meira vægi í þróunar-
aðstoðinni. Bændur í þróunar-
löndunum þurfa á stuðningi að
halda við að bæta menntun sína og
byggja upp samtök sín og
samvinnufyrirtæki til að styrkja
markaðsstöðu sína.
Forystumenn bænda á
Norðurlöndunum eru sammála um
að búvöruviðskipti sé flokkur við-
skipta þar sem algjörlega frjáls
milliríkjaviðskipti hæfa illa.
Viðurkenning á sérstöðu land-
búnaðar er nauðsynleg til að bú-
vöruframleiðslan þróist á farsælan
veg, bæði í þróunarlöndunum og
á Norðurlöndum.
Eftir einstaklega þurrviðrasamt
sumar um allt land er farið að
bera á vatnsskorti á ákveðnum
stöðum á landinu. Einna verst
virðist ástandið vera á Norður-
og N-Austurlandi. María Svan-
þrúður Jónsdóttir, ráðunautur á
Húsavík, segist hafa heyrt af því
að vatni hafi verið ekið í tönkum
og dælt í vatnsból.
,,Ástandið er greinilega víða
slæmt og maður sér að fé er komið
niður af afrétti vegna þess að þar er
enga vætu að fá og gróður
skrælnaður enda hefur nánast
ekkert rignt hér á svæðinu í sumar.
Þess eru dæmi hér að meira en
þriðjungur túna sé uppskerulaus
vegna þurrka," sagði María Svan-
þrúður. Einnig bitnar þurrkurinn á
grænfóður- og kornuppskeru á
stöku stað.
Víða hefur fræ ekki spírað
Hún segist hafa verið á ferð um
afrétti með landgræðslumönnum
um miðjan ágúst. Þau fóru m.a. um
Reykjaheiði, Tjörnesheiði, Öxar-
fjarðarheiði og Hvamms- og Dals-
heiðarnar. Í ljós kom að víða hefur
fræ ekkert spírað þar sem sáð var í
uppgræðslur í vor. Áburðurinn
liggi bara ofan á jörðinni og lítið
hafi gerst. Á þessum heiðum var
nánast ekkert sauðfé að sjá, það
virðist flest komið niður.
María segir að sl. tvö ár hafi
allnokkrir bændur nýtt sér það að
láta bora eftir vatni og einnig hafi
vatnsból víða verið endurbætt.
Sums staðar í sveitum séu góðar
samveitur á vatni úr ágætum og
öruggum vatnsbólum og bor-
holum. Ástandið í vatns-
búskapnum er heldur dapurt um
þessar mundir þar sem menn hafa
ekki haft þess betri vatnsveitur.
Vatnsskortur og skrælnaður
gróður á afrétti í Þingeyjarsýslum
Starfsmenn Bændasamtakanna og makar fóru í hina árlegu sumarferð sína laugardaginn 21. ágúst sl. og var farið um Suðurland. Veður var eins og
best verður á kosið og heppnaðist ferðin mjög vel. Hér má sjá hópinn hjá Strandakirkju.