Bændablaðið - 12.10.2004, Blaðsíða 27

Bændablaðið - 12.10.2004, Blaðsíða 27
Þriðjudagur 12. október 2004 27 • Sjaldan á tali. • Mögulegt að svara í einn síma og senda símtalið í annan innan símstöðvarinnar. • Sítenging – allt að 128 kb/s hraði. • Hægt að skoða póst án þess að sækja hann. • Ekkert upphafsgjald ef skipt er á meiri hraða. • Íslenskur hugbúnaður og hjálpartexti. • Auðveld uppsetning. • Síminn virkar í rafmagnsleysi. 800 7000 - siminn.is Barnaherbergi Eldhús Skrifstofa Stofa Útihús Helstu kostir: Síminn á tali og netið sjaldan alltaftengt Síma- og netlausn með Fritz ISDN símstöð • Frítt stofngjald á ISDN plús og tveir mánuðir fríir • Ekkert breytingargjald úr hefðbundnum síma í ISDN • Frír aðgangur að Internetinu í tvo mánuði Fritz símstöð 1 kr. Léttkaupsútborgun og 1.000 kr. á mán. í 12 mán. Verð aðeins: 12.001 kr. Verð áður: 15.980 kr. E N N E M M / S IA / N M 13 6 2 5 Sérstakt tilboð verður á síma- og netlausnum til þeirra sem sækja fundina „Samtal við bændur“. Eurit ISDN sími Léttkaupsútborgun og 600 kr. á mán. í 12 mán. 280 kr. Verð aðeins: 7.480 kr. Umferðarslys eru ægileg, því er undarlegt að veghaldari geri ekki meira en raun er á að sporna gegn þeim. Hér á ég við búfé (sauðfé) við vegi landsins. Það er sífellt talað um lausagöngubann, það sparar fyrir þann sem tekjur hefur af umferðinni. Búið er að girða höfuðborgina af, þetta gerir íbúa þess svæðis óviðbúna því að koma út á ómerkt lausagöngu- svæði. Hver er ábyrgð veghaldara? Í vor var pokinn ekki tekinn af aðvörunarskilti um sauðfé hjá Sveinatungu í Norðurárdal fyrr en viku eftir að sauðfé fór að rölta um svæðið. Hvað var veghaldari að gera? Sumstaðar er búið að girða með vegum. Það er ekki nægilegt að girða, það þarf að halda við og loka við girðingarenda. Bóndi með bústofn heldur sínum parti við en jörð í eyði verður útundan. Verk- takar skilja eftir opin hlið tímunum saman meðan verkið er unnið í þágu veghaldara. Veghaldari, hver er skylda þín? Á Austurlandi eru aðvörunar- merki vegna hreindýra, sem er ágætt, en engin aðvörun um nær- veru annarra ferfætlinga. Þó er sauðféð mun algengara á þessu svæði þegar umferðin þar er mest, þ.e.a.s. á sumrin. Veghaldari, er eitthvað að hjá þér? Fólk, sem kemur til landsins með flugi, fær upplýsingar í flug- vélinni um að hér sé sauðfé við suma vegi en þegar út á vegina er komið eru engar frekari aðvaranir. Veghaldari, hvað er í gangi? Í umræðunni síðustu daga er verið að benda á að sveitarfélögin eigi að setja á lausagöngubann og ábyrgð þeirra sé svona og svona. En ef grannt er skoðað sýnir vega- gerðin að það sem hægt er að komast hjá að gera er í lagi, samanber þau svör sem gefin eru af ábyrgum aðilum þeirra sem ,,þakka ábendingar og segja allt svo dýrt, merkjum stolið og að eftir ákveðinn tíma hætti fólk að taka mark á og fara eftir þessum umferðarmerkjum". Þarna er ein- hver að koma sér undan ábyrgð. Ekki hafa bændur hag af slysum og bústofnstjóni og tekjur þeirra ekki meiri en svo að girðing milli vegar og heimalands skarðar í tekjurnar. Þegar haustar og dimmir eykst hættan á þessum slysum því hrað- akstur virðist ekki minnka með birtunni. Veghaldarar og fjár- veitingavald, það er ódýrara að byrgja brunninn með aðvörun strax í stað þess að ýta ábyrgðinni á aðra. Þið fáið tekjur af öllum vegfarendum.GÞ Bréf frá bændum Það hendir bændur eins og aðra þjóðfélagsþegna að bregða sér út fyrir landsteinana og þá er Flugstöð Leifs Eiríkssonar óhjá- kvæmilegur viðkomustaður ferðist menn á annað borð flugleiðis. Sá sem hér heldur um stílvopnið er einn úr þeim hópi. Fyrir tæpum mánuði átti ég leið um FLE og leit þá inn í Ís- lenskan markað. Þarna eru allstór kæliborð sem ég taldi að væru til þess að sýna og bjóða gestum og gangandi til kaups íslenskar mjólkur- og kjötvörur. Einhvern tíma tel ég mig hafa heyrt að af- urðasölufyrirtækin okkar í mjólk og kjöti væru eignar- eða rekstrar- aðilar að Íslenskum markaði. Þess vegna undraðist ég mjög að sjá þessa sölustaði, - þ. e. kæliborðin nánast tóm. Gaddfreðið pakkað dilkalæri lá að vísu þarna í full- kominni einsemd og lítið skárra var tegundavalið af ostunum, - frekar fátæklegt. Í öllu falli var lítið sem lokkaði ,,gestinn" til að kíkja á vöruframboðið. Sem búvöruframleiðanda þótti mér þetta skondin sjón, svo ekki sé meira sagt, og óneitanlega fór ég að velta fyrir mér hvernig á þessu gæti nú staðið? Er vilja- og áhugaleysi afurða- sölufyrirtækjanna um að kenna eða er þetta svo hæpin söluleið fyrir unnar landbúnaðarvörur og lítið magn sem þarna selst að ekki svari kostnaði að sinna þessu betur? Gaman væri að fá skýring- ar á þessu. Er kannski betra og skynsamlegra að hætta með sölu kjöts og osta í flugstöðinni en gera það með hangandi hendi. Bóndi Gaddfreðið, einmana læri í Leifsstöð Rafrænt bókhald - Rafræn samskipti Námskeiðin Rafrænt bókhald - Rafræn samskipti, sem ætluð eru notendum bókhaldsforritsins dkBúbótar, verða haldin sem hér segir: 11. - 12. október Grunnskólinn Búðardal 13. - 14. október Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði 18. - 19. október Félagsheimilið Heimaland, V-Eyjafjöllum 20. - 21. október Búnaðarmiðstöð Suðurlands, Selfossi 25. - 26. október Búnaðarmiðstöð Suðurlands, Selfossi 27. - 28. október Hólmavík 29. - 30. október Vestur-Húnavatnssýsla 1. - 2. nóvember Syðri-Vík, Vopnafirði 3. - 4. nóvember Fellabær, Héraði 8. - 9. nóvember Hvanneyri 10. - 11. nóvember Búgarður, Akureyri 15. - 16. nóvember Suður-Þingeyjarsýsla 17. - 18. nóvember Austur-Skaftafellssýsla 19. - 20. nóvember Kjalarnesþing (Mosfellsbæ) 23. - 24. nóvember Sauðárkrókur 25. - 26. nóvember Hótel Kirkjubæjarklaustur Námskeiðið byggir á einstaklingsleiðbeiningum við eigið bókhald þannig að það hentar jafnt byrjendum sem reyndum notendum sem vilja læra meira. Forritið, dkBúbót, er hægt að kaupa hjá tölvudeild Bændasamtaka Íslands. Námskeiðin eru haldin af búnaðarsamböndunum og Bændasamtökum Íslands í samstarfi við verkefnið Upplýsingatækni í dreifbýli. Leiðbeinendur á námskeiðunum eru Baldur Óli Sigurðsson og Sigurður Eiríksson hjá Bændasamtökum Íslands auk ráðunautar hjá viðkomandi búnaðarsambandi. Skráning á námskeiðin er hjá búnaðarsamböndunum eða á heimasíðu BÍ, www.bondi.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.